Fréttablaðið - 27.09.2016, Síða 19

Fréttablaðið - 27.09.2016, Síða 19
Klettur hefur um árabil verið leiðandi félag í sölu og þjónustu á breiðri línu vinnuvéla og vöru- flutninga- og hópferðabíla auk annarra tækja og tóla. Félagið hefur undanfarin ár selt Scania flutningabifreiðar með góðum árangri en um þessar mundir er Scania einmitt að kynna nýjar línur flutningabifreiða sem eru sérstaklega sniðnar að langflutn- ingum að sögn Bjarna Arnarson- ar, sölustjóra fyrirtækisins. „Nýju línurnar voru fyrst kynntar á stórri flutningasýn- ingu í Svíþjóð nú í lok ágúst og Evrópufrumsýningin verður í þessari viku á IAA bílasýning- unni í Hannover. Um er að ræða R og S gerðirnar en þær henta mjög vel til langflutninga og fyrir einyrkja og fyrirtæki þar sem ökumaður dvelur langtím- um saman í ökutækinu. Báðar týpurnar eru með alveg nýjum húsgerðum. Til að mynda er S gerðin með sléttu gólfi sem kemur sér afar vel þegar dvalið er í bílnum til lengri tíma.“ Glæsileg hönnun Með báðum gerðunum næst fram enn frekari eldsneytissparnað- ur að sögn Bjarna, eða allt að 5%. „Mikið var lagt upp úr að ná fram- úrskarandi loftflæði en Scania er sennilega með fullkomnasta vind- hermi sem völ er á fyrir stóra bíla. Einnig má geta þess að hönnunin á bílunum var unnin í samvinnu við hönnunardeild Porsche en bæði merkin eru undirmerki Volks- wagen Group.“ Að sögn Bjarna er húsið helsta breytingin frá fyrri gerðum auk þess sem einnig eru breyting- ar á fjöðrunarbúnaði og stýris- gangi. „Mikil vinna var lögð í að gera vinnuumhverfi ökumanns óaðfinnan legt út frá vinnuvist- fræðilegum sjónarmiðum. Stað- setning ökumanns er bæði flutt framar og örlítið til hliðar ásamt því að gluggapóstar eru þynnri en var áður sem gerir sjónarhorn öku- mannsins mun betra. Innréttingar eru auk þess úr vönduðu efni og er óhætt að segja að ekkert hafi verið til sparað.“ Vélar sem eru í boði eru 13 og 16 lítra og spanna frá 410-730 hest- öfl. Samhliða þessari kynningu kemur einnig ný 500 hestafla 13 lítra útfærsla inn í vélaflóruna að sögn Bjarna. „Gírkassinn er auk þess með nýjustu gerð af sjálf- virkri Oticruse gírskiptingu með öxulbremsu sem flýtir fyrir öllum skiptingum. Scania Retarder drif- línuhemill er nú 4.100 Nm í heml- unargetu sem eykur öryggi og meðalhraða til muna.“ Merkileg nýjung Nú er einnig í boði ýmis þjónusta fyrir viðskiptavini að sögn Bjarna, t.d. flotastjórnunarkerfi og ökurita- vistun. „Þá má nefna nýjung sem er villulestur úr kerfi bifreiðar- innar yfir netið. Þannig geta bif- reiðarnar verið nánast hvar sem er á landinu og starfsmaður á verkstæði okkar í Reykjavík séð hvaða villur koma upp. Um leið er hægt að panta vara- hluti áður en bíllinn kemur í bæinn eða þurrka út villukóðann og end- urræsa bílinn í sumum tilfellum.“ Klettur hefur ávallt lagt mik- inn metnað í að þjónusta við- skiptavini sína sem best að sögn Bjarna enda oft mikið undir. „Við bjóðum t.d. upp á útkallsþjónustu á verkstæði, í varahlutum og í hjól- barðaþjónustu. Einnig eru viður- kenndir þjónustuaðilar Scania víða úti á landsbyggðinni.“ Klettur er til húsa að Klettagörðum 8-10 í Reykjavík. Allar nánari upp- lýsingar má finna á www.klettur.is Nýjar línur flutningabifreiða frá Scania Um þessar mundir er Scania að kynna tvær nýjar línur flutningabifreiða sem eru sérstaklega sniðnar að langflutningum. Báðar innihalda nýjar húsgerðir og betri stjórn á eldsneytiseyðslu auk þess sem nú er boðið upp á villulestur úr kerfi bifreiðarinnar yfir netið. Vörubílar & vinnuvélar 27. september 2016 KyNNiNgARblAð Klettur| Hekla | RAG | Askja | Brimborg | Verkfæri ehf. | Kraftur | Vinnuvélar | Kraftvélar Nýju línurnar í flutningabifreiðum frá Scania voru kynntar í Svíþjóð í lok ágúst. Um er að ræða R og S gerðirnar sem þykja stórglæsilegar og hafa vakið mikla athygli. Mikil vinna var lögð í að gera vinnuumhverfi ökumanns óaðfinnanlegt. 2 7 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :5 2 F B 0 7 2 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A B 2 -8 9 6 4 1 A B 2 -8 8 2 8 1 A B 2 -8 6 E C 1 A B 2 -8 5 B 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 7 2 s _ 2 6 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.