Fréttablaðið - 27.09.2016, Síða 46
- Tekjur af flutningsiðnaðinum
í Bandaríkjunum eru um
650 milljarðar á ári sem gera
um fimm prósent af vergri
landsframleiðslu.
l Um 3,5 milljónir starfa
sem flutningabílstjórar
í Bandaríkjunum, þar
af 200.000 konur
l Um 15,5 milljónir flutningabíla
eru í umferð þar í landi
l 70% af allri frakt í Bandaríkjunum
eru flutt með flutningabílum
l Mest er flutt af fötum, mat,
húsgögnum og raftækjum
l Áætlað er að vöruflutningar í
Bandaríkjunum muni aukast um
21 prósent á næstu tíu árum
l Flest flutningafyrirtæki í
Bandaríkjunum teljast lítil og
eru ekki hluti af stórri keðju
l Flestir flutningabílar
eru dísilknúnir
l Vélin í hefðbundnum flutningabíl
er sex sinnum stærri en í fólksbíl
l Helsta ástæða óhappa og slysa
er þegar bílstjórinn heldur sig af
einhverjum ástæðum ekki inni á
sinni akrein. Helstu ástæður þess
eru of mikill ökuhraði, ef eitthvað
er að bremsunum, bílstjóri gerir
mistök og þreyta.
l Dauðaslysum þar sem
flutningabílar eiga í hlut hefur
fækkað um 32 prósent frá 1980 til
2014.
l Slysatíðni þar sem flutningabílar
eiga í hlut er 28 prósentum lægri
en slysatíðni þar sem fólksbílar
og önnur vélknúin ökutæki eiga í
hlut.
l Flutningabílstjórar í
Bandaríkjunum aka síður
undir áhrifum en bílstjórar
annarra vélknúinna ökutækja.
Árið 2014 áttu tvö prósent
flutningabílstjóra þátt í
dauðaslysum í umferðinni
undir áhrifum en 22 prósent
ökumanna fólksbíla sem áttu
þátt í dauðaslysum voru undir
áhrifum.
l Öryggiskröfur sem gilda
um flutningabíla og
flutningabílstjóra eru
mun strangari en almennt.
l Atvinnubílstjórar í
Bandaríkjunum undirgangast
regluleg áfengis- og
vímuefnapróf auk þess
sem margir flutningabílar
þar sem annars staðar eru
útbúnir þannig að ekki
er hægt að aka yfir
tilteknum hraða. Þá
þurfa atvinnurekendur og
bílstjórar að virða ákveðinn
hvíldar tíma.
Um síðustu mánaðamót var undirritaður
samningur á milli Vinnuvéla og Doosan,
móðurfélags Bobcat, um sölu og þjónustu Bob-
cat véla á Íslandi.
Baldur Þórarinsson
Um 3,5 milljónir starfa sem flutningabílstjórar í
Bandaríkjunum, þar af 200.000 konur.
Lenda síður í slysum
Hver stétt á sér staðalímynd. Staðalímynd flutningabílstjórans kemur án efa frá
Bandaríkjunum enda flutningsiðnaðurinn risavaxinn þar í landi. Það er því ekki úr
vegi að kynna sér hann frekar.
Baldur Þórarinsson, sölustjóri hjá Vinnuvélum-tækjamiðlun. MYND/ERNIR
Baldur Þórarinsson, sölustjóri
hjá Vinnuvélum-tækjamiðl-
un, segir að stöðug þróun sé í
gangi hjá fyrirtækinu og ým-
islegt nýtt að gerast. „Um síð-
ustu mánaða mót var undirritað-
ur samningur á milli Vinnuvéla
og Doosan, móðurfélags Bob-
cat, um sölu og þjónustu Bob-
cat véla á Íslandi. Þetta er stórt
skref í uppbyggingu Vinnuvéla
ehf. en undanfarin tvö ár höfum
við unnið markvisst í að byggja
upp öflugt fyrirtæki og áreiðan-
legan samstarfsaðila fyrir eig-
endur vinnuvéla í landinu,“ út-
skýrir Baldur. „Bobcat er fyrsta
stóra vinnuvélaumboðið sem
fyrirtækið verður umboðsaðili
fyrir en í vöruúrvali Vinnuvéla
eru önnur þekkt vörumerki.
Má þar nefna:
l Toro sláttuvélar og fjölnota
tæki
l Club Car golfbílar og
rafmagnsvinnubílar
l Carnehl malarflutningavagnar
l Dinolift vinnulyftur
l Bekamax
Auk innflutnings nýrra
vinnuvéla og tækja þá hafa
Vinnuvélar flutt inn umtals-
verðan fjölda notaðra vinnuvéla
og vörubíla frá stofnun og að-
stoðar jafnframt þá sem þurfa
að selja notuð tæki hér innan-
lands við miðlun tækjanna,“
greinir Baldur frá.
„Í tilefni samningsins munu
Vinnuvélar og Bobcat standa
fyrir mjög hagstæðum kynn-
ingartilboðum á völdum Bobcat
tækjum út október sem betur
er kynnt í auglýsingu í blaðinu.
Okkur langar einnig að benda
á að öll ný tæki frá Bobcat eru
með þriggja ára ábyrgð sem ég
held að enginn annar sé með
nema það sé sérstaklega keypt,“
segir Baldur.
Nýlega flutti fyrirtækið
Vinnuvélar-tækjamiðlun ehf. að
Kistumel 2 á Kjalarnesi. „Mark-
mið okkar er að bjóða trausta og
markvissa þjónustu. Við finnum
vel fyrir því að það er uppbygg-
ing á verktakastarfsemi í land-
inu og þörf á góðum vinnuvél-
um,“ segir Baldur.
Frekari upplýsingar eru í síma
480 0444 eða á heimasíðunni
www.vinnuvelar.is.
Vinnuvélar fá umboð fyrir Bobcat vélar
Vinnuvélar-tækjamiðlun ehf. sérhæfir sig í sölu, miðlun og innflutningi vinnuvéla og vörubíla. Fyrirtækið býður upp á mikið úrval véla og
tækja. Markmið félagsins er að vera leiðandi í sölu notaðra vinnuvéla og vörubíla með fagmennsku og vönduð vinnubrögð að leiðarljósi.
VöRUBÍLaR og VINNUVéLaR Kynningarblað
27. september 201628
2
7
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:5
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
B
2
-D
8
6
4
1
A
B
2
-D
7
2
8
1
A
B
2
-D
5
E
C
1
A
B
2
-D
4
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
7
2
s
_
2
6
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K