Fréttablaðið - 27.09.2016, Síða 14
Aron einAr tæpur
Aron einar Gunnarsson, lands-
liðsfyrirliði í fótbolta, er meiddur
í kálfa og er óvíst að hann geti
verið með íslenska landsliðinu í
næstu leikjum strákanna okkar
í undankeppni HM 2018. Fyrir-
liðinn tognaði í kálfa í leik með
Cardiff gegn Leeds í síðustu
viku og verður ekki með Blá-
fuglunum í kvöld og væntan-
lega ekki um helgina. Aron á
að koma til móts við íslenska
liðið á sunnudaginn en á mánu-
daginn hefjast æfingar fyrir leikina
tvo gegn Finnum og tyrkjum sem
báðir fara fram í Laugardalnum.
Leikurinn gegn Finnlandi er á
fimmtudaginn í næstu viku en
leikurinn gegn tyrklandi
verður sunnudaginn
9. október. Í samtali
við vefsíðuna 433.is
sagðist Aron einar
vera vongóður um
að spila leikinn
gegn Finnlandi
en ekki þarf að
útskýra fyrir
neinum mikil-
vægi fyrirliðans
á miðju íslenska
liðsins.
Í dag
18.15 Meistarad. Messan Sport
18.40 Dortmund - Real M. Sport2
18.40 D. Zagreb - Juventus Sport3
18.40 CSKA - Tottenham Sport4
18.40 Leicester - Porto Sport5
20.45 Meistaramörkin Sport
Fæ ekki skilið afhverju
Valarenga notaði ekki Elías
Már ef drengurinn fær að
spila þá skorar hann
Konráð Ólafur
@Konnieysteins
Nýjast
Burnley 2 – 0 Watford
Efri hlutinn
Man. City 18
Tottenham 14
Arsenal 13
Liverpool 13
Everton 13
Man Utd 12
C. Palace 10
Chelsea 10
Southampton 8
West Brom 8
Neðri hlutinn
Watford 7
Leicester 7
Burnley 7
Hull 7
Bournemouth 7
M.Boro 5
Swansea 4
West Ham 3
Stoke 2
Sunderland 1
Enska úrvalsdeildin
NICOTINELL LYFJATYGGIGÚMMÍ
Nicotinell Classic/Fruit/Icemint/Lakrids/Mint/Spearmint/Tropical Fruit lyfjatyggigúmmí. Inniheldur nikótín. Til meðferðar á tóbaksfíkn en lyfið dregur úr nikótínþörf og fráhvarfseinkennum og það auðveldar þar með reykingarfólki sem vill hætta að reykja, að hætta og auðveldar þeim sem ekki geta hætt eða eru tregir til þess, að draga úr
reykingum. Notkun hjá fullorðnum 18 ára og eldri: Tyggið hægt þar til finnst sterkt bragð, látið tyggigúmmíið hvíla á milli kinnar og tannholds, tyggið aftur þegar bragðið dofnar, endurtakið í um 30 mínútur. Ekki má kyngja lyfjatyggigúmmíinu. Skammta skal ákvarða út frá því hversu háður nikótíni einstaklingurinn er. Þú skalt nota
Nicotinell 4 mg ef þú ert með mikla nikótínþörf, reykir fleiri en 30 sígarettur/sólarhring eða ef þér hefur ekki tekist að hætta að reykja með notkun 2 mg lyfjatyggigúmmís. Annars skaltu nota Nicotinell 2 mg ef reykt er minna en 20 sígarettur á sólarhring. Ef þú færð aukaverkanir við notkun stærri skammtsins skaltu íhuga minni skammt
í staðinn. Tyggja skal eitt stykki Nicotinell lyfjatyggigúmmí við reykingaþörf. Venjuleg notkun er 8-12 stykki á sólarhring, þó ekki fleiri en 15 stykki af 4 mg lyfjatyggigúmmíi og 25 stykki af 2 mg lyfjatyggigúmmíi á sólarhring. Þegar hætta á reykingum: Lengd meðferðar er einstaklingsbundin en varir yfirleitt í a.m.k. 3 mánuði, þá skal
