Fréttablaðið - 10.10.2016, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 10.10.2016, Blaðsíða 2
PORTO 1. des. í 3 nætur Netverð á mann frá kr. 79.995 m.v.2 í herbergi með morgunmat. Hotel Cristal Porto Bir t m eð fy rir va ra um pr en tvi llu r. He im sfe rð ir á sk ilja sé r r étt til le iðr étt ing a á sl íku . A th. að ve rð ge tur br ey st án fy rir va ra. Nýr áfangastaður Frá kr. 79.995 m/morgunmat Frábært að versla Góður matur Veður Fremur hæg suðvestanátt með skúra- leiðingum í dag, en bjartviðri norðaustan til. Hiti 5 til 10 stig. sjá síðu 18 Fornminjar „Þetta er glæsileg sýning og veglega að henni staðið,“ sagði Ólafur Kristján Valdimarsson, ein gæsaskyttnanna sem fundu víkingaaldarsverðið við Ytri-Ása í Skaftárhreppi á Suðurlandi fyrir um mánuði. Þjóðminjasafnið stóð fyrir sýn- ingu á sverðinu í gær en líklega var þetta eina tækifærið í rúmlega ár til þess að berja sverðið augum. „Fyrst fannst sverðið og járn- stykki sem menn telja vera sigð en svo fundust í seinna skiptið bein og aðrir munir. Búið er að greina mun- ina og er um að ræða spjótsodd, hníf og hugsanlega örvarodd. Þegar rannsóknum lýkur verður sverðinu komið fyrir á Þjóðminjasafninu,“ segir Uggi Ævarsson, minjavörður Suðurlands. Næst á dagskrá er að rannsaka efni sverðsins en búið er að rönt- genmynda það. Sandra Sif Einarsdóttir, sérfræð- ingur í forvörslu hjá Þjóðminjasafn- inu, segir sverðið vera með þeim heillegustu sem fundist hafa. „Þetta sverð er með hjöltu þannig að hægt er að greina það til gerðar og þessi gerð sverðs er frá tímabil- inu 950 til 1025. Þessi fundur hefði þó sagt okkur miklu meira hefði sverðið fundist í heilu kumli,“ segir Sandra. Sverðið er það tuttugasta og þriðja sem finnst frá því tímabili en aðeins sextán hafa varðveist með hjöltum. Gunnar Karlsson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands, telur að eigandi sverðsins hafi verið Hróar Tungugoði. Líklega hafi bær hans Ásar verið á sömu slóðum og Ytri-Ásar eru í dag. Sverðið fannst á víðavangi á árbakka í landi Ytri-Ása. Samkvæmt Íslendingasögunum og Landnámu var Hróar Tungugoði einn helsti valdsmaðurinn á seinni hluta tíundu aldar á Suðurlandi. „Mér þykir það góð saga að þetta sé sverðið hans Hróars og vel lík- legt. Það er merkilegt hvað búið var vel um hann er hann var drepinn. Þeir hafa sýnt honum þá virðingu,“ segir Snorri Tómasson, einn af fjölda gesta sem lögðu leið sína á Þjóð- minjasafnið til að berja forngripina augum. thorgeirh@frettabladid.is Víkingaaldarsverðið sló í gegn á Þjóðminjasafni Sverð eignað Hróari Tungugoða var til sýnis á Þjóðminjasafninu í gær. Mikill fjöldi mætti á sýninguna. Líklegt að rúmt ár sé þangað til að sverðið verði aftur til sýnis. Hróar var einn helsti valdsmaðurinn á svæðinu á seinni hluta 10. aldar. Mikill fjöldi var samankominn í Þjóðminjasafninu í gær þegar víkingaaldarsverðið var til sýnis. Áætlað er að sverðið sé yfir þúsund ára gamalt. Fréttablaðið/Ernir samgöngur „Brúardekkið er tilbúið til steypu. Við ætluðum að steypa þessa helgi en við þurftum að fresta því fram til þeirrar næstu vegna veðurs,“ sagði Sveinn Þórðarson brúarsmiður sem vinnur að bygg- ingu tvíbreiðrar Morsárbrúar sem mun leysa Skeiðarárbrúna af hólmi. Skeiðarárbrú, sem er einbreið, er í slæmu ástandi. Oft í viku skemmast hjólbarðar bíla sem aka um hana. Hætt verður að beina umferð um brúna þegar Morsárbrúin er tilbúin og fé hefur verið veitt til að tengja hana við þjóðveginn. Á hringveginum eru 39 einbreiðar brýr en unnið er að því að skipta þeim út. Við byggingu brúarinnar eru notaðir átján steypubílar sem aka alls 22 þúsund kílómetra með steypu frá Vík í Mýrdal að Morsá, en alls verða notaðir um 560 rúmmetr- ar af steypu við framkvæmdina. Áætlað er að Morsárbrú verði til- búin eftir fjórar til fimm vikur. – þh Morsárbrúnni miðar vel Morsárbrúin sem er um 70 metra löng mun leysa gömlu Skeiðarábrúna af. Mynd/StEFÁn björn Mér þykir það góð saga að þetta sé sverðið hans Hróars og vel líklegt. Það er merkilegt hvað búið var vel um hann er hann var drep- inn. Snorri Tómasson, einn gesta í Þjóð- minjasafninu í gær Friðarsúlan lýsir á ný  Yoko Ono og Sean Lennon voru í Viðey í gærkvöldi er Friðarsúlan var tendruð. Ásamt þeim voru mætt Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykja- víkur, Barbara Starr, kona Ringos Starr, Olivia Harrison, ekkja George Harrison, og Charlotte Kemp Muhl, kærasta Seans. Fréttablaðið/Hanna stjórnmál „Það liggur ekki fyrir dagsetning en ég geng út frá því að við munum slíta þingi í þessari viku,“ segir Einar K. Guðfinns- son, forseti Alþingis. Ekki hefur náðst samkomulag um þinglok. „Stjórnarflokkarnir voru lengi að gera upp hug sinn um hvern- ig þeir vildu forgangsraða. Það er svona að skýrast hvað stjórnar- meirihlutinn leggur áherslu á en það auðvitað flýtir fyrir málum. Hve langan tíma þetta mun taka er þó enn óvíst,“ segir Katrín Jak- obsdóttir, formaður Vinstrihreyf- ingarinnar – græns framboðs. Helstu áherslumál ríkisstjórn- arinnar eru almannatrygginga- frumvarp og frumvarp um stuðn- ing til kaupa á fyrstu íbúð. – þh Þinglok verði í þessari viku Einar K. Guðfinnsson, forseti alþingis og þingmaður Sjálfstæðis- flokksins 1 0 . o k t ó b e r 2 0 1 6 m á n u D a g u r2 F r é t t i r ∙ F r é t t a b l a ð i ð 1 0 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :4 8 F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A D C -4 9 D 8 1 A D C -4 8 9 C 1 A D C -4 7 6 0 1 A D C -4 6 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 5 6 s _ 9 _ 1 0 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.