Fréttablaðið - 11.10.2016, Blaðsíða 12
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871
fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Sara McMahon sara@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Halldór
Þorbjörn
Þórðarson
thorbjorn@frettabladid.is
Hinir ríku halda áfram að verða miklu ríkari á Íslandi.“ „Laun þeirra ríku hækka hraðar.“ Að mínu mati fanga þessar tvær fyrirsagnir, sem
birtust í fjölmiðlum á síðustu dögum, það í hnot-
skurn um hvað verður kosið 29. október.
Það skiptir nefnilega máli hverjir stjórna. Það sést
ekki alltaf, heilt yfir getur samfélagið verið á réttri
leið, hagtölur að skána, einhverjar breytur í útreikn-
ingum líka og jafnvel finnum við það sum hver á
eigin skinni að staðan er að batna. En misskiptingin
verður ekki falin í tölum um meðaltalshækkun. Það
hvernig þeir sem halda áfram að hafa það betra,
verða enn ríkari, fá enn meira til sín en aðrir. Fölsk
bros stjórnmálamanna og enn falskari loforð rétt
fyrir kosningar breyta engu um þessar staðreyndir.
Síðasti áratugur hefur verið þjóðinni erfiður. Rugl-
hagkerfi fyrirhrunsáranna kippti raunveruleikanum
úr sambandi og svo var öllum kippt niður á jörðina
með hruninu. Efnahagslífið var í rúst og öll orka
stjórnvalda fór í að koma því aftur á réttan kjöl. Það
tókst og hægt og rólega hefur landið verið að rísa,
allt að rétta úr kútnum. Og ekki endilega hægt, þetta
hefur tekið undraskamman tíma í raun.
Einmitt þess vegna skiptir máli hverjir setjast við
stjórnvölinn eftir þessar kosningar, hvaða flokkar
það eru sem koma að því að hanna það samfélag sem
við viljum sjá, að nýta betri efnahagsstöðu á sem
réttastan máta. Hvort við viljum auka jöfnuð, hvort
við viljum að þeir sem verst hafa það njóti efna-
hagsbatans, hvort við viljum styrkja velferðarkerfið,
heilbrigðiskerfið, hvernig við viljum nýta þá stöðu að
ríkið heldur utan um stærstan hluta fjármálakerfis-
ins til að koma samfélagssjónarmiðum þar inn.
Fyrir mér eru þetta stóru málin. Og flokkar sem
rétt fyrir kosningar muna eftir því að til er fleira fólk
en fjármagnseigendur og fleiri félög en aflandsfélög
eru ekki trúverðugir til að standa sig vel í þessu.
Til þess treysti ég Katrínu Jakobsdóttur og Vinstri
grænum.
Fölsk bros,
því bráðum er kosið
Kolbeinn
Óttarsson
Proppé
skipar 2. sæti hjá
VG í Reykjavík
suður
En misskipt-
ingin verður
ekki falin í
tölum um
meðaltals-
hækkun.
Flísabúðin
Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is
Gæði og
glæsileik
i
endalaus
t úrval af
hágæða
flísum
Finndu okkur
á facebook
Í lokaskýrslu
verkefnis-
stjórnar
3. áfanga
rammaáætl-
unar kemur
fram að það
eru helst
neikvæð áhrif
á gönguferðir
á nærliggj-
andi svæðum
sem mæla
gegn Búrfells-
lundi.
Vinnsla rafmagns úr vindorku er einhver umhverfisvænasta aðferð sem þekkist til að búa til rafmagn. Verkefnisstjórn um rammaáætlun og löggjafinn ættu að veita vindorkuverkefnum brautargengi og stuðla þannig að því að gera samfélagið minna háð óafturkræfum virkjunum.
Náttúruvernd snýst ekki bara um rómantískar hug-
myndir um að viðhalda náttúrunni ósnortinni og sjálf-
bæra auðlindanýtingu. Hún snýst um fyrirhyggju, ábyrga
umgengni við auðlindir og tillitssemi við kynslóðir fram-
tíðarinnar. Þannig endurspeglar hún ekki síður ást á fram-
tíðarafkomendum en virðingu fyrir öðrum tegundum í
vistkerfinu. Ef maðurinn elskar börnin sín, þá elskar hann
náttúruna.
Vindurinn er ótæmandi auðlind og vinnsla rafmagns
með vindmyllum hefur ekki í för með sér neinn mengandi
útblástur. Uppsetning vindmylla hefur hins vegar sjónræn
áhrif á umhverfið og getur þannig gengið í berhögg við
hagsmuni í öðrum atvinnugreinum eins og ferðaþjónustu.
Varanleg umhverfisáhrif af vindmyllum eru samt lítil og
að mestu afturkræf. Þannig er hægt að reisa vindmyllur,
framleiða rafmagn í einhvern tíma og taka þær síðan
niður án mikillar röskunar fyrir umhverfið.
