Fréttablaðið - 19.09.2016, Síða 21

Fréttablaðið - 19.09.2016, Síða 21
Ótrúlegt úrval af ljósum, lömpum og ljósaperum verk, bæði til verktaka og einstakl- inga. „Það er algengt að fólk kaupi ljós í heilu húsin frá okkur og þá getum við gert tilboð í slíkt. Einn- ig seljum við gríðarlegt magn af ljósum til verktaka og erum að panta fyrir stóra viðskiptavini, við erum með heilu hótelin og það er svolítið „2007 ástand“ á Íslandi núna.“ Hrönn Hafliðadóttir, verkefna- stjóri markaðsmála BAUHAUS á Íslandi og í Noregi, tekur undir þetta og segir aukninguna í sölu hjá fyrirtækinu vera það mikla að það sé með ólíkindum. „Það er aukin kaupgleði og aukinn kaup- máttur hjá neytendum, við finnum það. Að hluta til er ástæðan fyrir þessari söluaukningu hjá okkur sú að við höfum fundið okkar stað á ís- lenskum markaði. Það hefur tekið tíma að komast inn á markað en nú eigum við mjög stóran hluta af ljósamarkaðnum.“ Íslenskur markaður er sérstakur Hrönn segir erfitt að koma inn á markað þegar öllum innkaup- um og markaðsmálum er stýrt að utan. „Við erum með þrjá mark- aði, Danmörku, Noreg og Ísland og mjög mismunandi smekk í þessum löndum. Íslenskur mark- aður er líka svolítið sérstakur en við höfum aðlagað okkur að því undanfarin ár og hlustum á hvað viðskiptavinurinn biður um. Við sjáum það bæði í aukningu í sölu og fjölgun viðskiptavina að við erum farin að kunna á markaðinn núna. Við byrjuðum án þess að þekkja nokkuð til íslensks mark- aðar en núna erum við orðin leið- andi á markaði og allir okkar sam- keppnisaðilar bregðast við þegar við komum með nýjungar. Ég hika ekki við að segja að við séum leiðandi í ljós- um.“ Að sögn Hrannar fá þau mikil viðbrögð í gegnum Facebook og ýmsar bloggsíður. „Til dæmis hefur síðan Skreytum hús mikil áhrif. Það sem kemur fram þar selst vel, þegar ein póstar mynd af ljósi sem hún keypti hjá okkur selst það upp. Þeir hjá fyrirtækinu í Þýskalandi skilja ekkert í þessu en þetta er alveg týpískt Ísland, þegar einn gerir það gera það allir,“ segir Hrönn og hlær. Kristalsljósin í BAUHAUS eru frá Austurríki og hafa þau verið afar vinsæl. Sá birgir var tekinn inn fyrir einu og hálfu ári og hefur verið stígandi í sölu á þeim vörum síðan. Flesti útiljósin í BAUHAUS eru ferköntuð, með tvær perur og lýsa þannig bæði upp og niður. Í BAUHAUS er lögð mikil áhersla á að vera með gæðavörur. Ný ljós frá Nordlux sem verða komin í byrjun október. Í BAUHAUS eru alltaf sömu merkin að finna, mikið af skandinavískri hönnun, bæði danskri og sænskri. Kynningarblað LjÓS og LAmpAr 19. september 2016 7 1 9 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :3 0 F B 0 6 4 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 9 F -1 0 F C 1 A 9 F -0 F C 0 1 A 9 F -0 E 8 4 1 A 9 F -0 D 4 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 6 4 s _ 1 8 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.