Fréttablaðið - 27.09.2016, Qupperneq 53
Hringferð Kraftvéla um landið
hófst mánudaginn 12. september
og lauk síðastliðinn föstudag með
opnu húsi í Kraftvélum. „Þetta
var tólf daga ferð hjá okkur og
var stoppað á 43 stöðum víðsveg
ar um landið þar sem við sýndum
nýjustu tækin frá Iveco og Weide
mann,“ segir Viktor Karl Ævars
son, framkvæmdastjóri sölu og
markaðssviðs hjá Kraftvélum.
Sýningartæki seld á staðnum
„Við vorum með ýmsar útfærsl
ur af Weidemann liðléttingum og
skotbómum, ásamt fjölbreyttu úr
vali Iveco atvinnubifreiða. Ferðin
gekk sérstaklega vel og við feng
um frábærar undirtektir, seldum
nokkur tæki í ferðinni og lentum
meira að segja í því að smærri
tæki eins og jarðvegsþjöppur
og fleygar seldust á staðnum og
voru ekki meira með í ferðinni.
Stærri tækin sem við seldum á
leiðinni gátum við ekki afhent
því við þurftum að klára hring
ferðina. Að lokinni ferð voru öll
sýningartækin seld, við fundum
fyrir gífur lega miklum áhuga alls
staðar þar sem við stoppuðum og
fengum fjölda tækifæra sem þarf
nú að fylgja eftir.“
Góðar undirtektir
Kraftvélar hafa áður farið í svip
aðar hringferðir um landið en þá
hafa fleiri tæki verið með í för.
„Í fyrri ferðum höfum við sýnt
heildarvöruúrvalið okkar. Þá
höfum við tekið traktora, gröfur
og fleira með okkur en nú lögðum
við áherslu á þessi tvö vörumerki,
Iveco og Weidemann. Venjulega
er hringferðin ein vika og bara
stoppað í stærri bæjarfélögum
en nú var ferðin lengri og mun
fleiri staðir heimsóttir. Stoppað
var styttra í einu á hverjum stað
og vorum við hreyfanlegri með
þessar smávélar en við höfum
verið með stóru vélarnar. Miðað
við undirtektirnar í þessari ferð
höfum við áhuga á að hafa sam
bærilega ferð á svipuðum tíma á
næsta ári,“ nefnir Viktor.
Mikil sala í vinnuvélum
Að sögn Viktors er mikil eftir
spurn eftir smávélunum hjá
bændum á þessum tíma þegar
gjafir eru að byrja. „Þetta eru
fjölnota tæki sem eru notuð í öll
möguleg verk og hægt að nýta
vélarnar í fjölbreytt verkefni,
til dæmis inni í fjósi að gefa eða
snjómokstur á planinu. Ástæðan
fyrir því að við fórum með Iveco
bílana í hringferðina er að þeir
hafa verið vinsælir hjá björg
unarsveitum, bæjar og sveitar
félögum og verktökum.“
Viktor segir að það sé virki
lega góð sala í vinnuvélum í heild
sinni hjá þeim og mikið af vélum
á leiðinni. „Þar á meðal er hybrid
vél sem er sú fyrsta sinnar teg
undar hér á landi. Þetta er fyrsta
græna vinnuvélin, Komatsu HB
365 beltagrafa með hybrid útbún
aði og er hún væntanleg til lands
ins í október.“
Viktor Karl Ævarsson, framkvæmda-
stjóri sölu- og markaðssviðs Kraft-
véla, segir hafa gengið sérstaklega
vel í nýlokinni hringferð Kraftvéla.
„Við fengum frábærar undirtektir og
að lokinni ferð voru öll sýningartækin
seld.“ MYND/ERNIR
Iveco bílarnir hafa verið vinsælir hjá björgunarsveitum, bæjar- og sveitarfélögum
og verktökum.
Weidemann skotbóman er hentug til ýmissa verka.
Vel heppnaðri hringferð Kraftvéla lokið
Mikill áhugi var fyrir nýjustu tækjunum frá Iveco og Weidemann í nýlokinni hringferð Kraftvéla um landið. Tækin frá Weidemann eru
fjölnota tæki sem hafa verið vinsæl hjá bændum. Góð sala er á vinnuvélum um þessar mundir og margar vélar á leiðinni til landsins.
Komatsu PC490
3,4m armur
700mm spyrnur
Lagnir fyrir fleyg
Hraðtengi
Grjótskófla
Komatsu PW160
Einföld bóma
Einföld dekk
Þrefaldar vökvalagnir
Hraðtengi
Rótotilt
3 skóflur
Komatsu PC240
3,2m armur
700mm spyrnur
Lagnir fyrir fleyg og annan búnað
Hraðtengi
Tvær skóflur
Komatsu PW118 ( árg 2011 )
Tvískipt bóma
Tvöföld dekk
Ýtublað
Lagnir fyrir fleyg
Hraðtengi
Tvær skóflur
Dynapac CA3500
13 tonna valtari
Einn með öllu
Án Ad-Blue
Dynapac LF75
95kg jarðvegsþjappa
Honda bensínmótor
Fjarlægjanlegur vatnstankur
Skóflur fráRammer 315
Eigin þyngd 160 kg
Þrýstingur 100-140 bar
Vökvaflæði 16-50 lítrar / mín
Þyngd vinnuvélar 2.0-3.0 tonn
Hávaðamörk 128 dB
Dalvegur 6-8 • 201 Kópavogur • Sími 535 3500
Draupnisgata 6 • 603 Akureyri • Sími 535 3526
www.kraftvelar.is • kraftvelar@kraftvelar.is
Eigum eftirfarandi tæki til afgreiðslu strax
2016-09-23-fréttablaðið-hálfsíða.indd 1 26.9.2016 11:06:46
Kynningarblað VöRubílaR og VINNuVélaR
27. september 2016 35
2
7
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:5
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
B
2
-8
E
5
4
1
A
B
2
-8
D
1
8
1
A
B
2
-8
B
D
C
1
A
B
2
-8
A
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
7
2
s
_
2
6
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K