Landsvirkjun reisti tvær vindmyllur í tilraunaskyni á
Hafinu svokallaða norðan Þjórsár í lok árs 2012 og hafa
þær framleitt rafmagn frá ársbyrjun 2013. Niðurstöður
benda til þess að aðstæður til virkjunar vinds séu óvenju
hagstæðar á þessu svæði. Aðliggjandi fjallgarðar mynda
trekt fyrir vind ofan af hálendinu sem streymir þarna í
gegn. Landsvirkjun hannaði í kjölfarið vindmyllugarð
á þessu sama svæði og á hraun- og sandsléttu sunnan
Þjórsár. Garðurinn hefur fengið heitið Búrfellslundur og
hefur þegar farið í gegnum umhverfismat. Það verða allt
að 67 vindmyllur í Búrfellslundi með framleiðslugetu upp
á 200 MW. Það var niðurstaða verkefnisstjórnar í 3. áfanga
rammaáætlunar að setja Búrfellslund í biðflokk og því
bíða stjórnendur Landsvirkjunar eftir verkefnisstjórn og
Alþingi áður en fyrirtækið getur hafið framkvæmdir á
svæðinu. Áður hafði verkefnisstjórn samþykkt að setja
Blöndulund í Húnavatnshreppi í orkunýtingarflokk en
það er vindmyllugarður með framleiðslugetu upp á 100
MW.
Í lokaskýrslu verkefnisstjórnar 3. áfanga rammaáætl-
unar kemur fram að það eru helst neikvæð áhrif á göngu-
ferðir á nærliggjandi svæðum sem mæla gegn Búrfells-
lundi. Í skýrslunni kemur fram að vindmyllurnar sjáist
langt að og hafi því mikil sjónræn áhrif. Þær muni gera
umhverfið minna náttúrulegt í hugum ferðamanna og
„upplifun þeirra á landslaginu og svæðinu í heild, verður
síðri“. Þetta er auðvitað mjög huglægt og sjónræn áhrif eru
einstaklingsbundin.
Í ljósi átaka sem einkenna umræðu um virkjanir og
nýtingu fallvatns má velta fyrir sér hvort vinnsla rafmagns
úr vindorku sé ekki leið sátta og málamiðlana. Röskun
sem fylgir beislun vindsins er aðallega sjónræn og eiginleg
mengun er engin. Það hlýtur því að vera von umhverfis-
verndarsinna sem skynja mikilvægi ábyrgrar auðlindanýt-
ingar að stjórnmálamenn beri gæfu til að tryggja framgang
virkjanakosta á sviði vindorku.
Beislum vindinn
Sveppahöllin
Fjöldi starfsmanna sem vinnur
hjá Íslandsbanka á Kirkjusandi
hefur fundið fyrir einkennum
myglusvepps. Eins og fram
kemur í Fréttablaðinu í dag
huga stjórnendur bankans auð-
vitað að velferð síns starfsfólks
og hafa flutt fjölda þeirra á aðrar
starfsstöðvar. Myglusveppur er
auðvitað grafalvarlegt mál og
getur leitt til margra líkamlegra
og jafnvel andlegra einkenna
hjá fólki. Einhverjir starfsmenn
Íslandsbanka brosa þó út í eitt
og eru búnir að finna nýtt nafn á
húsnæðið að Kirkjusandi. Húsið
er núna kallað Sveppahöllin.
Umbunin
Það vakti svolitla athygli þegar
Heiða Kristín Helgadóttir, guð-
móðir Besta flokksins, greindi
frá því á sunnudag að hún væri
hætt að vinna fyrir Bjarta framtíð
og farin að vinna fyrir Viðreisn.
Engar ástæður er snerta mál-
efnaágreining eru gefnar upp
né heldur neitt sagt um sam-
skiptaörðugleika við fyrrverandi
flokksfélaga. Björt Ólafsdóttir,
þingmaður Bjartrar framtíðar,
gerir því skóna í samtali við Vísi
í gær að ástæðan fyrir sinna-
skiptum Heiðu Kristínar sé von
hennar um hærri laun fyrir störf
hjá Viðreisn. Og lái henni hver
sem vill að vilja umbun fyrir störf
sín. Starfsmenn stjórnmálaflokk-
anna þurfa jú að eiga fyrir salti í
grautinn eins og aðrir.
jonhakon@frettabladid.is
1 1 . o k t ó b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D A G U r12 s k o Ð U n ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð
SKOÐUN
1
1
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:1
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
D
F
-5
C
2
4
1
A
D
F
-5
A
E
8
1
A
D
F
-5
9
A
C
1
A
D
F
-5
8
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K