Fréttablaðið - 27.09.2016, Síða 43
„Nú um áramótin taka gildi nýjar
reglur frá Evrópusambandinu sem
gera strangari mengunarkröfur til
vörubíla en verið hefur. Þá þurfa
allir framleiðendur að koma með
vélar sem uppfylla þennan staðal
sem kallast Euro 6C en var áður
Euro 6,“ útskýrir Guðmundur
Bjarnason, sölumaður hjá Krafti,
sem hefur haft söluumboð fyrir
MAN hér á landi frá upphafi.
„Af þessu tækifæri hafa þeir
hjá MAN gripið tækifærið og
koma þeir með vélar sem upp-
fylla þessar kröfur um minni út-
blástursmengun en eru kraftmeiri
um leið og hestöflunum fjölgar um
tuttugu frá því sem verið hefur í
þessum stóru bílum. Í stærstu bíl-
unum höfum við verið með 520 og
560 hestafla mótora sem verða
núna 540 og 580 hestöfl. Svo bætist
við einn mótor sem er 640 hestöfl.“
Guðmundur bætir við að sömu
reglur gildi hér á landi og gilda í
ríkjum Evrópusambandsins; allir
bílar sem fluttir verða inn eftir
áramót þurfa að uppfylla þennan
nýja staðal til þess að þeir fáist
skráðir, en allir nýir bílar frá
MAN gera. Hann nefnir líka að
nýju bílarnir verði sparneytnari
en áður enda hafa framleiðendur
lagt áherslu á að svo verði.
Nýju MAN bílarnir hafa fengið
lítils háttar andlitslyftingu að utan
og að innan gefa hlýir litir ásamt
nýjum efnum og bólstrun í sætum
nýja módelinu ferskt útlit. „Aðal-
atriðin eru eins og í fyrri útgáfum
af bílunum. Breytingarnar eru í
raun bara til þess að það sjáist að
bíllinn sé nýr,“ segir Guðmundur í
léttum dúr.
MAN líka með sendibíla
Það eru fleiri nýjungar á leiðinni
frá MAN en á IAA sýningunni
sem nú stendur yfir í Hannover í
Þýskalandi verða nýir sendibílar
og minni flokkabílar kynntir. Þetta
er í fyrsta sinn sem MAN býður
upp á sendibíla og minni flokka-
bíla. Fram að þessu voru 7,5 tonn-
in það minnsta sem MAN bauð upp
á, en nú verða það þrjú tonn. Með
TGE kemur léttflutningabíll í hóp
fjölda milli- og þungaflutninga-
bifreiða. „Með tilkomu TGE verð-
ur þungasvið MAN frá 3 tonnum
upp í 44. MAN er að þróast í alls-
herjar þjónustuaðila þegar kemur
að því að veita lausn á öllum flutn-
ingsverkefnum. Með TGE mun
MAN veita alla þá þjónustu sem
viðskiptavinir þeirra þekkja frá
stærri bifreiðaflokkunum yfir
í sendibifreiðaflokkinn. Besta
lausnin fyrir viðskiptavininn er
alltaf aðaláherslan,“ segir Guð-
mundur. Hann bætir við að auk
lokaðs sendibíls og vinnubíls, sé
fjöldi möguleika á yfirbyggingum
aukinn með grindarbílum með ein-
földu húsi eða flokkahúsi. „Flokka-
húsið verður fáanlegt í fjölda út-
færslna. Í hinum nýja TGE verða
tvær hjólhafsútfærslur, þrjár þak-
hæðir og þrjár bíllengdir í boði.“
Sala á MAN TGE hefst í mars á
næsta ári og framleiðsla fer í gang
í apríl. Fyrstu löndin til að fá TGE
eru Þýskaland, Austurríki, Sviss
og Holland. Fyrstu afhendingar
í þeim löndum eru tveimur mán-
uðum eftir að framleiðsla hefst.
Önnur lönd innan Evrópu fá TGE
afhenta síðar og verður hann lík-
lega til sölu hér á landi árið 2018.
Fimmtíu ára afmæli Krafts
Kraftur hefur eins og áður segir
flutt MAN bíla til landsins frá upp-
hafi. Í nóvember fagnar fyrirtæk-
ið fimmtíu ára afmæli sínu en það
hefur alltaf verið í eigu sömu fjöl-
skyldunnar. „Við ætlum að fagna
þessum tímamótum með veislu-
höldum þegar þar að kemur. Ann-
ars er nóg að gera hjá okkur þessa
dagana og finnum við fyrir meiri
eftirspurn eftir nýjum bílum. Það
hefur verið uppsveifla í þessu á
þessu ári og því síðasta. Menn
eiga þó meira sjálfir í bílunum en
áður tíðkaðist og þurfa því ekki að
taka jafn há lán og áður. Það er því
óhætt að segja að fólk hafi lært af
reynslunni,“ segir Guðmundur.
Kraftmeiri
og umhverfis-
vænni bílar
frá MAN
Nýir, umhverfisvænni, kraftmeiri og sparneytnari
vörubílar frá MAN koma á markað um næstu
áramót. 2017 módelin frá MAN verða allt upp í 640
hestöfl og uppfylla nýja staðla um útblástur.
Guðmundur Bjarnason sölumaður hjá
Krafti. MYND/ANTON BRINK
Allir bílar sem fluttir verða inn eftir áramót þurfa að uppfylla nýjan staðal til þess
að þeir fáist skráðir.
2017 módelin frá MAN verða allt upp í 640 hestöfl. Þeir eru umhverfisvænni og
sparneytnari en eldri gerðir.
Nýju bílarnir frá MAN hafa fengið smá-
vegis andlitslyftingu.
Kraftur hefur flutt MAN bíla til landsins frá upphafi. Í nóvember fagnar fyrirtækið
fimmtíu ára afmæli sínu en það hefur alltaf verið í eigu sömu fjölskyldunnar.
CW gildi útblástursins í MAN TGE er aðeins 0.33 og verður sparneytnasti bíllinn í
sínum flokki. Lágur viðgerðar- og viðhaldskostnaður er einnig heillandi.
Með þyngdarsvið frá þremur tonnum upp í 44 tonn mun MAN geta boðið upp á fjölbreytt úrval þjónustu- og flutningabifreiða.
Kynningarblað VöRuBÍLAR OG VINNuVéLAR
27. september 2016 25
2
7
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:5
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
B
2
-D
8
6
4
1
A
B
2
-D
7
2
8
1
A
B
2
-D
5
E
C
1
A
B
2
-D
4
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
7
2
s
_
2
6
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K