Fréttablaðið - 27.09.2016, Qupperneq 28
„Ég var að endurnýja en ég var á
minni bíl áður. Ég fékk Atego 1024,
sendibíl með kassa og lyftu, af-
hentan í janúar og er mjög ánægð-
ur með hann,“ segir Ríkharður
Traustason sendibílstjóri. Hann
hefur ekið sendibíl í þrjátíu ár
og yfirleitt keypt Mercedes-Benz
þegar komið hefur að því að endur-
nýja vinnubílinn.
„Ég hef aðallega haldið mig við
Mercedes-Benz og hef kunnað vel
við þjónustuna hjá umboðinu. Ég
þarf náttúrlega að nota bílinn á
hverjum degi og þeir hafa sinnt
honum hvað varðar viðgerðir og
viðhald, þegar þess hefur verið
þörf, bæði fljótt og vel,“ segir Rík-
harður.
Hann segir bílinn hafa reynst
afar vel þessa mánuði sem hann
hefur þeyst á honum milli staða.
„Ég er ánægður með bílinn,
hann hefur reynst mjög vel og er
í alla staði vel heppnaður. Hann
uppfyllir allar mínar kröfur í það
minnsta. Skiptingin er góð og
hann er afar rúmgóður, þá tekur
hann rúmlega 30 rúmmetra í
flutning. Ég er á ferðinni allan
daginn en það er ekkert þreytandi
í þessum bíl.“
Hvað ertu helst að flytja?
„Ég flyt hvað sem er, ætli aðal-
flutningarnir hjá mér séu ekki á
brauði,“ segir Ríkharður sposkur.
„Ég er með verktaka í fleiri verk-
efnum sem eru þá á eigin bílum. Ég
er einn á þessum bíl,“ segir hann og
lætur vel af sendibílstjórastarfinu.
Það sé síður en svo leiðigjarnt að
aka bíl daginn út og inn í tugi ára.
„Þetta er alls ekki verra en hvað
annað. En jú, það er ekki verra að
hafa gaman af því að keyra og svo
er gott að endurnýja bílinn öðru
hvoru. Það lífgar upp á tilveruna.“
Uppfyllir allar
mínar kröfur
Ríkharður Traustason sendibílstjóri fékk afhentan
nýjan Atego sendibíl frá bílaumboðinu Öskju í janúar
síðastliðnum. Hann er hæstánægður með bílinn og
hreint ekki orðinn þreyttur á akstrinum sem staðið
hefur sleitulaust í þrjátíu ár.
„Askja hefur náð góðum árangri í
sölu á Atego sendibílum á undan-
förnum árum og í tilefni þess
hefur framleiðandinn, Mercedes-
Benz, tekið höndum saman við
Öskju. Fram að áramótum verð-
ur Atego bíllinn á betri kjörum en
áður,“ segir Eiríkur Þór Eiríksson,
sölumaður vörubifreiða hjá bíla-
umboðinu Öskju.
Hrunið setti ákveðið strik í
reikninginn hvað varðar endur-
nýjun á atvinnubílum. Því hefur
byggst upp mikil þörf á endurnýj-
un í þessum geira að sögn Eiríks.
Það sé orðið áríðandi að yngja upp
flotann, nýrri bílar séu sparneytn-
ari og mengi minna. Því sé til mik-
ils að vinna.
„Auk þess verða bílarnir stöð-
ugt fullkomnari og endalaust
verið að reyna að gera betur hvað
varðar vinnuumhverfi ökumanns-
ins,“ segir Eiríkur og hvetur
áhugasama til að panta reynslu-
akstur.
„Askja er með Atego sýningar-
bíl sem hægt er að fá að reynslu-
aka. Einnig er boðið upp á að fá
okkur í heimsókn í fyrirtæki til að
kynna nýjan Atego og bjóða upp á
reynsluakstur.“
Hægt er að panta reynsluakstur í
síma 590-2120.
Atego – fyrir atvinnulífið
Atego sendibílar þjóna öllum geirum atvinnulífsins að sögn Eiríks Þórs Eiríkssonar, sölumanns vörubifreiða hjá bílaumboðinu Öskju,
umboði fyrir Mercedes-Benz á Íslandi, enda vinsælasti sendibíllinn af 8-15 tonna stærð.
Ríkharður Traustason sendibílstjóri fékk afhentan nýjan Atego 1024 sendibíl í janúar síðastliðnum. Mynd/EyÞóR
Bíllinn er rúmgóður og þægilegur í akstri. „Bíllinn uppfyllir allar mínar kröfur,“ segir Ríkharður.
„Skiptingin er góð og hann er afar
rúmgóður, þá tekur hann rúmlega 30
rúmmetra í flutning. Ég er á ferðinni
allan daginn en það er ekkert þreytandi
í þessum bíl.“
Eiríkur Þór stendur hér við
Mercedes-Benz Atego 1024
reynsluakstursbíl. Vörukassinn er frá
Vögnum & þjónustu ehf. Mynd/ASkjA
HEiTi á SÉRBlAði kynningarblað
27. september 201610
2
7
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:5
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
B
2
-D
D
5
4
1
A
B
2
-D
C
1
8
1
A
B
2
-D
A
D
C
1
A
B
2
-D
9
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
7
2
s
_
2
6
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K