Fréttablaðið - 11.10.2016, Blaðsíða 2
Forsetinn heimsótti Langholtsskóla
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri kynntu í gær forvarnardaginn auk samtaka og bakhjarla sem að deg-
inum standa. Kynningin fór fram í Langholtsskóla. Forvarnardagurinn sjálfur er á morgun í flestum 9. bekkjum landsins. Fréttablaðið/SteFán
Veður
Suðaustan 8-15 m/s og rigning um allt
sunnan- og vestanvert landið en þurrt að
kalla, og bjartviðri norðaustantil. Áfram
hlýtt í veðri, allt að 13 stiga hiti norðan-
lands. sjá síðu 20
samfélag „Hvað þarf að gerast til
þess að borgin fari að taka á sig
rögg og gera eitthvað í þessu,“ segir
Hlöðver Bernharður Jökulsson
sjúkraþjálfari. Hann er slasaður og
bersýnilega sárþjáður eftir að hafa
hjólað á kanínu í Elliðaárdalnum á
leið í vinnuna á föstudagsmorgun.
Hann féll af hjólinu og á tré með
þeim afleiðingum að lungað féll
saman og rifbein 3 til 7 eru brotin.
Þar af eru einhver þeirra tvíbrotin.
Þá er annað herðablaðið sprungið
þvert yfir.
„Þetta gerist allt svo snöggt og
ég man bara að ég skell á trénu
og hendist aftur á bak og svo bara
dofna ljósin hægt og rólega af því
að ég næ ekki andanum,“ segir
Hlöðver. Hann telur að liðið hafi á
bilinu fimmtán til tuttugu mínútur
þangað til að kona í nágrenninu
verður hans vör og hún hringir á
112. „Þá er ég bara að berjast við að
ná andanum. Lungað er fallið saman
og ég ligg á bakinu og finn við hvern
andardrátt hvernig brestur og smell-
ur í öllu og er jafnframt að hósta
blóði og reyna að hreinsa öndunar-
færin,“ segir Hlöðver. Hann segir
að fleira fólk hafi síðan drifið að en
honum fannst heil eilífð þangað til
sjúkrabíllinn kom. Hann var síðan
fluttur á slysadeildina. Þar voru bara
öll föt klippt utan af mér því að þeir
gátu ekkert skoðað mig nógu vel.
Hann var svo settur í CT-skanna þar
sem kom í ljós að lungað var fallið
saman. Hann fór svo á gjörgæslu þar
sem hann var í sólarhring áður en
hann fór á almenna deild.
Hlöðver leggur áherslu á það
að hann sé enginn keppnis-
hjólamaður heldur eigi hann
bara venjulegt hjól. Hraða eða
glannaskap verði ekki kennt um.
Hann ítrekar ákall sitt um að
Reykjavíkurborg grípi til aðgerða
vegna þessara kanína. „Ég er alveg
viss um að ég er ekki sá eini sem
hefur lent í því að detta út af þessum
kanínum. Það hafa örugglega líka
einhverjar aftanákeyrslur orðið út
af kanínum,“ segir Hlöðver. „Mér
finnst vera kominn tími til að gera
eitthvað í málinu,“ bætir hann við.
jonhakon@frettabladid.is
Margbrotinn eftir
árekstur við kanínu
Hlöðver Jökulsson slasaðist illa eftir að hann hjólaði á kanínu í Elliðaárdalnum.
Lungað féll saman og bein brotnuðu. Hann brýnir borgina til verka gegn
fjölgun kanína sem hann segir að viss um að hafa valdið fleri slysum.
Hlöðver slasaðist illa og er með mörg brotin rifbein. Hann brýnir borgaryfirvöld til
verka. Fréttablaðið/GVa
Ég er alveg viss um
að ég er ekki sá eini
sem hefur lent í því að detta
út af þessum kanínum.
Hlöðver Jökulsson sjúkraþjálfari
fiskeldi Nýrnaveiki kom upp í
tveimur seiðaeldisstöðvum í sumar
og nú í haust. Slátra þurfti mörg þús-
und laxaseiðum. Fyrra tilvikið kom
upp hjá Bæjarvík ehf. í Tálknafirði
og hitt hjá Arctic Smolt, sem er með
starfsemi þar í grenndinni.
Gísli Jónsson, sérgreinalæknir
fisksjúkdóma hjá Matvælastofnun,
staðfesti nýrnaveikismitin í samtali
við Vísi sem sagði fyrst frétt af þessu
í gær. Gísli segir þar að nýrnaveiki
skjóti upp kollinum reglulega. Tvær
stöðvar greindust með smit núna,
engin í fyrra en 2014 komu upp tvö
tilfelli.
Landssamband veiðifélaga sendi
frá sér fréttatilkynningu í kjölfarið
þar sem lýst er þungum áhyggjum
af fréttum af nýrnaveiki. „Eru þær
fregnir í sterkri andstöðu við það
sem haldið hefur verið fram að
íslenskt fiskeldi sé sjúkdómafrítt og
ógni ekki stofnum villtra fiska. Þá
harmar LV að ekki hafi verið upp-
lýst um að sjúkdómar hafi komið
upp í umræddum stöðvum strax í
vor, heldur hafi þurft eftirgrennslan
fjölmiðla til.
Landssambandið krefst þess
að ekki verði frekari leyfi til eldis
gefin út fyrr en farið hefur fram
ítarleg áhættugreining á eldi frjórra
norskra laxa með tilliti til meng-
unar, sjúkdóma og erfðamengunar.
– shá
Nýrnaveiki í
laxaseiðum
Sjókvíaeldi á norsku eldiskyni er afar
umdeilt.
samfélag Edda Heiðrún Backman,
leik- og myndlistarkona, var jarð-
sungin frá Hallgrímskirkju í gær.
Hún lést þann 1. október síðast-
liðinn, 58 ára að aldri, eftir meira
en áratugar glímu við MND-sjúk-
dóminn.
Edda útskrifaðist með leikara-
próf frá Leiklistarskólanum árið
1983 og átti farsælan feril sem
leikari, bæði í sjónvarpi og á sviði.
Edda Heiðrún
jarðsungin
edda Heiðrún backman borin til grafar.
Fréttablaðið/eyþór
Landssamband veiði-
félaga vill að fleiri leyfi verið
ekki gefin fyrr en áhættu-
greining hefur farið fram.
1 1 . o k t ó b e r 2 0 1 6 Þ r i ð j u d a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
1
1
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:1
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
D
F
-6
1
1
4
1
A
D
F
-5
F
D
8
1
A
D
F
-5
E
9
C
1
A
D
F
-5
D
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K