Fréttablaðið - 11.10.2016, Blaðsíða 35
Elskuleg amma mín, systir,
mágkona og frænka,
Sigríður Björnsdóttir
(Sidda)
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ
fimmtudaginn 6. október síðastliðinn.
Útförin verður tilkynnt síðar.
Daníel Heiðar Tómasson
Dagný Björnsdóttir Ragnar Guðmundsson
Pétur H. Björnsson Sigurdís Sigurbergsdóttir
Helga Björnsdóttir
Björn Logi Isfoss Katarina Isfoss
og systkinabörn.
Elsku eiginmaður minn og besti vinur,
faðir okkar, afi, tengdafaðir og bróðir,
Knut Vesterdal
Mánatúni 7, Reykjavík,
dó aðfaranótt föstudags
30. september sl. heima í faðmi
fjölskyldunnar. Útför hans fer fram frá
Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 13. október kl. 15.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Aðalheiður Svana Kjartansdóttir
Bjarni Klemenz Vesterdal Anna Guðný Gröndal
María Alexandra Vesterdal Chris Thorning Sørensen
Valdimar Leo Vesterdal
Björn Vesterdal Steinar Vesterdal
og barnabörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar,
stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Sigurjón Valdimarsson
Grænlandsleið 33,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Guðríðarkirkju
fimmtudaginn 13.október kl. 15.00.
Dóra Björg Gissurardóttir
Eggert Sigurjónsson Þrúður Gísladóttir
Stefán Sturla Sigurjónsson Petra Högnas
Sigurfinnur Sigurjónsson Valgerður Friðriksdóttir
Kristján Sigurjónsson Ann Sehlin
Guðný L. Björnsdóttir Snorri Harðarson
Jónas B. Björnsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Ágústa Fanney
Guðmundsdóttir
Urriðakvísl 20,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir
miðvikudaginn 28. september. Útförin fer
fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 13. október kl. 13.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþökkuð.
Gunnlaugur Þórhallsson
Vigdís Arnheiður Gunnlaugsdóttir Guðmundur Ingi
Gíslason
Guðmundur Leifur Gunnlaugsson Dagbjört Margrét
Pálsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Ingibjörg Þórðardóttir
Laugarnesvegi 55, Reykjavík,
lést 4. október síðastliðinn.
Útförin fer fram frá Laugarneskirkju,
miðvikudaginn 12. október klukkan 13.
Snæbjörn Sveinsson
Margrét Snæbjörnsdóttir Axel Sigurjónsson
Helga Snæbjörnsdóttir Stefán Eiríksson
Gísli Þórmar Snæbjörnsson Íris Þórarinsdóttir
Hrafnhildur Inga, Snærós, Snæbjörn, Hrafnkell, Sóley,
Þorsteinn, Þórarinn, Ingi, Egill og Ægir
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Þorbjörg Guðmundsdóttir
lést á Hjúkrunarheimilinu Ási
Hveragerði, fimmtudaginn 6. október.
Útförin fer fram frá Hveragerðiskirkju
laugardaginn 15. október kl. 11.00.
Sigríður Kristjánsdóttir Gústaf Jónasson
Karl Kristjánsson Steinunn G. Helgadóttir
Helga Kristjánsdóttir Sveinn Smári Björnsson
og fjölskyldur.
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi, langafi og vinur,
Stefán Þórisson
frá Hólkoti í Reykjadal,
verður jarðsunginn
frá Einarsstaðakirkju laugardaginn
15. október kl. 14.00. Blóm og kransar
vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans
er bent á að láta Skógarbrekku á Heilbrigðisstofnun
Norðurlands á Húsavík eða Harmonikkufélag Þingeyinga
njóta þess.
Aðalheiður Stefánsdóttir Sveinn B. Sveinsson
Þórir Stefánsson Svanhvít Jóhannesdóttir
Stefán Stefánsson Lovísa Leifsdóttir
Olga Ásrún Stefánsdóttir Sigurjón B. Kristinsson
Gunnhildur Stefánsdóttir Leifur Hallgrímsson
Hólmfríður F. Svavarsdóttir
Ingibjörg Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Merkisatburðir
„Þetta eru tímamót, það er alveg rétt. Að
landa heimsmeistaratitlinum var stór
viðburður á sínum tíma og hann lifir,“
segir Björn Eysteinsson sem var fyrirliði
íslensku briddssveitarinnar á heims-
meistaramótinu í Yokohama í Japan
árið 1991. „Það vakti gríðarlega athygli
að félagslið frá Íslandi næði svona langt,“
rifjar hann upp og segir Briddssam-
bandið ætla að halda veglegt afmælis-
teiti í byrjun næsta mánaðar.
