Fréttablaðið - 27.09.2016, Side 50
Sextán íslenskir ökumenn munu
keppa í hefðbundinni íslenskri tor
færu í Tennessee í Bandaríkjun
um um næstu helgi. Þeir Guðlaug
ur Sindri Helgason og Guðbjörn
Grímsson halda keppnina og eiga
mestan þátt í skipulagningu henn
ar en rúmlega tvö hundruð manns
fylgja þeim út.
„Við pökkuðum sextán torfæru
bílum í fjóra gáma fyrir um þremur
vikum. Þeir koma í land í Portland
í Maine og við keyrum með þá um
5.400 kílómetra suður til Tennessee
fyrir keppnina,“ segir Guðlaugur.
Verður kannski risastórt flopp
Keppnin verður hefðbundin tor
færukeppni eins og þekkist hér á
landi. Bæði brautarstarfsmenn
og dómarar koma frá Íslandi og
verður brautin lögð kvöldið fyrir
keppni. „Þetta er alveg risastórt
dæmi, allt íslenskir mótorsportar
ar sem keppa og sá stærsti, Árni
Kópsson, verður með. Tilgangur
inn með þessu er að kynna íþrótt
ina með von um að þetta geti orðið
eitthvað meira hér úti. Þetta er
nokkurs konar tilraunaverkefni
sem við stöndum að sjálfir, við
erum ekki með neina styrktaraðila
þannig að þetta er dýrt ævintýri en
gæti mögulega skilað sér í fram
tíðinni. Kannski verður þetta risa
stórt flopp en þetta gæti líka virk
að,“ segir Guðlaugur léttur í bragði.
Braut í fyrrverandi skógi
Mikill undirbúningur liggur að
baki keppninni en þeir Guðlaug
ur og Guðbjörn hafa þurft að fara
nokkrar ferðir til Bandaríkjanna í
tengslum við hana. „Við erum búnir
að fara þrjár ferðir á innan við ári
til að gera og græja í sambandi
við þetta. Bubbi er aðalsprautan í
þessu en Árni Kópsson kom með
okkur í fyrstu ferðina. Keppnin
verður haldin rétt við Mississip
pifljót í risastóru jarðsigi sem er
um hundrað metra hátt. Þegar við
fórum fyrst út í desember var þetta
bara frumskógur sem landeigand
inn ætlaði að ryðja burtu fyrir
keppnina. Við höfðum enga trú á að
þetta myndi ganga upp þegar við
skoðuðum þetta fyrst en svo sendi
hann okkur myndir og var bara
búinn að þessu. Við fórum þá aftur
út og þá komst skriður á málið, og
við fórum að trúa að þetta gæti
orðið að veruleika ef við ynnum í
þessu. Núna er þetta allt klappað og
klárt og við tilbúnir í keppni,“ lýsir
Guðlaugur yfir, sem keppir sjálfur
í torfærunni úti eins og þeir Bubbi
og Árni Kópsson sem að sögn Guð
laugs hefur nýlokið við að að endur
smíða gamla bílinn sinn og mun
keppa á honum um helgina en eins
og margir vita þá er Árni margfald
ur Íslandsmeistari í torfæru.
Keppti í klessubílaakstri
Guðlaugur hefur haft áhuga á
bílum, tækjum og tólum frá því
hann man eftir sér og hefur unnið
á vörubílum og vinnuvélum síðan
hann var fimmtán ára. Hann seg
ist vera áhugavörubílstjóri sem
safnar vörubílum – og þá helst
gulum bílum. Fyrir tveimur árum
fór hann til Massachusetts í þeim
tilgangi að kaupa sér vörubíl, sem
hann og gerði, og kallar bílinn
Galdragulan. Það var þó ekki það
eina sem Guðlaugur gerði í þeirri
ferð því þá keppti hann í því sem
kallast „Demolition Derby“. „Það
snýst um það að það eru fimm
tán bílar inni á afmörkuðum velli,
síðan er flautað og þá er reynt að
klessa eins mikið á hina bílana
og hægt er án þess að eyðileggja
bílinn sinn það mikið að ekki sé
hægt að keyra hann því sá vinnur
sem getur keyrt út af vellinum.
Þetta er eins heimskulegt og þetta
getur orðið en svakalega sniðugt
og skemmtilegt. Það var rosaleg
stemning þarna, fleiri þúsund
áhorfendur og flóðlýstur völlur.“
Guðlaugur var þarna í heimsókn
hjá vinafólki sínu sem á dráttar
bílaþjónustu þannig að það var nóg
af gömlum druslum úti á plani sem
Guðlaugur gat notað í keppninni.
„Ég fann mér einn sem fór í gang
og græjaði þetta á einni nóttu, mál
aði bílinn í íslensku fánalitunum
en það voru engin öryggisatriði
nauðsynleg önnur en þau að ég átti
að vera með hjálm á hausnum. Ég
hugsaði aðeins um að maður hefði
kannski átt að tryggja sig áður en
maður fór út í þetta, en þetta kom
óvænt upp á, ég fór ekki út til að
keppa,“ segir Guðlaugur sem fór
hins vegar út núna í þeim tilgangi
að keppa í torfærunni um næstu
helgi.
Ævintýri sem gæti virkað
Hefðbundin íslensk torfæra verður haldin um helgina í Tennessee í Bandaríkjunum þar sem vanir torfærukappar munu keppa,
þeirra á meðal Árni Kópsson, margfaldur Íslandmeistari í greininni. Tilgangurinn er að kynna íþróttina vestra.
Lilja Björk
Hauksdóttir
liljabjork@365.is
Guðlaugur Sindri hefur unnið til
fjölda verðlauna í torfæru hér á landi.
Hann keppir ásamt fleirum í torfæru
á íslenska vísu í Bandaríkjunum um
helgina.
Fyrir tveimur árum fór Guðlaugur til Massachusetts í þeim tilgangi að kaupa sér
þennan vörubíl, sem hann og gerði.
Bíllinn sem Guðlaugur keppti á í „Demolition Derby“ var málaður í íslensku
fánalitunum.
Guðlaugur er afar hrifinn af gulum bílum og heitir lið hans í torfærunni Team Galdragulur. MYND/SVENNI HAR
VöRuBíLAR oG VINNuVéLAR Kynningarblað
27. september 201632
2
7
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:5
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
B
2
-B
0
E
4
1
A
B
2
-A
F
A
8
1
A
B
2
-A
E
6
C
1
A
B
2
-A
D
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
7
2
s
_
2
6
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K