Fréttablaðið - 11.10.2016, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 11.10.2016, Blaðsíða 13
Það fyrsta sem slær hana er myrkrið. Svarta myrkur inni í miðjum bæ. Í svartnættinu sjást skuggar sem koma nær og nær. Bílljósin lýsa upp náföl andlit sem eru svo tekin að hún hefur aldrei séð annað eins. Janúarnóttin er ísköld. „Frænka, ertu með brauð?“ Fólkið er svo aðframkomið að það stendur varla í fæturna. Getur ekki talað, bara hvíslað. „Frænka, áttu bita af brauði?“ Hanaa Singer er komin inn fyrir víggirta vegartálma sýrlenska hersins. Hér í bænum Madaya hefur verið raf- magnslaust í fjóra mánuði. Sýrlenski stjórnarherinn og hersveitir hlið- hollar honum hafa setið um bæinn og haldið íbúunum í herkví – enginn fer inn, enginn út. Kaupmenn fá ekki að flytja nein matvæli inn í bæinn. Þetta er strategískur og kolsvartur leikur í stríðinu. Áður en veröldin fór á hvolf var hér fallegur, lítill bær sem var þekktur fyrir hreint vatn, ferska ávexti og blómstrandi ferðamanna- iðnað uppi í fjöllunum. Núna hvíslar fólk sögur af súpu úr vatni og laufum sem það borðar og gefur börnunum sínum. Súpu úr vatni og grasi. Það hringsnýst allt í höfðinu á Hönuu Singer. Er þetta virkilega að gerast á 21. öldinni? Hún er yfir- maður UNICEF, Barnahjálpar Sam- einuðu þjóðanna, í Sýrlandi og segir mér þessa sögu nokkrum mánuðum seinna. Geta ekki grátið Læknir í blóðugum sloppi leiðir hana inn í dimmt herbergi í húskjallara. Þetta er heilsugæslan í bænum þessa mánuðina, læknirinn sá eini á meðal strandaðra bæjarbúa. Málningin er flögnuð af veggjunum og á gólfinu liggja börn sem eru svo veikburða að þau geta ekki hreyft sig. Á staðnum er einungis eitt rúm. Á því eru tvær hrúgur. Eftir því sem Hanaa lítur dýpra inn í myrkrið breyt- ast þær í manneskjur. Annar sjúkling- anna er 16 ára gamall. Heitir Ali og er hálfmeðvitundarlaus. Nær dauða en lífi. Þau hlaupa til og reyna björgun- araðgerðir. Hún byrjar að hnoða. Hnoðar og hnoðar. Allt kemur fyrir ekki. Líf hans fjarar út, í skítugum kjall- ara í sturluðu stríði, beint fyrir framan augun á þeim. Ali deyr hvorki vegna sjúkdóms né slysfara, heldur vegna þess að hann var sveltur til dauða. Hanaa heyrir sjúklinginn í rúminu við hliðina á Ali hvísla lágt. „Dó hann?“ Sjúklingurinn er enn með lífsmarki og heldur dauðahaldi í fingurinn á henni. Fjölskylda Alis er inni í herberginu en of veikburða til að gráta. Þau hanga varla uppi. Fyrir utan hvíslið úr rúminu er þögn í herberginu. Rifbein Andartak líður, svo æðir allt af stað. Teymi UNICEF, Rauða hálfmánans og fleiri samtaka hraðar sér í að sinna börnunum í kjallaranum og dreifa hjálpargögnum í bænum. Þau mega engan tíma missa. Læknirinn Raija Sharhan leiðir aðgerðir UNICEF og skoðar gaumgæfi- lega öll börnin á staðnum. Næringar- ástand þeirra er skelfilegt. Mohammed litli er átta ára og hefur ekki borðað í sjö daga, hann er í þoku og á erfitt með að tala, rifbeinin skaga út í loftið. Limar er sjö mánaða og bráðavan- nærð. Hún er svo veikburða að hún nær ekki að taka upp neina næringu og mun án hjálpar annað hvort verða fyrir óafturkræfum skaða eða deyja. Hjálparstarfsfólkið hjúkrar henni og öðrum og vinnur sleitulaust til klukk- an fimm um nóttina, þegar hermenn ýta þeim út úr bænum. Þau skilja eftir vítamínbætt jarðhnetumauk, saltupp- lausnir, sérstakar mjólkurblöndur og það sem til þarf fyrir lækninn í bænum og hetjurnar sem standa