Fréttablaðið - 27.09.2016, Síða 54
Toterhome kallast skemmtileg
húsbílaútgáfa af vörubílum. Vöru-
bílarnir eru útbúnir líkt og húsbíl-
ar, með rúmum, eldhúsi, baðher-
bergi og öllu tilheyrandi. Slíkir bílar
eru vinsælir erlendis, sér í lagi hjá
hestafólki og fólki sem stundar
mótorsport.
Þetta fólk þarf oft að ferðast
lengri leiðir á milli landshluta og
landa til að taka þátt í keppni. Oft
er því bíllinn að hluta til útbúinn
sem hestakerra eða bílskúr þann-
ig að hægt sé að flytja bíla eða
hesta. Þegar komið er á keppnis-
stað getur fólk slegið tvær flugur í
einu höggi. Sparað sér hótelkostn-
að með því að búa í sérútbúnum
vistarverum og geta um leið geymt
hesta/eða keppnisbíla í vörubíln-
um.
Trukkar sem heimili
Enn standa yfir lagfæringar á Blöndubrú
á Blönduósi. Viðgerðir hófust um miðjan
ágúst og er reiknað með að þær standi yfir
til 1. desember. Á meðan á framkvæmd-
um stendur er brúin einbreið en stýrt með
ljósum. Akbrautin er aðeins þrír metr-
ar að breidd og þess vegna þurfa ökumenn
að gæta fyllstu varúðar þegar ekið er yfir
brúna.
Mikil umferð er jafnan yfir þessa brú, jafnt
minni bílar sem stórir flutningabílar og
rútur. Brúin verður breikkuð um 60-70 cm
með því að taka burt steypta stétt sunnan
megin á henni. Sett verður nýtt vegrið sunn-
an megin á brúna, brúargólfið brotið upp og
nýtt steypt í staðinn. Vegurinn beggja vegna
brúarinnar verður svo breikkaður í samræmi
við breikkun akbrautar á brúnni. Stéttin
norðan megin á brúnni mun standa óbreytt,
að því er fram kom á vef Húnahornsins.
Heimamenn höfðu lengi beðið eftir viðgerð-
um á brúnni sem þeir töldu að væri vegfar-
endum hættuleg. Það ættu því margir að
fagna þegar verkinu lýkur.
BlönduBrú enn í viðgerð
KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK
590 5100
Vinnuvéla- og vörubíladekk í hæsta gæðaflokki færðu hjá okkur.
ÞEGAR GÆÐI
SKIPTA MÁLI
Aftanákeyrslur eru meðal algeng-
ustu umferðaróhappa hérlendis.
Ástæðan er of lítið bil á milli bíla og
skortur á athygli. Til þess að meta
það hvort nægilegt bil sé í næsta
bíl er til ágæt aðferð sem kallast
„þriggja sekúndna reglan“.
Taka skal mið af t.d. ljósastaur sem
bíllinn á undan ekur hjá. Telja skal
eitt þúsund og einn, eitt þúsund og
tveir, eitt þúsund og þrír. Sé bíll-
inn ekki kominn að staurnum þegar
talningunni er lokið er fjarlægð-
in í lagi. Sé bíllinn kominn fram hjá
staurnum er bilið of lítið og hætta
yfirvofandi.
Þriggja sekúndna
reglan
Vörubílar og VinnuVélar Kynningarblað
27. september 201636
2
7
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:5
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
B
2
-8
9
6
4
1
A
B
2
-8
8
2
8
1
A
B
2
-8
6
E
C
1
A
B
2
-8
5
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
7
2
s
_
2
6
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K