Fréttablaðið - 10.10.2016, Blaðsíða 12
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871
fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Sara McMahon sara@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Halldór
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
26. nóvember kl. 20.00
Jólatónleikar í Grafarvogskirkju
Miðala á miði.
Það er grundvallarréttur fólks í lýðræðisríki að geta gengið til kosninga og að allir geti með atkvæði sínu haft jafnan rétt til að hafa áhrif á hverjir og
hvers konar stjórnvöld komast til valda.
Allt frá því þéttbýli fór að myndast á Íslandi hefur því
verið mismunað með hlutfallslega minna atkvæðavægi
en í dreifbýli. Fjöldi þingmanna á hvern íbúa hefur því
lengi verið mismikill milli kjördæma og þess vegna hafa
áhrif kjósenda í kosningum verið mismikil eftir því hvar
þeir búa. Nú má þessi munur því vera allt að tvöfaldur;
íbúar í Norðvesturkjördæmi geta haft um tvöfalt fleiri
þingmenn á hvern íbúa heldur en íbúar í Suðvestur
kjördæmi og hefur hver íbúi því um tvöfalt meiri áhrif á
úthlutun þingsæta á Alþingi.
Við í Viðreisn teljum það forgangsatriði að stjórnar
skránni verði breytt til þess að tryggja að atkvæðisréttur
allra landsmanna verði jafn, óháð búsetu þeirra. Fötluð
kona í Hafnarfirði á að hafa sama rétt og trillukarl fyrir
austan, fyrirtækjaeigandi fyrir vestan á að hafa sama
atkvæðisrétt og kennari í Kópavoginum. Jafnréttið er
ósköp einfalt.
Andstæðingum þessa brýna lýðræðismáls hefur oft og
tíðum tekist að gera þetta að baráttu höfuðborgarsvæðis
gegn landsbyggðinni. Sú barátta á að vera óþörf.
Þingmenn Alþingis eiga að bera hag landsins alls
fyrir brjósti og öllum ætti að vera ljóst að sterkt höfuð
borgarsvæði þarf á sterkri landsbyggð að halda. Skipting
og forgangsröðun verkefna ríkisins þarf að vera tekin
á jafnræðisgrundvelli, með þarfir allra kjördæma að
leiðarljósi og sífelldum áminningum um að ekkert
þeirra megi sitja eftir við útdeilingu sameiginlegra gæða.
Við megum ekki vera hrædd við kerfisbreytingar.
Íhaldssemin hefur ávallt passað og mun áfram passa
upp á sig og sína. Því kerfisbreytingar eru ógnun við
valdhafa er sækja völd sín til slíks ójafnræðis sem felst í
misvægi atkvæðisréttar.
Viðreisn er ekki þannig flokkur og því munum við
einhenda okkur í kerfisbreytingar sem auka réttlæti og
jafnrétti á Íslandi, öllum til hagsbóta.
Atkvæðið mitt og
atkvæðið þitt
Þorgerður
Katrín
Gunnarsdóttir
skipar 1. sæti
Viðreisnar í Suð-
vesturkjördæmi
Við í Viðreisn
teljum það
forgangsatriði
að stjórnar-
skránni verði
breytt til þess
að tryggja
að atkvæðis-
réttur allra
landsmanna
verði jafn.
Friðarsúlan í Viðey var tendruð í gærkvöldi og geislar hennar brutu sér leið í gegnum rigningarsuddann í Reykjavík. Hún var fyrst tendruð þann 9. október árið 2007 og þó ekki sé lengra um liðið þá er hún fyrir löngu orðin órjúfanlegur hluti af borgarmyndinni
á þessum árstíma. Þetta kyrrláta en mikilfenglega
listaverk sem biðlar til fólks um að ímynda sér heim
þar sem friður ríkir. Einfalt og fallegt verk sem fangar
kjarnann í einfaldri og fallegri hugsun. Hvað gæti verið
mikilvægara?
Á föstudaginn skrifuðu Dagur B. Eggertsson borgar
stjóri og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands,
undir stofnsamning að Höfða, friðarsetri. Þessu ágæta
setri er ætlað að verða vettvangur fyrir þverfaglegt og
alþjóðlegt samstarf og stuðla að friði, friðarmenningu
og fræðslu, svo örfátt sé nefnt. Allt er þetta mikilvægt.