draga úr fjölda stk. smám saman. Meðferð skal hætt þegar neyslan er komin niður í 1-2 stk á sólarhring. Þegar dregið er úr reykingum: Nota skal Nicotinell lyfjatyggigúmmí þegar upp kemur reykingaþörf til að lengja reyklaus tímabil og draga þannig úr reykingum eins og mögulegt er. Ef ekki hefur dregið úr fjölda sígaretta á sólarhring
eftir 6 vikur skal leita faglegrar ráðgjafar. Reykingum skal hætt um leið og einstaklingurinn er reiðubúinn til þess, þó ekki síðar en eftir 6 mánaða meðferð. Leita skal faglegrar ráðgjafar ef ekki hefur tekist að hætta reykingum eftir 9 mánaða meðferð. Venjulega er ekki mælt með reglulegri notkun Nicotinell lyfjatyggigúmmís lengur en í
eitt ár. Sumir, sem eru hættir að reykja, gætu þó þurft lengri meðferð til þess að forðast að byrja aftur að reykja. Geyma skal afgangs lyfjatyggigúmmí þar sem reykingaþörf getur skyndilega komið upp aftur. Ráðgjöf getur aukið líkurnar á því að reykingafólk hætti að reykja. Samtímis neysla á súrum drykkjum t.d. kaffi eða svaladrykkjum
getur dregið úr frásogi nikótíns í kinninni. Forðast skal súra drykki 15 mínútum fyrir notkun lyfjatyggigúmmísins. Frábendingar: Einstaklingar sem ekki reykja, eru með ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefnanna eða eru yngri en 18 ára eiga ekki að nota Nicotinell lyfjatyggigúmmí. Varnaðarorð og varúðarreglur: Ráðfærðu þig við lækni eða
lyfjafræðing áður en þú notar Nicotinell því ekki er víst þú megir nota lyfið ef þú: hefur fengið einhverja hjarta eða æðasjúkdóma, sykursýki, ofvirkan skjaldkirtil/nýrnahettur, ert með alvarlega skerta nýrna- og/eða lifrarstarfsemi, með bólgu eða sár í munni, koki, vélinda eða maga, barn á brjósti eða ert á meðgöngu. Einstaklingum með
gervitennur og þeim sem eiga í erfiðleikum með að tyggja tyggigúmmí er ráðlagt að nota önnur lyfjaform nikótínlyfja. Sérstakar varúðarreglur varðandi hjálparefni: Nicotinell inniheldur sorbitól (E420): Sjúklingar með arfgengt frúktósaóþol, sem er mjög sjaldgæft, skulu ekki nota lyfið. Tyggigúmmígrunnurinn inniheldur bútýlhýdroxýtólúen
(E321) sem getur valdið staðbundinni ertingu slímhúðar. Inniheldur natríum sem þarf að hafa í huga hjá sjúklingum á saltskertu fæði. Sumar bragðtegundir innihalda auk þess maltitól. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Sjá notkunarleiðbeiningar í fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Jafnvel lítið magn af nikótíni er hættulegt börnum og getur valdið alvarlegum einkennum eða dauða. Markaðsleyfis hafi: Novartis Consumer Health S.A. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ
Ertu að hætta að reykja?
Veistu hvaða bragðtegund hentar þér?
Fæst í 6 bragðtegundum!
Nicotinell-6-bragdtegundir-5x10 copy.pdf 1 17/12/15 11:25
FimleiKar Íslenska kvennalands-
liðið í hópfimleikum ætlar sér að
endurheimta gullið sem það missti
til Svíþjóðar þegar eM fór fram hér
á landi fyrir tveimur árum. Ísland
varð evrópumeistari fyrst árið
2010 en varði titilinn tveimur árum
síðar.
