Fréttablaðið - 27.09.2016, Qupperneq 12
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871
fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Sara McMahon sara@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Halldór
Þorbjörn
Þórðarson
thorbjorn@frettabladid.is
Aflandsreikningar erlendis vekja umræður og spurningar. Menn spyrja: Er það lögbrot að eiga fé á aflandsreikningi? Er það skattsvik? Mega
menn ekki ráða því hvar þeir geyma fé sitt?
Það eitt að eiga fé á aflandsreikningi á leyndum stað
erlendis er feluleikur, en ekki endilega lögbrot. Og
athugun hvers máls leiðir í ljós hvort um skattsvik er
að ræða.
Hvað er þá að? – Nokkur atriði koma til athugunar:
• Menn taka stöðu gegn íslensku krónunni með því
að eiga stórfé á aflandsreikningi erlendis, fé sem ekki
á rætur í viðskiptum erlendis. Þá veikja menn gjald
eyrisstöðu Íslands og geta hagnast á fjármálaerfið
leikum sem verða kunna hér heima.
• Ef eigandi slíks fjár gegnir trúnaðarstöðu hérlendis
kann hann að vera vanhæfur í verkefnum, vegna hags
muna- og trúnaðarárekstra, líka sem maki málsaðila.
Þetta snertir fjármálakerfið, uppgjör slitabúa, skatta
mál, fjárfestingar o.s.frv. Alveg sérstaklega getur þetta
varðað ákvarðanir um afslætti, svo sem t.d. varðandi
stöðugleikaframlögin svonefndu.
• Leggja ber fram sérstakt skattframtal, svokallað
CFCframtal, um inneignir á aflandsreikningi erlendis.
Ella verða skattskil vart talin fullnægjandi.
• Með því að geyma fé sitt á aflandsreikningi
erlendis nýta menn forréttindi umfram aðstöðu
almennings, til að fá betri kjör, ávöxtunarkosti, jafnvel
skatta o.s.frv.
• Ef eigandi slíks fjár gegnir trúnaðarstöðu hérlendis
verður hann að gera vandaða grein fyrir innstæðum
sínum og maka síns. Ella kallar hann trúnaðarbrest
yfir sig, og þetta getur varðað upplýsingaskyldu.
• Almennt er það talið valda trúnaðarbresti ef
maður í trúnaðarstöðu verslar í laumi um inneignir
við maka sinn, t.d. þegar breytt er lögum um skatta,
skattskil, upplýsingamiðlun eða annað slíkt.
• Það veldur líka trúnaðarbresti ef maður verður
margsaga um einkafjármál sín eða reynir að þræta
fyrir þau.
Aflandsreikningar –
er nokkuð að þessu?
Jón Sigurðsson
fv. skólastjóri
Það veldur
líka trúnað-
arbresti ef
maður
verður
margsaga
um einka-
fjármál sín
eða reynir
að þræta
fyrir þau.
Styrkur Viðreisnar felst ekki síst í stöðu flokksins á miðju íslenskra stjórnmála. Það er engum vafa undirorpið að flokkurinn mun sækja fylgi til hægri og vinstri í alþingiskosningunum í nóvember.Tímasetningin er líka góð fyrir Viðreisn.
Flokkurinn býður fram í fyrsta sinn á sama tíma og allt
logar stafnanna á milli í Framsóknarflokknum og Sam
fylkingin er allt að því ónýtt pólitískt vörumerki þar sem
tíminn frá því að flokkurinn mældist yfir tíu prósentum
verður ekki mældur í mánuðum heldur árum.
Það er samt margt undirorpið óvissu fjórum vikum
fyrir kosningar. Við vitum ekki hvernig oddvitar Við
reisnar standa sig í kappræðum þótt þeir séu flestir með
afar fallegar ferilskrár. Þá vitum við ekki hversu mikil
neikvæð áhrif tengsl Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur
við Kaupþing banka mun hafa á árangur Viðreisnar í
kraganum. Þá hefur Þorsteinn Víglundsson um árabil
verið á háum launum við að gæta sérhagsmuna. Fyrst
fyrir Samtök álframleiðenda og síðan Samtök atvinnu
lífsins. Vera kann að það stuði einhverja kjósendur sem
gera kröfu um annars konar bakgrunn þegar pólitísk
forysta er annars vegar.
Ef Viðreisn verður í aðstöðu til að taka þátt í myndun
ríkisstjórnar að loknum kosningum bíður flokksins mjög
erfið prófraun. Hvaða styrk mun Viðreisn hafa til þess
að leiða kerfisbreytingar í landbúnaði og sjávarútvegi
almenningi til hagsbóta?