Gríðarleg stemning skapaðist kring-
um mótið hér heima, enda segir Björn
ákveðna blaða- og fréttamenn hafa
haldið landsmönnum vel upplýstum
um gengi sveitarinnar. „Bjarni Fel hjá
útvarpinu var í stöðugu sambandi dag
og nótt og DV tók forsíðu blaðsins undir
landsliðið í tvo til þrjá daga.“
Auk Björns var briddssveitin skipuð
þeim Aðalsteini Jörgensen, Erni Arn-
þórssyni, Guðlaugi R. Jóhannssyni, Guð-
mundi Páli Arnarsyni, Jóni Baldurssyni
og Þorláki Jónssyni. Við heimkomuna
var þeim fagnað með eftirminnilegum
hætti í Leifsstöð, þar sem Davíð Oddsson
forsætisráðherra stakk upp á að glösum
yrði lyft og ekki bara hrópað skál, heldur
Bermúdaskál, eftir verðlaunagripnum
eftirsótta sem þeir komu með.
Mikil briddsvakning varð meðal
þjóðarinnar eftir þennan frækilega sigur.
Þegar gerð var skoðanakönnun ári síðar
á því hversu margir spiluðu bridds sér til
gamans reglulega voru það 25 prósent
þeirra sem talað var við. „Enn er heil-
mikill fjöldi sem hittist í heimahúsum til
að spila bridds þó það fólk keppi ekki,“
segir Björn og upplýsir að fimm þeirra
sem voru í sigursveitinni spili keppnis-
bridds enn, þar á meðal hann, enda
kveðst hann mæta á æfingar einu sinni í
viku hjá Briddsfélagi Reykjavíkur.
Björn er í golfinu líka og rekur eigin
golfferðaskrifstofu. Hún heitir því ágæta
nafni Betri ferðir. Hann kveðst skipu-
leggja styttri og lengri golfferðir til margra
Evrópulanda. „Eftir að gengi íslensku
krónunnar hefur styrkst er mun hag-
kvæmara fyrir golfara að fara í pakka-
ferðir,“ bendir hann á. gun@frettabladid.is
Aldarfjórðungur liðinn
frá Bermúdaskálinni
Íslendingar náðu þeim einstæða árangri að verða heimsmeistarar í bridds fyrir 25 árum
úti í Japan. Björn Eysteinsson ferðaskrifstofustjóri var fyrirliði sveitarinnar.
„Það vakti gríðarlega athygli að félagslið frá Íslandi næði svona langt,“ segir Björn um árangur íslensku briddssveitarinnar fyrir 25 árum úti í
Japan. FréttaBlaðið/GVa
1977 Opinberir starfsmenn í BSRB fara í sitt fyrsta verkfall.
1986 Fundur Ronalds Reagan Bandaríkjaforseta og Mikhails Gor-
batsjov, leiðtoga Sovétríkjanna, hefst í Höfða í Reykjavík.
1987 Spænsk þota verður eldsneytislaus í grennd við Ísland og
nauðlendir á hafinu um 50 sjómílur vestur af Reykjanesi. Sex
mönnum er bjargað úr gúmmíbjörgunarbát um borð í Þorlák ÁR.
1988 Fyrsta konan er kosin forseti sameinaðs Alþingis og er það
Guðrún Helgadóttir.
2007 Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í borgar-
stjórn Reykjavíkur springur.
t í m a m ó t ∙ F R É t t a B L a ð i ð 19Þ R i ð J U D a G U R 1 1 . o k t ó B e R 2 0 1 6
1
1
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:1
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
D
F
-6
A
F
4
1
A
D
F
-6
9
B
8
1
A
D
F
-6
8
7
C
1
A
D
F
-6
7
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K