Fréttablaðið - 10.10.2016, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 10.10.2016, Blaðsíða 44
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Elínborg Jóhanna Bjarnadóttir fv. eigandi hannyrðaverslunarinnar Mólý í Kópavogi, Ársölum 3, Kópavogi, áður Hlíðarhvammi 10, Kópavogi, lést miðvikudaginn 5. október á hjúkrunarheimilinu Eir. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 25. október klukkan 15. Margrét I. Kjartansdóttir Sigmundur Einarsson Ólafur Kjartansson Nanna Bergþórsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, Alma Dóróthea Friðriksdóttir dvalarheimilinu Barmahlíð, Reykhólum, andaðist á Sjúkrahúsinu á Akranesi mánudaginn 3. október. Útförin fór fram frá Reykhólakirkju í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Olga Sigvaldadóttir Matthías F. Ólason Dóróthea Guðrún Sigvaldad. Haflína Breiðfjörð Sigvaldad. Marta Sigvaldadóttir Magnús Steingrímsson Guðmundur Helmúth Sigvaldas. Friðrún H. Gestsdóttir Trausti Valgeir Sigvaldason Una B. Bjarnadóttir og ömmubörnin öll. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Benedikt Jón Ágústsson skipstjóri, lést á gjörgæsludeild Landspítalans á Hringbraut 25. september 2016. Útförin fer fram frá Háteigskirkju þriðjudaginn 11. október kl. 13.00. Jóna Guðlaugsdóttir Bára Benediktsdóttir Jóhann Sigurður Magnúss. Guðlaug Benediktsdóttir Gunnar Már Eiríksson Guðrún Björk Benediktsd. Hreggviður Þorsteinsson Ágúst Benediktsson Anna Pálsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Auður Auðuns varð fyrsti kvenráðherra á Íslandi er hún tók við embætti dóms- og kirkjumálaráðherra þennan dag árið 1970. Hún sat í nýrri stjórn Jóhanns Haf- stein sem tók við forsætisráðherraemb- ætti í júlí sama ár, þegar Bjarni Bene- diktsson lést í eldsvoða á Þingvöllum. Auður hafði áður verið fyrst kvenna til að verða borgarstjóri í Reykjavík þegar hún og Geir Hallgrímsson tóku við af Gunnari Thoroddsen og deildu með sér borgarstjórastarfinu í eitt ár, frá 1959 til 1960. Auður lauk lögfræðiprófi árið 1935 og stundaði síðan lögfræðistörf og gegndi margvíslegum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hún var alþingis- maður Reykvíkinga frá 1959 til 1974. 1871 Loksins tekst að ráða niðurlögum stórbruna í Chi- cago-borg sem hefur logað í þrjá daga. 1935 Herinn rænir völdum í Grikklandi og kemur á konungsstjórn í landinu á nýjan leik. 1957 Dwight Eisen- hower biður fjármála- ráðherra Gana afsökunar eftir að þeim síðarnefnda var neitað um þjónustu á veitingastað í Delaware. 1970 Auður Auðuns tekur við embætti dóms- og kirkjumálaráðherra og verður þar með fyrsti kvenráðherra Íslands. 1972 Helgi Hóseason slettir skyri á þingmenn við þingsetningu. 2006 Landsbankinn kynnir til sögunnar Icesave, nýja þjónustu netinnlánsreikninga fyrir viðskiptavini í Bretlandi. 2015 Sprengjuárás er gerð á lestarstöð í borginni Ankara í Tyrk- landi. 102 létust og yfir 400 særðust. Merkisatburðir 1 0 . o kTó B e R 1 9 7 0 Fyrsta konan á ráðherrastóli  Fimmtán ár eru í dag frá því að Smára- lindin var opnuð þann 10.10.2001 klukkan 10.10. Linda Margrét Gunn- arsdóttir, níu ára, opnaði Smáralindina ásamt Smára Páli Svavarssyni, ellefu ára. Þau voru bæði úr nærliggjandi hverfum, Smári var úr Smárahverfi en Linda úr Lindahverfinu. Linda segist muna vel eftir deginum. „Þetta var mjög skemmtilegt,“ segir hún. Hún segir þó frægðina sem fylgdi því að opna Smáralindina hafa enst stutt. „Nei, ég þekkist ekki á því,“ segir Linda og hlær. Í dag er Linda 24 ára og nemi á öðru ári í Landbúnaðarháskólanum. Hún er að læra búvísindi og stefnir að því að búa í sveit að náminu loknu en hefur ekki valið sér sveit. „Ég er með marga staði í huga því Ísland er svo fallegt.“ Sturla eðvarðsson, framkvæmdastjóri Smáralindar, segir heilmikið hafa gerst í umhverfi Smáralindar á þessu tímabili. „Aðsókn í Smáralind hefur vaxið ár frá ári. Það hafa verið ýmsar eftirminnilegar uppákomur hér, eins og þegar Lindex var opnuð.“ en eins og frægt er orðið tæmdist þriggja vikna lager á þremur dögum. „Við munum fagna þessum fimmtán ára tímamótum með glæsilegum hætti þegar við opnum inn á breytingarnar við Hagkaup í byrjun næsta mánaðar. Þá verður formleg hátíð Smáralindar,“ segir Sturla sem hefur verið framkvæmda- stjóri frá árinu 2010. „Það er heilmikið fram undan, það er mikið um að vera hér, miklar endur- bætur á Smáralind og svo opna nýjar verslunarkeðjur eins og H&M útibú hérna á næsta ári,“ segir Sturla. Hann segir hrunárin hafa verið eftirminnileg, en nú horfi forsvarsmenn Smáralindar fram á veginn. „Það voru erfiðleikar í kringum hrunið, það voru miklir erfiðleikar fyrir smásölumarkaðinn á Íslandi. en Smára- lind sigldi í gegnum þetta. Við höfum, í framhaldi af þessum samdrætti sem varð í sölu á fatnaði og skóm og þess háttar, verið að horfa til sóknar frekar en eitt- hvað annað.“ saeunn@frettabladid.is Fimmtán ár síðan Linda opnaði Smáralind Margt hefur gerst á 15 árum hjá stærstu verslunarmiðstöð landsins. Kaupmenn hafa gengið í gegnum hrun og nú eru stórar verslanakeðjur að opna útibú þar. Linda Margrét Gunnarsdóttir, sem opnaði Smáralindina níu ára gömul, er í dag 24 ára búvísindanemi. Aðsókn í Smáralind hefur vaxið ár frá ári. Það hafa verið ýmsar eftirminni- legar uppákomur hér. Sturla Eðvarðsson, framkvæmdastjóri Smáralindar Linda Margrét Gunnarsdóttir opnaði Smáralindina fyrir fimmtán árum. FréttabLaðið/Ernir 1 0 . o k t ó b e r 2 0 1 6 M Á N U D A G U r16 t í M A M ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð tímAmót 1 0 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :4 8 F B 0 5 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A D C -5 D 9 8 1 A D C -5 C 5 C 1 A D C -5 B 2 0 1 A D C -5 9 E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 5 6 s _ 9 _ 1 0 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.