Fréttablaðið - 10.10.2016, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 10.10.2016, Blaðsíða 8
Samfélag Bretar ætla skera upp herör gegn offitu þjóðarinnar og hafa hvatt veitingastaði til að minnka skammt- ana af hinum eina sanna Fish and Chips. Í fyrra hvöttu bresk stjórnvöld veitingastaði meðal annars til að fela saltstaukana og nú verður hægt að fá minni skammta af þessum einfalda en eftirsótta rétti. Þá verður hægt að fá salat og steikingarolíunni verður breytt. Meðalstærð á skammti er um 450 grömm en áætlanir gera ráð fyrir að skammturinn fari í 283 grömm. Mun verðið vera í kringum pundið eða 140 krónur. Íslendingar selja gríðarlega mik- inn fisk til Englands þar sem hann er undirstaðan í þessum eftir- lætisskyndibita Breta. Karen Kjartansdóttir, hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, segir að vel matreiddur fiskur sé hita- einingasnauð og holl matvara. „Við getum vel tekið undir mikilvægi þess að minnka skammtastærðir til að draga úr sóun enda tals- menn ábyrgrar nýtingar á auðlindum. Að leifa mat þykir ekki góður siður enda er með því verið að sóa fjármunum og auðlindum jarðar,“ segir Karen. Hins vegar kveðst Karen viðurkenna að hún telji nokkurt óráð að draga úr fiskneyslu til að bæta heilsufar fólks, ekki síst þegar rætt sé um okkar „villta og heilnæma“ fisk úr Atl- antshafinu. „Mínar ráðleggingar í þessum málum eru því frekar þær að minnka skammtinn af frönskunum auk þess sem ég tek undir tillögur um að bæta matreiðsluað- ferðir og nota betri olíu við steikingu,“ segir hún. Karen bætir því við að þegar kemur að mat séu Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi talsmenn gæða fremur en magns. „Vitanlega finna útflytj- endur fyrir því að pundið hefur fallið, sem er baga- legt fyrir íslenskan efna- hag. Í raun sjáum við bara tækifæri í aukinni áherslu á heilsu og hollustu í Bret- landi enda fiskur mikil holl- ustuvara,“ segir Karen. – bbh Pundið léttist einnig í fiskiskammti Breta Mínar ráðleggingar í þessum málum eru því frekar þær að minnka skammtinn af frönskunum auk þess sem ég tek undir tillögur um að bæta mat- reiðsluaðferðir og nota betri olíu við steikingu. Karen Kjartans- dóttir hjá Sam- tökum fyrirtækja í sjávarútvegi Fish and Chips staðir eru hvattir til að minnka skammtastærðir til að berjast gegn offitu. Fréttablaðið/Getty Íþróttir Mennta- og menningarmála- ráðuneytið, Reykjavíkurborg og Knatt- spyrnusamband Íslands munu veita alls 21 milljón króna til að fullkanna rekstrargrundvöll fjölnota íþrótta- leikvangs, bera saman mismunandi útfærslur og vinna frumhönnun leik- vangsins ásamt því að vinna kostn- aðargreiningu vegna framkvæmda. Hver leggur sjö milljónir í verk- efnið. Þetta kom fram á borgarráðs- fundi á fimmtudag þar sem Degi B. Eggertssyni var veitt umboð til að skrifa undir viljayfirlýsingu fyrir hönd borgarinnar. Fram hefur komið að KSÍ vilji kaupa völlinn og hefja samtal um u p p b y g g - ingu innan núverandi byggingar- reits hans án fjárhagslegrar aðkomu borgarinnar. KSÍ hefur unnið hagkvæmni- athugun um uppbyggingu fjölnota leikvangs þar sem markmiðið er að bæta völlinn sem þjóðarleikvang í knattspyrnu, auka nýtingu hans, ásamt því að styrkja nærumhverfi. Ill- ugi Gunnarsson, mennta- og menn- ingarmálaráðherra, Dagur og Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, hafa því ákveðið að veita styrk til undirbún- ings á verkefninu. KSÍ hefur skuldbundið sig til að bera ábyrgð á framvindu verkefnisins og leggja fram verkefnisáætlun til sam- þykktar fyrir aðila samkomulagsins. Verkefnisáætlun skal gera ráð fyrir að næsta verkþætti verði lokið eigi síðar en 15. janúar 2017. Þegar niðurstöður liggja fyrir munu aðilar samkomu- lagsins taka afstöðu til