Fréttablaðið - 11.10.2016, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 11.10.2016, Blaðsíða 20
Þorkell er á leið heim til sín til Fort Lauderdale í Flórída þegar blaðamaður slær á þráðinn. Á síð- ustu tveimur dögum hefur hann ekið frá Maine upp til Kanada og á nú um 1.800 km ófarna heim. Þor- kell hefur búið og starfað í Banda- ríkjunum frá árinu 1985 en þang- að flutti hann 25 ára gamall ásamt foreldrum sínum. Í dag starfar hann sem vöru- bílstjóri fyrir Oakley Tran- sport í Flórída sem sérhæfir sig í að flytja fljótandi matvæli. „Ég dreg tanka á eftir mér sem í eru fljótandi matvæli, allt frá sterku áfengi og niður í vatn og allt þar á milli. Til dæmis matarolíur, egg í fljótandi formi, hunang og súkku- laði,“ segir Þorkell. Ökutækið er Volvo 630 með D13 vél. „Þetta er sæmilega góður bíll og ég hef góða aðstöðu í honum. Þetta er í raun lítið hús á hjólum. Þar er ég með nokkuð stórt rúm, fataskápa, ísskáp, örbylgjuofn, sjónvarp, tölvu og litla ljósavél fyrir rafmagn og til að halda hit- anum í lagi, hvort sem það er að loftkæla á sumrin eða hita á vet- urna.“ Þó að Þorkell búi í Flórída ekur hann minnst á þeim slóðum. „Ég keyri um öll Bandaríkin, og mikið um Kanada,“ upplýsir hann en fjarveran frá heimilinu getur verið æði löng. „Ég get verið allt upp í tvo mánuði í burtu í senn.“ Mikilvæg fyrir öryggið Þar sem Þorkell ekur mikið um norðurfylkin og Kanada skiptir miklu að vera með góð vetrardekk. „Það er alveg númer eitt enda mikil vægt upp á öryggið. Maður kemst ekkert án góðra dekkja.“ Þorkell var að skipta um dekk á dögunum og setti undir ný vetr- ardekk. Segja má að endingin á gömlu dekkjunum hafi verið ansi góð en Þorkell fór á þeim 305 þús- und mílur sem gera um 490 þús- und kílómetra. „Menn segjast varla hafa séð svona góða nýt- ingu á dekkjum áður. Ég keyrði þau reyndar aðeins lengur en ég vildi,  mér fannst gott að komast nær vetrinum svo ég yrði með ný dekk þegar hann gengi í garð,“ segir Þorkell en tekur fram að dekkin hafi samt sem áður verið lögleg enda strangar reglur um dýpt mynstra í Bandaríkjunum. Þrýstingurinn þarf að vera í lagi En hvernig lætur maður dekkin endast svona lengi? Þorkell segir nokkur atriði skipta höfuðmáli. „Í fyrsta lagi skiptir öllu að vera með réttan loftþrýsting á dekkjunum. Ég athuga þrýstinginn sjálfur á hverjum degi og það hefur mikið að segja. Þá eru vegirnir hér mun betri en á Íslandi, slitlagið er ekki eins gróft og eyðir því dekkjunum minna. Síðan er ég með tæki sem heitir Centramatic, þetta er stífa með stálhring sem heldur dekkj- unum jafnvægisstilltum. Þetta getur gefið upp í tuttugu prósent betri líftíma á dekkin,“ upplýsir Þorkell. Hann bætir við að akst- urslagið skipti vissulega líka máli, ekki sé gott að taka skarpar beygj- ur. Tíu dekk eru undir bílnum, átta að aftan og tvö að framan. „Ég skipti um öll aftari dekkin núna og það kostar skildinginn eða um 411 þúsund krónur. En þú færð í kringum tveggja ára notkun út úr þeim,“ segir Þorkell sem notar ávallt dekk frá Bridgestone að aftan. „Ég hef prófað margt annað en hef aldrei fengið eins mikið út úr dekkjum eins og Bridgestone.“ Að framan notar Þorkell hins vegar dekk frá Michelin. „Fram- dekk endast ávallt skemur enda meira álag á þeim. Ég næ um 160 þúsund kílómetrum út úr þeim en keyri um 240 þúsund kílómetra á ári.“ Útgefandi 365 miðlar ehf. | Skaftahlíð 24 | s. 512 5000 | fax 512 5301 UmSjónarmaðUr aUglýSinga Jón Ívar Vilhelmsson| jonivar@365.is | s. 512-5429 ÁbyrgðarmaðUr Svanur Valgeirsson Veffang visir.is Þorkell við Volvoinn þar sem hann eyðir drjúgum hluta ársins, og dvelur þar allt upp í tvo mánuði í senn. nýju dekkin koma sér vel þegar ekið er um bandaríkin og Kanada. gömlu dekkin sem Þorkell tók undan á dögunum. dekkin entust 490 þúsund km Þorkell Ragnarsson ekur vörubíl um Bandaríkin og Kanada. Hann setti nýverið ný vetrardekk undir trukkinn en þau gömlu höfðu enst í 490 þúsund kílómetra. Hann segir betri vegi, réttan loftþrýsting, rétta jafnvægisstillingu og gott ökulag hafa mest að segja um endingu dekkja. Sólveig gísladóttir solveig@365.is ÖRYGGI BÍLSINS BYGGIST Á GÓÐUM HJÓLBÖRÐUM Skipholti 35 – 105 Reykjavík • Sími: 553 1055 • spdekk@simnet.is Ég athuga þrýstinginn sjálfur á hverjum degi og það hefur mikið að segja. Þorkell Ragnarsson VetrardeKK Kynningarblað 11. október 20162 1 1 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :1 8 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A D F -8 D 8 4 1 A D F -8 C 4 8 1 A D F -8 B 0 C 1 A D F -8 9 D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 8 s _ 1 0 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.