Fréttablaðið - 27.09.2016, Page 34

Fréttablaðið - 27.09.2016, Page 34
Móses Halldórsson er sviðsstjóri hjá Ársæli og ber ábyrgð á rekstri bílaflotans. „Við erum með einn Man 26 tomma vörubíl, átta manna VW Transporter fólksflutninga- bíl, 14 manna Ford Econoline og tvo Nissan Patrol, breytta jeppa. Allir þessir bílar eru komnir til ára sinna. Einnig erum við með snjóbíl,“ útskýrir Móses og bend- ir á að bílarnir þurfi töluvert við- hald. „Snjóbíllinn og Transporter- inn eru báðir búnir að vera í við- gerð undanfarið.“ Móses segir að hver bíll hafi tvo umsjónarmenn. „Það er sjálfboða- liðastarf og menn eru misvirkir. Ég stýri verkefnastjórn á þessu sviði. Ætli ég sé ekki með þúsund tíma á ári í sjálfboðavinnu í þessu verkefni,“ segir hann. „Patrol jepparnir eru árgerðir 2007 og 2008 en til stendur að endurnýja tvo bíla í vetur.“ Þegar Móses er spurður hvort útgerðin á bílunum sé dýr, svar- ar hann því játandi. „Hins vegar munar miklu að hafa menn í sjálf- boðavinnu sem sjá um töluvert við- hald og gera fyrirbyggjandi að- gerðir. Við endurnýjuðum vöru- bílinn fyrir tveimur árum en hann er notaður til að flytja snjóbílinn í útköll. Sömuleiðis gagnast hann vel í flugeldasölu um áramót. Við notuðum hann í sumar til að flytja gáma inn á hálendið og við erum á leið til Akureyrar að sækja timb- ur fyrir rústasveitina okkar. Allir okkar bílar eru mikið notaðir,“ segir hann. Móses segir að ekki standi til að stækka bílaflotann vegna pláss- leysis í bækistöðinni í Gaujabúð á Seltjarnarnesi. „Það hefur verið í umræðunni að kaupa fjórhjól eða sleða en við höfum ekki nægjan- lega stórt húsnæði fyrir slík tæki. Jepparnir okkar þurfa að vera mjög vel útbúnir og breyttir fyrir jökla- ferðir, einnig þurfa þeir að hafa öflugan tölvu- og fjarskiptabún- að. Þeir þurfa að hafa forgangs- akstursljós og gul ljós svo eitthvað sé nefnt. Þetta er mikil útgerð,“ segir Móses. „Bílunum er breytt eftir að þeir koma til landsins,“ segir hann enn fremur. Landsmenn njóta síðan góðs af þessu góða sjálf- boðaliðastarfi og fagna því að sveit- in sé vel búin tækjum og tólum. Vel útbúnir bílar hjá Ársæli Björgunarsveitin Ársæll er öflug sveit frækinna manna og kvenna. Fyrir utan stóra og verklega bíla hefur sveitin slöngubáta og harðbotna björgunarbát til umráða auk björgunarskips. Allur búnaður er sérhæfður til leitar- og skyndihjálpar. Ætli ég sé ekki með þúsund tíma á ári í sjálfboðavinnu í þessu verkefni. Móses Halldórsson Elín Albertsdóttir elin@365.is Móses Halldórsson, sviðsstjóri hjá Björgunarsveitinni Ársæli, stendur hér við breyttan Nissan Patrol. MYND/GVA VöruBílAr oG ViNNuVélAr Kynningarblað 27. september 201616 2 7 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :5 2 F B 0 7 2 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A B 2 -B 0 E 4 1 A B 2 -A F A 8 1 A B 2 -A E 6 C 1 A B 2 -A D 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 7 2 s _ 2 6 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.