Fréttablaðið - 10.10.2016, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 10.10.2016, Blaðsíða 4
Beltone Legend™ Enn snjallara heyrnartæki Nýja Beltone Legend™ heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone, iPad og iPod touch. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánað til reynslu.Bel to ne L eg en d ge ng ur m eð iP ho ne 6 s og e ld ri ge rð um , i Pa d A ir, iP ad (4 . k yn sl óð ), iP ad m in i m eð R et in a, iP ad m in i og iP od to uc h (5 . k yn sl óð ) m eð iO S eð a ný rr a st ýr ik er . A pp le , i Ph on e, iP ad o g iP od to uc h er u vö ru m er ki s em ti lh ey ra A pp le In c, s kr áð í Ba nd ar ík ju nu m o g öð ru m lö nd um . Kringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is HEYRNARSTÖ‹IN Dómsmál Héraðsdómur Reykja- víkur dæmdi á fimmtudag íslenska ríkið til að greiða Björg- vini Mýrdal Þóroddssyni bætur vegna ólögmætrar handtöku og líkamsleitar. Málavextir eru þeir að Björg- vin var gestur á Þjóðhátíð í Vest- mannaeyjum í fyrra þegar lög- reglumenn höfðu afskipti af honum og kröfðust þess að fá að leita á honum. Ástæðan var sú að fíkniefnahundur lögreglunnar hafði gefið til kynna að Björgvin kynni að vera með fíkniefni á sér. Björgvin neitaði að heimila lík- amsleit vegna þess að hann taldi hvorki vera til staðar lagaskilyrði til handtöku né líkamsleitar. Var hann þá handtekinn fyrir framan fjölda manns og leitað á honum. Ekkert saknæmt fannst og var Björgvini sleppt að leit lokinni. Þá er gerð athugasemd í dómn- um við að nafn félagsskaparins Snarrótarinnar hafi verið skrif- að í sviga á eftir nafni Björgvins. Snarrótin berst meðal annars gegn bannhyggju í fíkniefnamál- um og gegnir Björgvin stöðu rit- ara í stjórn félagsins. Dómurinn telur engin mál- efnaleg sjónarmið að baki slíkri skráningu af hálfu lögreglu og sjálfur telur Björgvin að með því að setja nafn Snarrótarinnar í skýrsluna hafi lögregla verið að skrá stjórnmálaskoðanir hans. „Ég er ánægður með að hafa unnið málið en mér finnast þessi vinnubrögð hjá lögreglunni vera með ólíkindum. Vonandi verður þessi dómur til þess að verklag hjá lögreglunni verði skoðað,“ segir Björgvin. Þetta eru ekki einu bæturnar sem Björgvin Mýrdal Þórodds- son fær frá ríkinu á þessu ári. Í apríl síðastliðnum var íslenska ríkið dæmt til að greiða honum 600 þúsund krónur vegna ólög- mætrar símhlerunar. – þh Ríkið dæmt í annað sinn á árinu til þess að greiða Björgvini bætur Við Hafrafell. Fréttablaðið/VilHelm Ég er ánægður með að hafa unnið málið en mér finnast þessi vinnu- brögð hjá lögreglunni vera með ólíkind- um. Björgvin Mýrdal Þóroddsson Efnahagsmál Ríkasta tíund lands­ manna á jafnmikið og um tveir þriðju hlutar landsmanna til samans. Eignir þeirra hafa hækkað um 20 prósent frá árinu 2013 á meðan eignir annarra tekjuhópa hafa að jafnaði hækkað um 13 prósent. Að auki fór helmingur allra greiddra launa í fyrra til tveggja efstu tekjuhópanna. Þetta kemur fram í gögnum Hag­ stofu Íslands sem Fréttablaðið hefur tekið saman. Hagstofan raðar einstaklingum niður í tíu jafnstóra hópa eftir tekjum. Þeir sem minnstar hafa tekjurnar eru í fyrsta hópi og svo koll af kolli. Í ár eru rúmlega 20 þúsund manns í hverjum tekjuhópi en árið 2013 var fjöldi í hverjum hópi um 19.000 manns. Er skoðaðar eru breytingar á laun­ um Íslendinga frá árinu 2013 kemur fram að heildarárstekjur landsmanna hafa hækkað um 200 milljarða króna. Einnig eru fleiri á vinnumarkaði núna samanborið við tölurnar frá 2013. Efstu tveir tekjuhóparnir, sá fimmtungur sem hefur hæstu launin, var með samanlagt um 714 milljarða króna í laun í fyrra. Er þetta 51 pró­ sent greiddra launa landsmanna á árinu. Aðalsteinn Baldursson, formaður stéttarfélagsins Framsýnar á Húsavík, segir þessar tölur sýna svo ekki verði um villst að peningum sé ekki nægi­ lega skipt á milli þjóðfélagshópa. „Við sem töluðum fyrir því í vor að meira væri til skiptanna í kjarasamn­ ingum við SA vorum úthrópaðir sem einhverjir vitleysingar og við værum að stefna öllu í bál og brand,“ segir Aðalsteinn. „Þetta bendir hins vegar til þess að við höfum haft rétt fyrir okkur. Misskiptingin hér á landi er mikil og fer stækkandi. Það blasir við.