Fréttablaðið - 27.09.2016, Síða 22

Fréttablaðið - 27.09.2016, Síða 22
Hrönn segir hreina tilviljun hafa ráðið því að hún gerðist flutninga- bílstjóri. „Ég byrjaði að keyra hjá Ölgerðinni árið 2000. Þar vant- aði meiraprófsbílstjóra og ég var send í próf. Síðan ílengdist ég bara í þessu. Á þeim tíma var ég aðeins með grunnskólamenntun og sá þetta sem tækifæri til að fá hærri laun. Í dag held ég að þau þyki því miður ekki eftirsóknarverð.“ Hrönn færði sig frá Ölgerðinni til Samskipa og þaðan til Eimskips. „Ég var fyrsta konan sem starfaði sem flutningabílstjóri hjá báðum þessum stóru skipafélögum. Í upp- hafi ætluðu menn reyndar ekki að vilja ráða konu en það varð úr og hafa þó nokkrar kynsystur mínar fylgt í kjölfarið.“ Aðspurð segist Hrönn hafa þurft að berjast fyrir tilveru sinni í fyrstu. „Mér fannst ég þurfa að standa mig rosalega vel til að vera samþykkt og fékk yfir mig ýmsar athugasemdir og skítakomment. Oft var ég alveg við það að gefast upp. Í dag bítur hins vegar ekkert á mig enda veit ég að ég er alveg jafn góður bílstjóri og karlarnir og gef þeim ekkert eftir.“ Í dag starfar Hrönn hjá fyrir- tækinu Akstur & köfun á Patreks- firði og er aðallega í flutningi á ferskum fiski. „Ég er fædd og uppalin á Bíldudal og er svolítið að loka hringnum með því að gera út hér á sunnanverðum Vestfjörð- um,“ segir Hrönn sem keyrir þó landshorna á milli. Hrönn segir margt hafa breyst á þeim árum sem hún hefur starfað við akstur. „Flutningar hafa auk- ist mikið. Umferðin hefur almennt þyngst og að mínu mati stendur vegakerfið ekki undir henni. Veg- irnir eru víða ónýtir og varla færir jeppum. Ef við tökum í jákvæðan streng þá hefur konum í faginu fjölgað þó hlutfallið sér reyndar ekki ýkja hátt en mér finnst það ánægjulegt.“ Sjálf segist Hrönn hafa reynt að hætta síðastliðin sex ár. „Það gengur ekkert enda mikil eftir- spurn eftir reyndum bílstjórum.“ En hvernig er þetta starf? „Það felur í sér mikla einveru og þér þarf að líka ágætlega við sjálfa þig. Þú þarft að geta haft ofan af fyrir þér og í mínu tilfelli hefur það gengið vel. Ég hlusta mikið á skáld- sögur, reyfara og tónlist en svo líður mér líka voða vel í þögninni og keyri ég oft heilu og hálfu leið- irnar án þess að hlusta á nokkuð. Líður vel í þögninni Hrönn Arnfjörð hefur starfað sem flutningabílstjóri í sextán ár. Hún var fyrsti kven- bílstjórinn sem tók til starfa hjá bæði Samskipum og Eimskip og þurfti að taka á öllu sínu til að sanna sig í karllægum heimi. Í dag gefur hún körlunum ekkert eftir. Mér fannst ég þurfa að standa mig rosalega vel til að vera samþykkt og fékk yfir mig ýmsar athugasemdir og skíta- komment. Oft á tíðum var ég alveg við það að gefast upp. Í dag bítur hins vegar ekkert á mig enda veit ég að ég er alveg jafn góður bílstjóri og karlarnir og gef þeim ekkert eftir. Hrönn Arnfjörð Vera Einarsdóttir vera@365.is Hrönn segir nauðsynlegt að atvinnubílstjórum líki nokkuð vel við sjálfa sig enda fylgir starfinu mikil einvera. Hrönn hefur alltaf verið mikill Scania- aðdáandi en ekur nú Volvo 750. „Það er eiginlega toppurinn og ég er við það að læknast af Scania-dellunni.“ Bíla- og tækjafjármögnun Landsbankans landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn Landsbankinn býður fyrirtækjum hagkvæma fjármögnun á bifreiðum, atvinnutækjum, vélum og ýmsum rekstrartækjum. VörubÍLAr Og VinnuVéLAr Kynningarblað 27. september 20164 2 7 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :5 2 F B 0 7 2 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A B 2 -A 2 1 4 1 A B 2 -A 0 D 8 1 A B 2 -9 F 9 C 1 A B 2 -9 E 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 7 2 s _ 2 6 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.