Fréttablaðið - 27.09.2016, Síða 20
Útgefandi
365 miðlar ehf. | Skaftahlíð 24 | s. 512 5000 | fax 512 5301
UmSjónarmaðUr aUglýSinga
Jón Ívar Vilhelmsson| jonivar@365.is | s. 512-5429
ÁbyrgðarmaðUr
Svanur Valgeirsson
Veffang
visir.is
Félag vinnuvélaeigenda var stofn-
að í desember árið 1953 á skrif-
stofu Almenna byggingafélagsins
hf. í Reykjavík. Tilgangur félags-
ins í upphafi var að efla samstarf
vinnuvélaeigenda og gæta sameig-
inlegra hagsmuna þeirra. Stofn-
endur voru níu einstaklingar frá
nokkrum fyrirtækjum, flestum
af höfuðborgarsvæðinu og var
Jón G. Halldórsson frá Almenna
byggingafélaginu fyrsti formaður
stjórnar félagsins og gegndi stöð-
unni í rúm 34 ár.
Haukur Júlíusson lét af for-
mennsku stjórnar Félags vinnu-
vélaeigenda í vor. Hann segir
að framkvæmdir á vegum hers-
ins á Keflavíkurflugvelli hafi
vissulega átt stóran þátt í stofn-
un félagsins en þó hafi vinnuvél-
ar verið notaðar hér á landi árin
áður. „Það ágætt að halda því til
haga að fyrstu ræktunarvélarnar
komu hingað alls ótengdar öllum
stríðsrekstri en það var á árunum
1942-43 þegar skurðgröfur og ýtur
komu til landsins.“
Þensla skapast
Með stofnun Sameinaðra verk-
taka, og vinnu þeirra fyrir banda-
ríska verktaka á Keflavíkurflug-
velli, skapaðist þó þensla á vinnu-
vélamarkaði og þörfin á að halda
reiðu á hlutunum jókst. „Árin
fyrir stríð voru þó vinnuvélar í
notkun hér á landi en stór hluti
þeirra var í eigu ríkisins eða í fé-
lagslegri eigu. Ræktunarsambönd
fara síðan að eignast vinnuvélar
um miðjan fimmta áratug síðustu
aldar, ýmis félög í byggingabrans-
anum líka og einstaklingar sömu-
leiðis.“
Félagsmenn voru annars vegar
einyrkjar sem áttu eigin vél og
unnu á henni auk stærri fyrir-
tækja og verktaka. Árið 1960 voru
félagsmenn um 20 talsins en fjölg-
aði hægt og rólega næstu árin
og töldu um 160 manns fimmtán
árum síðar.
Almenn hagsmunagæsla og út-
gáfa gjaldskrár var þungamiðja
félagsins árum saman að sögn
Hauks. „Tilgangurinn með út-
gáfu gjaldskrár var upphaflega
að láta reikna út rekstrarkostnað
fyrir vinnuvélar en ekki síður til
að veita upplýsingar um verðbreyt-
ingar sem urðu á rekstrarkostnaði
vélanna yfir tiltekið tímabili.“
Gjaldskráin merkileg
Fyrstu áratugina var gjaldskráin
gefin út 1-2 sinnum á ári en verð-
bólgan fór á fulla ferð undir lok
sjöunda áratugarins og árið 1980
var verðskráin gefin út nokkrum
sinnum á ári. „Þá reiknaði félag-
ið út rekstrarkostnaðinn og birti
í gjaldskránni ásamt tölum sem
verðlagseftirlitið samþykkti. Þar
gætti oft mikils misræmis milli
þeirra talna, vinnuvélaeigendum
í óhag og gat þar munað allt að 50
af hundraði þegar verst lét.“ Gjald-
skráin var merkilegt gagn að sögn
Hauks og var m.a. mikið notuð við
útboðsgerð af hálfu verkkaupa og
tilboðsgerð verktaka.
Lagaumhverfið breyttist seinna
meir og varð þá óheimilt að gefa
út gjaldskrá. Í kjölfarið má segja
að almenn hagsmunagæsla ásamt
fræðslumálum og umsögnum um
lagafrumvörp hafi verið helstu
verkefni félagsins síðan. „Svo
hefur drjúgur tími farið í að að-
stoða vinnuvélaeigendur við að
koma sér upp viðeigandi gæða-
kerfi enda sú krafa gerð af hálfu
verkkaupa. Einnig höfum við veitt
aðstoð vegna útboða á tryggingum,
staðið fyrir námskeiðum, haldið
árlegt útboðsþing, haldið úti vefn-
um vinnuvel.is og svo má nefna að
mikil vinna fór í endurútreikning
erlendu lánanna á sínum tíma.“
fjölbreyttari starfsemi í dag
Þegar Félag vinnuvélaeigenda var stofnað um miðja síðustu öld var almenn hagsmunagæsla og útgáfa gjaldskrár þungamiðja
starfseminnar. Með tímanum hefur það hlutverk breyst og í dag er starfsemi félagsins fjölbreyttari og víðtækari en áður.
Starri freyr
jónsson
starri@365.is
Þessi Caterpillar grafa frá 1964 hefur lokið verkefnum sínum.
Önnur af tveimur elstu dragskóflugröfum landsins frá 1942.
Hús við bústaðaveg í reykjavík rifið árið 1971. mynd/dagblaðið VíSir
110 tonna krani sem fluttur var til landsins árið 1983 var sá stærsti sinnar
tegundar. Hér er hann hífður upp á hafnarbakkann. mynd/SVeinn ÞOrmóðSSOn
VÖrUbílar Og VinnUVélar Kynningarblað
27. september 20162
2
7
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:5
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
B
2
-8
E
5
4
1
A
B
2
-8
D
1
8
1
A
B
2
-8
B
D
C
1
A
B
2
-8
A
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
7
2
s
_
2
6
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K