framhalds verk- efnisins og raunhæfni. Afstaða mennta- og menningar- málaráðuneytis til frekari þátttöku mun taka mið af því að Laugardalsvöll- ur verði skilgreindur sem þjóðarleik- vangur. Borgin hefur lýst sig reiðubúna að koma að nauðsynlegri greiningu og skipulagsvinnu sem tengist þróun fjölnota íþróttaleikvangs með vísan til erindis Knattspyrnusambands Íslands frá 10. mars 2016, samþykktar borgar- ráðs frá 15. september og þeirra fyrir- vara sem þar koma fram. – bbh Ríkið vill þjóðarleikvang í Laugardal BandarÍkin Donald Trump, fram- bjóðandi Repúblíkanaflokksins í for- setakosningunum í Bandaríkjunum, mætti Hillary Clinton, frambjóðanda Demókrataflokksins, mjög laskaður í forsetakappræðunum í nótt. Mjög var sótt að Trump eftir að hljóðupptökum þar sem hann talar með niðrandi hætti um fjölmiðlakon- una Nancy O’Dell, og konur almennt, var lekið til fjölmiðla. Silja Bára Ómarsdóttir, aðjunkt við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, segir upptökuna hafa hlotið mikla gagnrýni vegna þess að þarna sé verið að tala illa um glæsilega hvíta konu og það fari ekki á milli mála að Trump hafi sagt þetta. Fjölmargir áhrifamenn í banda- ríska Repúblikanaflokknum hafa farið fram á að Donald Trump dragi framboð sitt til baka eftir að hljóð- upptökunum, sem eru frá árinu 2005, var lekið. Mike Pence, varaforsetaefni Trumps, sagði ummælin ófyrirgefan- leg og vilja fjölmargir að Pence taki við keflinu. Trump hefur beðist afsökunar á ummælunum, en segist ekki ætla að draga framboð sitt til baka. Þrátt fyrir þetta sýnir skoðana- könnun frá því í gær að stór hluti kjósenda Repúblíkanaflokksins standi með Trump. Hillary Clinton mælist þó með fjögurra prósentu- stiga forskot. Trump hefur látið fjölda niðrandi ummæla falla í kosningabarátt- unni. Silja Bára telur að þessi síðustu ummæli hafi sérstaklega hlotið gagnrýni vegna þess að hann var að tala um glæsilega hvíta konu og auð- veldara sé að fordæma það. „Allt annað sem hann hefur verið að segja hefur verið rasismi, eða að hluta til rasismi, eða fitufordómar. Viðbrögðin sýna ef til vill hvað inn- byggður rasismi er fastur í kerfinu,“ segir Silja Bára. Það að Trump hafi þegar verið búinn að missa fylgi hafi sennilega ýtt undir viðbrögðin. „Þetta vekur líka svona mikil við- brögð vegna þess að það fer ekki á milli mála að þetta eru hans eigin orð og mynd og rödd. Áður hefur einhver verið að ásaka hann, en í þetta sinn er ekki hægt að draga í efa að hann hafi sagt þetta.“ Silja Bára segir mestar líkur á að Hillary Clinton sigri í kosningunum. „Nema að flokkurinn nái að sann- færa Trump um að hann þurfi að stíga til hliðar og þá er nýtt spil í gangi. En það er mjög ólíklegt.“ saeunn@frettabladid.is Enn dregur úr líkum á að Trump sigri Clinton Donald Trump fór mjög laskaður inn í frambjóðendakappræður í gærkvöldi. Upptaka af niðrandi ummælum Trumps um konur hefur sætt harðri gagnrýni. Margir hafa hætt að styðja framboð hans. Meiri líkur á að Clinton verði forseti. Kosið verður um forseta í bandaríkjunum þann 8. nóvember næstkomandi. Fréttablaðið/aFP Viðbrögðin sýna ef til vill hvað inn- byggður rasismi er fastur í kerfinu. Silja Bára Ómarsdóttir, aðjunkt við stjórn- málafræðideild HÍ 21 milljón króna verður veitt til að fullkanna rekstrargrund- völl fjölnota íþróttaleikvangs. 1 0 . o k t ó B e r 2 0 1 6 m Á n U d a g U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð 1 0 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :4 8 F B 0 5 6 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A D C -8 5 1 8 1 A D C -8 3 D C 1 A D C -8 2 A 0 1 A D C -8 1 6 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 5 6 s _ 9 _ 1 0 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.