Fréttablaðið - 11.10.2016, Blaðsíða 24
„Það var ákveðið að setja undir
hann 54 tommu dekk en það eru
stærstu dekk sem hægt er að fá
undir bíl sem ekki flokkast sem
vinnuvél,“ segir Fannar Þór Bene-
diktsson, sem situr í stjórn Kyndils.
„Eins var ákveðið að búa hann svo-
kölluðum unimock hásingum sem
koma undan Bens-vörubílum en
þær hafa þann kost að sitja hærra
en hefðbundnar hásingar. Lægsti
punktur undir bílnum er því tæpur
metri,“ útskýrir Fannar.
Inni í hásingunum eru svo loft-
lagnir sem gera það að verkum
að hægt er að hleypa lofti í og úr
dekkjunum að innanverðu. „Þú
þarft með öðrum orðum ekki að
vera með utanáliggjandi slöngur og
er hægt að hleypa í og úr á ferð.“
Aðspurður segir Fannar það gert til
að auka yfirborðsflatarmál dekkj-
anna og fá betra viðnám. „Þá næst
miklu betra flot í drullu og snjó.“
Bíllinn er búinn loftpúðafjöðr-
un allan hringinn, öflugu gps-
tæki, nettengdri fartölvu, þremur
talstöðvum, sírenu og kallkerfi en
auk þess er verið að bæta við hann
merkingum, kösturum, leitarljós-
um og ýmsum smáljósum.
Bíllinn er að sögn Fannars að
mestu tilbúinn útlitslega en það á
eftir að bæta við hann rafmagni
og festingum svo eitthvað sé nefnt.
„Við erum að vonast til að hann
verði fullbúinn um miðjan nóvem-
ber en í seinasta lagi fyrir áramót,“
segir Fannar og bendir á að bíllinn
verði til sýnis á ráðstefnunni Björg-
un sem Slysavarnarfélagið Lands-
björg stendur fyrir í Hörpu um
næstu helgi.
Að endingu kemur bíllinn til með
að verða einn öflugasti jeppi á höf-
uðborgarsvæðinu og líklega á öllu
landinu. „Hann ætti því að koma að
góðum notum uppi á hálendi og í út-
köllum þar sem færð er slæm.“
En af hverju ákvað Kyndill að
ráðast í þessi kaup? „Við höfum allt-
af verið mikil tækjasveit. Við erum
með marga jeppa, öfluga sleða-
sveit og fjórhjóladeild. Við erum
nú þegar með einn Ford Econoline
sem er á 46 tommu dekkjum. Það
var mikil umræða um það hvort við
ættum að fá okkur annan bíl í þeim
stærðarflokki eða jafnvel minni og
léttari bíl en það hefur verið þróun-
in hjá flestum sveitum á höfuðborg-
arsvæðinu. Þar eru menn að bæta
við sig 38 tommu eða 44 tommu To-
yota Land Cruiser eða Hilux svo
dæmi séu nefnd. Eftir vandlega
íhugun ákváðum við hins vegar
frekar að fara í stærri bíl enda
mátum við það svo að mögulega
væri meiri þörf á slíkum bíl í út-
köll þar sem um er að ræða mikla
ófærð. Þá bindum við vonir við að
hann muni vinna vel á móti hinum
Fordinum okkar. Þetta verður flott
par.“
Eftir vandlega
íhugun ákváðum
við að fara í stærri bíl
enda mátum við það svo
að mögulega væri meiri
þörf á slíkum bíl í útköll
þar sem um er að ræða
mikla ófærð.
Fannar Þór Benediktsson
Vera
Einarsdóttir
vera@365.is
Hjá N1 er hægt að bóka dekkja-
skipti á netinu sem sparar fólki
bæði tíma og fyrirhöfn. „Þetta er
mjög einfalt, fólk einfaldlega fer
inn á heimasíðu N1 þar sem það
getur valið það verkstæði sem
best hentar að fara á og bókar
tíma. Áminning er svo send í SMS
áður en að tímanum kemur,“ segir
Dagur Benónýsson, rekstrarstjóri
þjónustuverkstæða N1.
Hann segir mikið hagræði af
þessu fyrirkomulagi, bílaeigend-
ur komist hjá því að þurfa að bíða
í langan tíma eftir að komast að og
geti þannig varið sínum tíma betur
en þeir sem bíða lengi eftir dekkja-
skiptunum. „Við höfum fengið
gríðarlega góð viðbrögð og í raun
miklu betri en við áttum nokkurn
tímann von á.“
Vottuð verkstæði
Dekkjahótel N1 eru á öllum hjól-
barðaverkstæðum fyrirtækis-
ins og hafa þau svo sannarlega
slegið í gegn hjá viðskiptavinum.
„Enda þægilegt að þurfa ekki að
burðast með dekkin inn og út úr
bílskúr eða geymslum og troða
þeim óhreinum í skottið eða inn í
bílinn sem er nú ekki mjög smekk-
legt. Þegar við skráum hjólbarða
inn á hótel þá er ástand, heiti, eig-
andi og staðsetning skráð. Þegar
líður að dekkjaskiptum að vori og
hausti sendum við viðskiptavin-
um SMS um að dekkin þeirra séu
klár til undirsetningar,“ útskýrir
Dagur.