Sjálfstæðisflokkurinn hefur haft gnægð tækifæra til
kerfisbreytinga en forystumenn flokksins hafa fremur
kosið varðstöðu um óbreytt ástand. Þegar sjávarútvegur
inn er annars vegar er þessi afstaða mjög skiljanleg enda
skapar atvinnugreinin mikil verðmæti. Nýleg könnun
RÚV á hugðarefnum almennings í aðdraganda kosninga
leiðir í ljós að fólki finnst þetta ekki skipta miklu máli.
Þannig nefnir yfirgnæfandi meirihluti heilbrigðiskerfið
þegar spurt er hvaða mál eigi að leggja mesta áherslu á
eftir kosningar.
Mörgum finnst hins vegar þyngra en tárum taki að
hafa ekki val. Fólk vill búa við frelsi. Það vill geta keypt
grískan fetaost og danska skinku án mikillar fyrirhafnar
og án þess að setja sig á hausinn í leiðinni. Fólk fer í mat
vöruverslanir í útlöndum og veit að fjölbreytni og úrval
er ávísun á aukin lífsgæði. Margir eru jafnvel tilbúnir að
borga aðeins hærra verð fyrir íslenska mjólkurlítrann
í staðinn. Það er lítið endurgjald fyrir valfrelsi. Niður
stöður framangreindrar könnunar benda hins vegar til
þess að þetta sé ekki í forgangi hjá almenningi heldur
endurbætur á heilbrigðiskerfinu. Engu að síður er þetta
ofarlega á blaði hjá mörgum því þetta snertir bæði pyngj
una og gæði lífs. Þar liggja sóknarfæri Viðreisnar sökum
stefnu flokksins í landbúnaðar- og sjávarútvegsmálum.
Ef Viðreisn verður plástur á núverandi ríkisstjórnarsam
starf verður að meitla það kyrfilega í stjórnarsáttmálann
með skematískum hætti að stefnt verði að hækkun
veiðigjalda í sjávarútvegi og auknu frelsi við innflutning á
matvælum. Að öðrum kosti verður Viðreisn aldrei annað
en sykurlaus útgáfa af Sjálfstæðisflokknum. Og þá var
kannski betur heima setið en af stað farið.
Galopin staða
Ef Viðreisn
verður plástur
á núverandi
ríkisstjórnar-
samstarf verð-
ur að meitla
það kyrfilega
í stjórnar-
sáttmálann
með skema-
tískum hætti
að stefnt verði
að hækkun
veiðigjalda í
sjávarútvegi
og auknu frelsi
við innflutning
á matvælum.
30. OKTÓBER Í HÖRPU
GRAMMY
AWARDS
2XBRIT
AWARDS
MIÐASALA Á HARPA.IS
Í tengslum við eigin kjósendur
Ný könnun MMR sýnir megna
andstöðu við búvörusamningana
nýgerðu. Þá hefur því allavega
verið svarað með vísindalegum
hætti hvort menn séu ósáttir við
samningana eða ekki. Það er hins
vegar merkilegt að mesta and-
stöðuna er að finna hjá kjósendum
Vinstri grænna, Samfylkingar,
Pírata, Bjartrar framtíðar og Við-
reisnar. Yfirgnæfandi meirihluti
kjósenda þessara flokka eru á móti
samningunum. Því vekur athygli
að meirihluti þingmanna Vinstri
grænna og Samfylkingar ákvað
að sitja hjá við atkvæðagreiðslu í
þinginu um téða samninga. Er það
nú kannski til merkis um að vinstri
flokkarnir séu lítið í tengslum við
kjósendur sína.
Kosningar í nánd
Eldhúsdagsumræður voru með
hefðbundnu sniði í gær þar sem
þingmenn meirihlutans mærðu
störf ríkisstjórnarinnar í hástert
á meðan stjórnarandstæðingar
bentu á það sem miður hefur farið
á kjörtímabilinu. Panamahneyksli
núverandi formanns Framsóknar-
flokksins var mikið á milli tanna
stjórnarandstæðinganna en lítið
um það rætt meðal stjórnarsinna
eins og von var. Hins vegar er gott
fyrir land og þjóð að fá einstöku
sinnum umræðu um stefnu flokk-
anna sem sitja á Alþingi. Ljóst er
að komandi kosningabarátta mun
að litlu leyti snúast um það heldur
um þá atburðarás sem átti sér stað í
kjölfar Panamahneykslis þáverandi
forsætisráðherra.
sveinn@frettabladid.is
2 7 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D A G U r12 s k o Ð U n ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð
SKOÐUN
2
7
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:5
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
2
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
B
2
-C
E
8
4
1
A
B
2
-C
D
4
8
1
A
B
2
-C
C
0
C
1
A
B
2
-C
A
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
A
F
B
0
7
2
s
_
2
6
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K