vaktina með honum svo þau geti hlúð að vannærðu börnunum. Næstu daga fara myndir og vídeó úr ferðinni til Madaya eins og eldur í sinu um heimsbyggðina. Mohammed litli verður tákngervingur hörmunganna í Madaya. Stóru brúnu augun hennar Limar vekja upp sterkar tilfinningar, gráturinn hennar sem líkist frekar ýlfri. Þegar ég hitti Hönuu Singer í maí hefur hún góðar fréttir að færa, mitt í öllum hörmungunum. UNICEF hefur tekist að fara fjórum sinnum aftur til Madaya ásamt öðrum hjálparsam- tökum, með bílalest fulla af hjálpar- gögnum, og hefur getað fylgt meðferð vannærðu barnanna eftir. Það sem meira er: Mohammed er búinn að ná sér og meira að segja farinn að mæta aftur í skólann sinn. Limar hefur líka sýnt ótrúlegar fram- farir og er öll að braggast! Hitastigið fellur … enn á ný Og nú er kominn október. Enn er setið um Madaya. Enn harðnar stríðið í Sýr- landi. Áfram halda flutningar hjálpar- gagna inn í litla bæinn í fjöllunum en þeir kosta stöðugar samningaviðræð- ur. Stríðandi fylkingar svífast einskis. Það líður að vetri og Dr. Raija heldur áfram að hjúkra vannærðum börnum. Hanaa Singer skipuleggur flutninga á hreinu vatni til íbúa Aleppo og undirbýr enn einar aðgerðirnar til að bregðast við kuldanum sem fylgir vetrarhörkunum. Hún ætlar sér að ná til tveggja og hálfrar milljónar barna í Sýrlandi og nágrannaríkjunum, neyð- in er svo mikil. Þegar ég er sjálf um það bil að bugast yfir þessu klikkaða stríði reyni ég að minna mig á það sem hún sagði í vor: „Ég hef aldrei verið stoltari af neyðaraðgerðum hjá UNICEF. Við erum þarna úti og baráttan ber árangur.“ Framlög heimsforeldra og í neyðarsöfnun UNICEF gegna hér ómetanlegu hlutverki. Við munum sannarlega standa vaktina þangað til stríðinu lýkur og vera til staðar áfram eftir það. En það er ekki nóg. Grundvallaratriðið er að stöðva stríðsglæpina, loftárásirnar, morðin og eyðilegginguna. Hinar ólýsanlegu hörmungar í Sýrlandi duttu ekki af himni ofan heldur eru mannanna verk. Eitt af því sára og ljóta við stríðið er að sjá hvað það gerir börnum. Börn- um eins og Mohammed sem var nær dauða en lífi eftir að hafa verið sveltur í umsetnum bæ, Limar litlu sem á ótrú- legan hátt tókst að bjarga og Ali sem við misstum. Það er sameiginleg skylda okkar að verja réttindi þeirra. Dó hann? Sigríður Víðis Jónsdóttir upplýsingafull- trúi UNICEF á Íslandi Fjórum mánuðum áður en þessi mynd var tekin fóru myndir af Mohammed skelfi- lega vannærðum og illa förnum eins og eldur í sinu á samfélagsmiðlum. Þarna er eldhress Mohammed búinn að ná sér og spjallar við Dr. Raiju.  Gólfefna- og hreinlætistækjadagar Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Reykjavík Kletthálsi 7. Opið virka daga kl. 8-18, lau. 10-16 Reykjanesbær Fuglavík 18. Opið virka daga kl. 8-18 Allt gott tekur en da! SÍÐUSTU DAGAR lýkur lau gardag 1 5/10 Flísar 15-50% Harðpparket 15-25% Hreinlætistæki 15-25 % Mottur 20% Undirlag 25% Mosaík 30% Flísalím og fúga 20% Baðplötur 15% Góðir afslættir af MÚRBÚÐARVERÐ I: s k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 13Þ R i ð J u D A G u R 1 1 . o k T ó B e R 2 0 1 6 1 1 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :1 8 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A D F -6 6 0 4 1 A D F -6 4 C 8 1 A D F -6 3 8 C 1 A D F -6 2 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 1 0 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.