Fréttablaðið - 27.09.2016, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 27.09.2016, Blaðsíða 8
Frakkland FranÇois Hollande, for- seti Frakklands, segist staðráðinn í að loka flóttamannabúðunum í Calais fyrir árslok. Hann vill samt að Bretar taki þátt í kostnaðinum. Hollande skýrði frá þessu í gær- morgun þegar hann hélt til Calais að hitta þar lögreglumenn og stjórn- málamenn. Ekki heimsótti hann þó búðirnar sjálfar. Þar hafast við allt að tíu þúsund flóttamenn, sem flestir hverjir von- ast til að geta komist í gegn um Ermarsundsgöngin yfir til Bret- lands. Margir hafa reynt að laumast yfir sundið með því að fela sig í flutningabílum sem eru á leiðinni inn í göngin. Í síðustu viku var byrjað að reisa múr einn mikinn meðfram þjóðveg- inum til að einangra hann frá búð- unum. Þannig verði flóttafólkinu þar gert erfiðara að nálgast umferð- ina undir Ermarsundið. Það eru Bretar sem fjármagna þessa múrgerð, sem talið er að hafi kostað hátt í tvær milljónir punda, sem er jafnvirði nærri 300 milljóna króna. Fyrr á þessu ári var svæðið, sem búðirnar eru á, minnkað um helm- ing. Engu að síður hefur íbúum Hollande ætlar sér að loka Calais-búðunum Hollande Frakklandsforseti krefst þess að Bretar taki þátt í kostnaðinum. Vinna við gerð múrs milli búðanna og þjóðvegarins að Ermarsundsgöngunum er hafin. Flóttamaður í Calais-búðunum, þar sem allt að tíu þúsund manns búa við lélegar aðstæður. NordiCphotos/AFp hollande Frakklandsforseti er strax byrjaður að undirbúa kosningabaráttu sína fyrir forsetakjör á næsta ári. FréttAblAðið/EpA 10.000 flóttamenn eru taldir hafast við í búðunum. Þeim þarf nú að koma fyrir annars staðar í Frakklandi. þeirra fjölgað. Opinberlega er full- yrt að um sjö þúsund manns búi þar, en talið er að raunverulegur fjöldi sé nær tíu þúsundum. Þar á meðal eru um þúsund börn. Frönsk stjórnvöld reyna nú að koma þessu fólki fyrir ann- ars staðar í Frakklandi fyrir vetrarbyrjun. Búðirnar voru ekki s k i p u l a g ð a r a f s t j ó r n v ö l d u m h e l d u r k o m flóttafólk sér þar sjálft fyrir og setti þar u p p t j ö l d og bráða- birgðaskýli a f ý m su tagi. Fyrstu búðirnar risu þar stuttu fyrir aldamótin. Stjórnvöld hafa reglulega reynt að loka þeim en fólkið hefur þá bara komið sér fyrir annars staðar í nágrenninu.  Hjálparstofnanir hafa útvegað fólkinu heilbrigðisþjónustu en hreinlætisaðstaða er mjög bág- borin. Heimsókn Hollandes til Calais virðist vera liður í undirbúningi hans fyrir forsetakosningarnar á næsta ári. Nicolas Sarkosy, fyrr- verandi forseti, kom einnig til Calais í síðustu viku, en hann vonast til þess að endurheimta embættið. gudsteinn@frettabladid.is Komið,prófið ogsannfærist ! Fyrstu heyrnartækin sem taka eðlilegri heyrn fram í háværu umhverfi Siemens Pure binax eru fyrstu heyrnartæki veraldar sem gera þér kleift að heyra betur en fólk með eðlilega heyrn. Þessi nýju tæki nota háþróaða binaural tækni sem dregur sjálfvirkt fram einmitt það sem þú vilt heyra en síar jafnframt burt eða dempar þau óþarfa hljóð sem þú vilt ekki heyra. Þú getur einnig stefnumiðað hlustunarsviði tækjanna og þannig beint hlustun þinni að einmitt þeirri manneskju sem þú ræðir við hverju sinni. Þannig gera tækin þér auðveldara að halda uppi samræðum í háværu fjöl- menni. Rannsóknir sýna ennfremur að binax tækin greina tal betur í hávaða en fólk með eðlilega heyrn getur. Binax tækin tengjast einnig snjallsímanum þínum svo þú getur stjórnað styrk, hlustunar- kerfum og fleiru í gegnum símann. Siemens heyrnartækin Söluaðili á Íslandi: Heyrnar- og talmeinastöð Íslands, Háaleitisbraut 1, s:5813855, www.hti.is www.bestsound-technology.is Flísabúðin Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is Gæði og glæsileik i endalaus t úrval af hágæða flísum Finndu okkur á facebook HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði Verð frá aðeins 2.220.000 kr. ŠKODA Fabia býr yfir ótal kostum, en fögur orð og fyrirheit koma ekki í staðinn fyrir persónulega reynslu. Því langar okkur að lána þér Fabiu í sólarhring. Komdu við hjá okkur eða sendu póst á skoda@hekla.is og fáðu nýja ŠKODA Fabiu til reynslu í 24 tíma. Hlökkum til að sjá þig. Prófaðu Fabiu í sólarhring www.skoda.is 2 7 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U d a G U r8 F r é t t I r ∙ F r é t t a b l a Ð I Ð 2 7 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :5 2 F B 0 7 2 s _ P 0 6 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A B 2 -B F B 4 1 A B 2 -B E 7 8 1 A B 2 -B D 3 C 1 A B 2 -B C 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 7 2 s _ 2 6 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.