Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.09.2016, Qupperneq 48

Fréttablaðið - 27.09.2016, Qupperneq 48
„Við rekum fjölskyldufyrirtæki með jarðýtur, vörubíla, krana- bíl og gröfu. Maður stekkur bara á milli tækja eftir þörfum. Ætli ég sé ekki betri á gröfunum en hinum. Ef maður getur skorið gúrkur með gröfunni getur maður jafnað lóðir,“ segir Grétar Gríms- son gröfumaður, sem hampar titl- inum gröfumeistari ársins á Sel- fossi fjórða árið í röð. Keppnin fór fram á hátíðinni Tvær úr Tungun- um í ágúst. Fyrir keppendur voru lagðar ýmsar nákvæmnisþrautir, svo sem að koma litlum boltum í mjólkur- dunk, raða upp rörum í pýramída og sneiða grænmeti. Grétar segir ákveðna lipurð þurfa til að vinna slíka keppni en tekur lítið undir þegar hann er spurður hvort hann hljóti ekki að vera fremstur meðal jafningja þar sem hann hefur unnið keppnina ár eftir ár. „Ég myndi nú aldrei ganga svo langt að fullyrða það. Það eru til svo margir góðir gröfumenn. Ætli það hafi verið nema átta keppend- ur þarna. Það þyrfti auðvitað að halda keppni á landsvísu í þessu. Ég myndi taka þátt í henni. En jú, maður þarf að vera góður í að stjórna gröfunni og vera nákvæm- ur. Ein þrautin var meðal annars að skera niður gúrku í sneiðar. Því þynnri sneiðar því fleiri stig fékk maður í pottinn,“ segir Grétar. Hvað náðirðu mörgum sneið- um úr gúrkunni? „Ég man það nú ekki, maður er ekkert að telja. Ég er bara ánægður með að hafa náð að klára þetta og svo var það bara undir dómnefndinni komið hvað þeim fannst. Skurðirnir voru samt þokkalega beinir, sem þykir gott. Maður þarf að hafa góða til- finningu fyrir tækinu en þetta er í raun auðvelt fyrir þá sem eru að vinna á þessum tækjum dags- daglega. Þetta er orðið innbyggt í mann,“ segir Grétar. „Það er gott að geta sleikt út moldina eins og með kökuspaða þegar verið er að rétta af lóðir,“ segir hann. „Ég er reyndar mjög góður í því að baka, lélegri í að elda mat samt. Get rétt hitað pyls- ur og bjúgu,“ segir Grétar sposkur og bætir við að kannski yrði hann liðtækari við önnur verk ef hann gæti notað gröfuna til þess. „Það er reyndar mikið búið að gera grín að mér, að ég yrði kannski duglegri við allt annað ef ég mætti nota tækin í vinnunni við það. Ætli mér yrði þó ekki gefið illt auga ef ég festi til dæmis málning- arpensil á gröfuna og færi að mála húsið. En það væri kannski efni í eina keppnisþraut.“ Sneiddi niður gúrku með gröfunni Grétar Grímsson vann titilinn gröfumeistarinn fjórða árið í röð á hátíðinni Tvær úr Tungunum sem fram fór á Selfossi í ágúst. Þurftu keppendur til dæmis að sneiða niður gúrku en Grétar segir lipurð og nákvæmni innbyggða eiginleika í þeim sem vinni dagsdaglega á gröfu. Það þyrfti auðvitað að halda keppni á lands- vísu í þessu. Ég myndi taka þátt í henni. Grétar Grímsson gröfumeistari Grétar Grímsson varð gröfumeistari fjórða árið í röð á bæjarhátíðinni Tvær úr Tungunum á Selfossi í sumar. Myndir/MaGnúS Hlynur HreiðarSSon Grétar segir lipurð og nákvæmni þurfa á gröfu en hér opnar hann bjórflösku með gröfunni. ragnheiður Tryggvadóttir heida@365.is Gylfaflöt 32 • 112 Reykjavík • Sími 580 8200 • www.velfang.is • Frostagata 2a • 600 Akureyri • www.claas.is VERKIN TALA JCB gjörbyltir hönnun á hjólagröfum KattliðugFramúrskarandi útsýni Fremst fyrir stöðugleika 40km ökuhraði Einstakt aðgengi Vörubílar oG VinnuVÉlar Kynningarblað 27. september 201630 2 7 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :5 2 F B 0 7 2 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A B 2 -C 4 A 4 1 A B 2 -C 3 6 8 1 A B 2 -C 2 2 C 1 A B 2 -C 0 F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 7 2 s _ 2 6 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.