Hjá N1 er lögð áhersla á vönduð
vinnubrögð og hafa öll verkstæði
fyrirtækisins þann gæðastimp-
il að vera vottuð af Michelin sem
tekur þau út árlega. Í þeirri úttekt
er farið yfir alla verkferla, sam-
skipti við viðskiptavini og tækja-
búnað. „Við þurfum að ná ákveðnu
skori til að standast úttekt. Verk-
stæðin okkar hafa ávallt staðist
þessa úttekt með glæsibrag og eru
á meðal bestu verkstæða sem þeir
hafa vottað. Þegar við höfum stað-
ist úttekt þá fáum við stimpilinn
Michelin Quality Dealer.“
Hágæða hjólbarðar í úrvali
Veitt er hjólbarðaþjónustu á níu
verkstæðum N1 af ellefu. Þau eru
á höfuðborgarsvæðinu, Reykja-
nesbæ, Akranesi, og á Akureyri.
„Við bjóðum upp á hjólbarðaþjón-
ustu fyrir öll farartæki ásamt því
að veita smurþjónustu og bílavið-
gerðir. Starfsmenn okkar hafa
mjög víðtæka reynslu og þekkingu
sem við höldum við með regluleg-
um námskeiðum á vegum Michel-
in, Cooper, Tech og fleiri fagaðil-
um í greininni.
Við erum einnig með öfluga út-
kallsþjónustu alla daga ársins og
vorum að bæta mjög öflugum bíl
við þann flota. Með þeim bíl getum
við auðveldlega tekið stærstu hjól-
barða undan tækjum þar sem þau
eru staðsett, farið með á verk-
stæði, gert við og sett undir aftur.
Þessi þjónusta er líka vottuð af
Michelin,“ segir Dagur og bætir
við að N1 bjóði upp á mjög breiða
línu frá Michelin eða allt frá
mótor hjóladekkjum upp í stærstu
landbúnaðar- og vinnuvéladekk
sem geta vegið á annað tonn hvert.
„Við pöntum dekk frá Michel-
in í gámavís í hverri viku þann-
ig að við getum í mörgum tilfell-
um fengið dekk frá þeim á tveim-
ur til þremur vikum. Michelin er
einn stærsti hjólbarðaframleið-
andi í heimi og leggur gríðarlega
áherslu á tækniþróun enda eru
þeirra barðar þekktir fyrir fram-
úrskarandi gæði.“
Einnig eru dekk frá Cooper í
boði hjá fyrirtækinu. „Cooper er
gamalgróinn hjólbarðaframleið-
andi og eru barðarnir frá þeim
þekktir fyrir gæði og gott grip.
Jeppadekkin frá þeim eru ein þau
vinsælustu hér á landi og hafa
verið það til margra ára. Ásamt
jeppadekkjum bjóðum við einn-
ig upp á fólksbíla-, mótorhjóla- og
sendibíladekk. Mótorhjóladekk-
in eru framleidd undir vörumerki
Avon,“ lýsir Dagur.
N1 er einnig með hjólbarða frá
eftirtöldum aðilum; Mitas land-
búnaðardekk og vinnuvéladekk,
Kumho fólksbíladekk, sendibíla-
dekk og vörubíladekk, WestLake
fólksbíladekk, vörubíladekk og
landbúnaðardekk og Carlisle fjór-
hjóladekk og ýmis smádekk.
Dekkjaskipti minna mál með netbókun
N1 býður fólki að bóka dekkjaskipti á netinu en mikið hagræði og tímasparnaður fæst með því. Hægt er að geyma dekkin á dekkjahóteli
fyrirtækisins og fá sent SMS þegar komið er að dekkjaskiptum. Öll verkstæði N1 eru vottuð af Michelin og hafa gæðastimpil fyrirtækisins.
Samheldinn hópur starfsmanna N1 á Réttarhálsi. MYND/STEFÁN
Við höfum fengið
gríðarlega góð viðbrögð
og í raun miklu betri en
við áttum nokkurn
tímann von á.
Dagur Benónýsson
Jeppaþjónustan Breytir ehf. hefur umsjón með breytingunum. Vonast er til að
bíllinn verði tilbúinn fyrir áramót.
Fannar segir bílinn koma til með að
reynast vel á hálendinu og í slæmri
færð.
Verður líklega öflugasti jeppi landsins
Björgunarsveitin Kyndill í Mosfellsbæ hefur fest kaup á glænýjum Ford F 350 2016 en sveitin hefur ekki keypt nýjan bíl síðan 1997. Bíllinn
var fluttur inn frá Bandaríkjunum og hefur síðan undirgengist umtalsverðar breytingar. Þær standa enn yfir en gert er ráð fyrir því að hann
verði tilbúinn innan nokkurra vikna. Hægt verður að berja hann augum á sýningunni Björgun í Hörpu um næstu helgi.
Bíllinn er búinn svokölluðum unimock hásingum en þær sitja mun hærra en hefð-
bundnar hásingar.
VETRaRDEKK Kynningarblað
11. október 20166
1
1
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:1
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
D
F
-6
6
0
4
1
A
D
F
-6
4
C
8
1
A
D
F
-6
3
8
C
1
A
D
F
-6
2
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K