Í ár fer mótið fram í Maribor í
Slóveníu, dagana 12.-15. október,
og sendir Ísland lið til þátttöku
í fjórum af sex keppnisgreinum.
Kvenna- og stúlknalið Íslands eru
til alls líkleg og stefna á að berjast
um verðlaun en blönduð lið í full-
orðins- og unglingaflokki ætla sér
einnig að ná langt.
„Möguleikar okkar eru góðir,“
sagði Andrea Sif pétursdóttir, fyrir-
liði kvennalandsliðsins. „en við
ætlum að einbeita okkur fyrst og
fremst að frammistöðunni. Fyrsta
verk okkar verður að komast úr
undanúrslitunum og svo ætlum við
að komast á verðlaunapall.“
Keppnislið Íslands fór í gegn
um æfingar sínar fyrir fullu húsi
áhorfenda í Versölum í Kópavogi á
sunnudagskvöld. Þar fengu kepp-
endur forsmekkinn að því sem
koma skal í Slóveníu.
„Það er fullt sem fór úrskeiðis og
við fengum því dýrmæta reynslu.
Það er sem betur fer nægur tími
til að bæta okkur og fínpússa
æfingarnar,“ sagði Glódís Guð-
geirsdóttir. „Það var gott að fá smá
stress í okkur og koma adrenalíninu
af stað. Það hjálpar manni að stilla
sig inn á eM.“
Blönduðu keppnisliðin hafa
styrkst mikið undanfarin ár en
unglingaliðið vann til bronsverð-
launa á eM fyrir tveimur árum.
Framfarir karlanna í liðunum hafa
verið miklar á síðustu misserum
og þá fékk fullorðinsliðið góðan
liðsstyrk er norma Dögg róberts-
dóttir kom inn í liðið. „Ég hafði
verið sautján ár í áhaldafimleikum
og það var orðið tímabært að prófa
eitthvað nýtt. Hér eru allir að hjálp-
ast að og þetta hefur verið ofboðs-
lega skemmtileg reynsla fyrir mig,“
sagði norma Dögg sem hefur verið
í fremstu röð í íslenskum áhalda-
fimleikum um árabil.
Á sunnudag hófst einnig fjár-
öflunarátak, Vertu meMm, þar sem
skorað er á fyrirtæki að styðja við
íslensku keppendurna, sem bera
sjálfir kostnað af þátttöku sinni á
mótinu – alls 350 þúsund á hvern
keppanda.
„Við höfum verið að selja klósett-
pappír, hárnæringu og sjampó en
það þarf meira til. Það munar mikið
um styrkina,“ sagði Andrea Sif en
Sólveig Jónsdóttir, framkvæmda-
stjóri Fimleikasambands Íslands,
segir að átakið hafi farið vel af stað.
„Við bindum vonir við að fá enn
meiri viðbrögð á næstu dögum og
að kostnaður keppenda lækki um
leið umtalsvert,“ sagði Sólveig.
eirikur@frettabladid.is
Ætla að endurheimta gullið
Evrópumeistaramótið í hópfimleikum fer fram eftir rúmar tvær vikur í Slóveníu. Ísland sendir fjögur lið til
keppni en kostnaður hvers keppanda við að taka þátt fyrir hönd þjóðarinnar er 350 þúsund krónur.
Íslensku keppnisliðin hafa æft af kappi síðastliðnar vikur og mánuði fyrir EM í Slóveníu sem hefst eftir rúmar tvær vikur. FRéTTAbLAðið/EyþóR
2 7 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 Þ r i Ð J U D a G U r14 s p o r t ∙ F r É t t a b l a Ð i Ð
sport
2
7
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:5
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
B
2
-B
A
C
4
1
A
B
2
-B
9
8
8
1
A
B
2
-B
8
4
C
1
A
B
2
-B
7
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
7
2
s
_
2
6
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K