Fréttablaðið - 27.09.2016, Side 56
Frisbígolf nýtur sívaxandi vin-
sælda hér á landi og varð algjör
sprenging í fjölda þátttakenda síð-
asta sumar að sögn Birgis Ómars-
sonar, formanns Íslenska frisbí-
golfsambandsins. Munar þar
miklu um fjölgun meðal kvenna
og fjölskyldufólks. „Þetta sumar
var alveg ótrúlegt. Við höfum aldr-
ei séð annan eins fjölda sem kom-
inn er í sportið og má líkja þessu
við sprengingu í sumar enda var
veðrið einstaklega hagstætt. Það
eru fjórir aðilar sem flytja inn og
selja folfdiska og samkvæmt tölum
þeirra og mati okkar eru nú 12-
15.000 manns að spila frisbígolf.
Sem dæmi þá seldust 400 diskar
í Neskaupstað þegar völlurinn var
opnaður þar í sumar.“
Á fimm árum hefur völlum
fjölgað úr sjö í 30, þar af voru tíu
nýir vellir opnaðir á síðustu tveim-
ur árum. „Nú er 21 völlur í start-
holunum þar sem búið er að taka
ákvörðun eða málið mjög langt
komið. Það þýðir að innan tveggja
ára verða komnir 50 folfvell-
ir þannig að við erum að nálgast
fjölda golfvalla hér á landi.“
Þessar miklu vinsældir koma
Birgi ekki mjög á óvart enda segir
hann íþróttina frábæra fyrir alla
aldurshópa. „Það geta allir spil-
að frisbígolf, óháð aldri og kyni.
Ekki skemmir fyrir að allir ættu
að hafa efni á að spila frisbígolf.
Það kostar ekkert inn á þessa 30
velli og það eina sem þarf er einn
frisbídiskur sem kostar um tvö
þúsund krónur.“
Hver leikur tekur um 30 mín-
útur sem freistar líka margra.
„Hringurinn er því fljótlegur
og t.d. hægt að skjótast í hádeg-
inu. Þetta er því holl og góð úti-
vera, hvort sem maður er einn eða
með góðum vinum. „Skemmtileg-
ur göngutúr með tilgangi“ kallaði
einhver leikinn fyrr í sumar. Það
er líka hægt að spila frisbígolf allt
árið því frost og snjór er engin fyr-
irstaða.“
Vinsælustu vellirnir voru þétt-
setnir á sólríkum dögum í sumar
að sögn Birgis. „Þannig var bið-
röð við flesta teiga á vellinum á
Klambra túni oft í sumar. Þetta
höfum við ekki séð áður. Völlur-
inn þar er vinsælasti völlur lands-
ins enda notaður alla daga ársins,
óháð veðri og árstíma.“
AuknAr
vinsældir
Sprenging hefur orðið í fjölda þeirra sem
stunda frisbígolf. Íþróttin hæfir vel flestu fólki
og kostar lítinn pening. Innan tveggja ára
verða 50 frolfvellir um land allt.
Starri Freyr
Jónsson
starri@365.is
Frisbígolf nýtur vaxandi vinsælda meðal fjölskyldufólks. myndir/birgir ómarSSon
Í frisbígolfi sameinast hreyfing, góð útivera og skemmtilegur félagsskapur. Ekki skemmir fyrir að þetta er ódýr íþrótt.
Bandaríkjamenn fá um helming
þess sykurs sem þeir neita úr sykr-
uðum drykkjum. Með því að halda
sig við vatn og ósætt kaffi gætu
þeir því minnkað sykurneyslu sína
til mikilla muna. Hér er þó ekki
aðeins um að ræða gosdrykki eins
og margur myndi halda heldur allt
eins djús og kakó.
l Í ávaxtasafa er oft viðbætt-
ur sykur og þarf að gæta sín
sérstaklega á honum. Hreinn
ávaxtasafi inniheldur ekki síður
mikið af ávaxtasykri sem virk-
ar svipað og hefðbundinn sykur
á líkamann. Í lítilli kókdós, sem
inniheldur 350 millilítra, eru 39
grömm af sykri. Í sama magni af
eplasafa eru 40 grömm
l Í einum bolla af kakói eru 400
kaloríur og 43 grömm af sykri
sem er meira en í lítilli kókdós
l Íste í flösku er yfirleitt dísætt
þótt það hljómi kannski hollara
en kók. Í hálfum lítra geta verið
hátt í 70 grömm af sykri
l 350 millilítrar af tonic, sem
flestum þykir ómissandi út í gin,
innihalda 32 grömm af sykri, eða
átta teskeiðar
l Ávaxtaþeytingur sem inni heldur
oft ávaxtasafa, sæta jógúrt, ban-
ana og aðra ávexti fer langleið-
ina með að innhalda tvöfalt
meira magn af sykri en lítil kók-
dós. Eitt mjólkurglas getur hæg-
lega innihaldið um 60 grömm af
sykri
l Fleiri dæmi um sæta drykki
sem ætti að neyta í lágmarki
eru orkudrykkir, íþróttadrykk-
ir, vítamínvatn, hvers kyns sætir
mjólkurdrykkir og ýmsir kaffi-
drykkir. Margt af þessu ætti
frekar að líta á sem eftirrétt sem
neytt er í litlu magni en svala-
drykk
Ekki bara kókið
sEm Er sætt
Fæst í apótekum, Krónunni, Fjarðarkaup,
Hagkaup, Nettó og Græn heilsa.
Duft í kalt vatn eða boost
Styður:
Efnaskipti og öflugri brennslu
Minni sykurlöngun
Slökun og svefn
Vöðva og taugastarfsemi
Gott á morgnana og kvöldin
1/3 tsk = 350mg - ekkert bragð
Mikil virkni
Náttúrulegt
Þörunga magnesíum
ENGIN
MAGAÓNOT
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
2 7 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D A G U r6 F ó l k ∙ k y n n I n G A r b l A Ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ k y n I n G A r b l A Ð ∙ h e I l s A
2
7
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:5
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
B
2
-9
8
3
4
1
A
B
2
-9
6
F
8
1
A
B
2
-9
5
B
C
1
A
B
2
-9
4
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
7
2
s
_
2
6
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K