“ Af þeim 200 milljörðum króna, sem greiddar voru í laun í fyrra umfram það sem var árið 2013, fara um 137 milljarðar, rúmlega tvær af hverjum þremur krónum, til efstu tveggja tíundanna, það er til þeirra 40 þúsund einstaklinga sem hæstar hafa tekjurnar og mestar eiga eignirnar í þessu landi. Neðstu fjórir tekjuhóparnir, 40 prósent þeirra sem eru með lægstar tekjurnar, fá greidda tíund allra launa í landinu í fyrra. Hafa ber þó í huga að í neðstu tekjuhópunum eru ein­ staklingar sem eru í hlutastörfum, ungir námsmenn og fleiri. Svandís Svavarsdóttir, þingkona VG, segir fleiri en eina þjóð lifa í þessu landi þar sem misskiptingin sé mikil. „Við sjáum það í þessum tölum að stór hluti tekjuaukans færist á þá hæst launuðu í þessu landi. Það segir okkur að það er ekki rétt gefið og við ættum að staldra við,“ segir hún. „Alls staðar í hinum vestræna heimi er umræða um hið ríkasta eina prósent og að þeir einstaklingar þurfi að leggja meira af mörkum. Lands­ menn hafa tvo valkosti í kosning­ unum eftir þrjár vikur. Annars vegar áframhaldandi misskiptingu í boði Bjarna Benediktssonar eða réttláta og sanngjarna ríkisstjórn undir stjórn Katrínar Jakobsdóttur,“ segir Svandís. Hafa ber í huga að fjölmargir í lægstu hópunum eru námsmenn á námslánum og nemar sem búa enn hjá foreldrum, sem gæti skekkt tölu­ vert laun neðstu hópanna. Því gefa tekjur þeirra ekki glögga mynd af fjárhagsstöðu hópsins í heild. Hins vegar sýnir þetta dreifingu allra á vinnumarkaði og því gefa tölurnar raunsanna mynd af honum í heild og tekjudreifingu allra. sveinn@frettabladid.is Laun þeirra ríku hækka hraðar Laun á Íslandi hafa hækkað um 200 milljarða króna frá 2013. Ríkasti fimmtungur landsmanna fær nær 70 prósent þeirrar upphæðar í sinn skerf. Formaður Framsýnar segir stórátak þurfa í að jafna laun í landinu. Misskiptingin hér á landi er mikil og fer stækkandi. Það blasir við. Aðalsteinn Baldurs- son, formaður stéttarfélagsins Framsýnar á Húsavík Við sjáum það í þessum tölum að stór hluti tekjuaukans færist á þá hæst laun- uðu í þessu landi. Svandís Svavarsdóttir, þingmaður VG Hagstofan raðar skattgreiðendum niður í tíu jafnstóra hópa eftir tekjum árið 2015. Hver litur táknar 10% skattgreiðenda og hlutfall hvers af heildartekjum. ✿ skipting heildartekna Íslendinga árið 2015 34,0% af heildartekjum Íslendinga18,2%13,3%10,0%7,8%6,0% tekjuHæsti Hópurinn 4,7%3,5%2,0%0,5% 40% tekjulægstu skattgreiðenda afla 10,7% teknanna. skattgreiðenda afla 52,2% teknanna.20% tekjuHæstu Heildartekjur 1.368 milljarðar Fjöldi launþega 202.505 Meðalárstekjur í fyrsta tekjuhópi Meðalárstekjur öðrum tekju- hópi Meðalárstekjur í þriðja tekjuhópi Meðalárstekjur í fjórða tekjuhópi Meðalárstekjur í fimmta tekju- hópi Meðalárstekjur í sjötta tekjuhópi Meðalárstekjur í sjöunda tekju- hópi Meðalárstekjur í áttunda tekju- hópi Meðalárstekjur í níunda tekju- hópi Meðalárstekjur í tíunda tekjuhópi 330 þúsund 1,36 milljónir 2,38 milljónir 3,20 milljónir 4,07 milljónir 5,26 milljónir 6,73 milljónir 8,98 milljónir 12,27 milljónir 22,99 milljónir fjölmiðlar Bókin Sjö ár hjá dönsku leyniþjónustunni verður birt á vef Politiken í dag. Fyrir helgi fékk danska leyniþjónustan PET lögbann á bókina sem fjallar um starfsár Jak­ obs Scharf hjá leyniþjónustunni. Telur leyniþjónustan upplýsingar í bókinni geta skaðað starf hennar. Morten Skjoldager, höfundur bók­ arinnar, og Scharf vísa því á bug. Christian Jensen, ritstjóri Poli­ tiken, segir lögbannið brjóta gegn tjáningarfrelsi. Með birtingu bók­ arinnar getur Politekn átt yfir höfði sér málsókn. – þh Bókin birt þrátt fyrir lögbann samgöngur Vegkantur gaf sig undan rútu síðdegis í gær á veginum að Hafrafelli við Svínafellsjökul. Rútan hallaðist og hætta var á að hún myndi velta ef farþegarnir 44 reyndu að yfirgefa hana. Farþegarnir héldu ró sinni þar til björgunarsveitarmenn aðstoðuðu þá að komast út úr rútunni að því er segir í frétt frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. – þh Farþegar fastir í hallandi rútu Höfuðstöðvar politiken í kaupmanna- höfn. nordicpHotos/gettY Sveinn Arnarsson sveinn@frettabladid.is 1 0 . o k t ó b E r 2 0 1 6 m á n u D a g u r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 1 0 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :4 8 F B 0 5 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A D C -5 D 9 8 1 A D C -5 C 5 C 1 A D C -5 B 2 0 1 A D C -5 9 E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 5 6 s _ 9 _ 1 0 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.