Við sem þjóð þekkjum það blessunarlega betur að
búa við frið en að lifa og deyja í stríði. Það þýðir þó ekki
að styrjaldir heimsins og hörmungar séu okkur óvið
komandi, þvert á móti. Við erum hluti af alþjóðasam
félaginu, aðilar að hernaðarbandalagi og allt frá síðari
heimsstyrjöld hefur leitað til okkar fólk á flótta undan
styrjöldum í misfjarlægum löndum. Sumum höfum
við tekið vel en öðrum ekki. Friðurinn á Íslandi er ekki
handa öllum og stundum er ekki laust við að maður
skammist sín fyrir það þegar maður horfir á Friðar
súluna lýsa upp kvöldhimininn yfir Kollafirði.
Tökum dæmi, eins ómanneskjulegt og það kann að
hljóma að taka líf fólks og framtíð sem dæmi, en það
kannski hjálpar okkur að meta stöðu þeirra sem reyna
að finna frið á Íslandi. Í dag eiga þau Regina Osamr
umaese og Eugene Imotu að mæta til fundar hjá ríkis
lögreglustjóra og þar verður þeim að öllum líkindum
sagt að friðurinn á Íslandi sé ekki fyrir þau og börnin
þeirra. Ekki fyrir drenginn sem kom hingað með
móður sinni og hefur búið hér stóran hluta ævi sinnar.
Ekki fyrir bróður hans sem er fæddur hérna á Íslandi.
Og ekki fyrir ófætt systkini þeirra sem er væntanlegt
í heiminn. Nei, þessi fjölskylda á að fara til Nígeríu
þaðan sem Regina flúði í leit að friði þegar hún var sex
ára gömul. Þau geta bara farið á svæði innan Nígeríu
þar sem ekki geisar styrjöld einmitt núna og á sama
tíma getum við haldið áfram að horfa á Friðarsúluna og
kannski sendum við þeim góða strauma, svona ef við
munum eftir því.
En auðvitað vonum við að ekki komi til þess.
Auðvitað vonum við að þessi fjölskylda fái að njóta
friðarins á Íslandi og horfa á Friðarsúluna lýsa upp
kvöldhimininn. En til þess þarf eflaust ýmislegt að
breytast á Íslandi, svo sem viðhorf og vilji ráðamanna,
starfsaðferðir stofnana og jafnvel sitthvað fleira, en við
hljótum þó að minnsta kosti að geta ímyndað okkur
að Ísland sé land friðarins. Við skulum því ímynda
okkur að Dagur B. Eggertsson byrji daginn á því að láta
verkin tala og hringi í Ólöfu Nordal og þau fari saman
í að bjarga þessari fjölskyldu. Síðan sigli þau saman út
í Viðey, án alls fræga fólksins, breyti ímyndun í sköpun
og draumum í veruleika og geri Ísland að sönnu friðar
setri um ókomin ár.
Í leit að friði
Friðurinn
á Íslandi er
ekki handa
öllum og
stundum er
ekki laust
við að maður
skammist
sín fyrir
það þegar
maður horfir
á Friðar-
súluna lýsa
upp kvöld-
himininn yfir
Kollafirði.
Engin framtíð?
Heiða Kristín Helgadóttir, stofn-
andi Besta flokksins og Bjartrar
framtíðar, lýsti því yfir í gær að
hún styddi Viðreisn í kosning-
unum þann 29. október næst-
komandi. Á sama tíma vonaðist
hún eftir því að Björt framtíð
fengi nú nægilega mikið fylgi til
þess að þurrkast ekki út. Ljóst
er að Björt framtíð rær lífróður
næstu vikurnar og er við ramman
reip að draga. Því gæti stuðnings-
leysi Heiðu Kristínar við Bjarta
framtíð verið síðasti naglinn í
kistu flokksins. Ef flokkurinn
getur ekki virkjað stofnendur
sína til þess að kjósa sig eru enda-
lokin nær.
Sósíalískar breytingar
Ríkisstjórnin samþykkti á síðasta
fundi sínum að setja milljarða á
milljarða ofan í almannatrygg-
ingakerfið, hækka þakið á fæð-
ingarorlofi og tryggja hópum fólks
300 þúsund króna framfærslu.
Höldum því til haga að þetta er
sama ríkisstjórn og taldi allt fara í
bál og brand síðasta vor ef öllum
yrðu tryggð 300.000 króna lág-
markslaun. Einnig verðum við að
hafa í huga að fjárveitingarvaldið
er Alþingis, en ekki ríkisstjórnar-
innar, og kosti þessar útfærslur
ríkisstjórnarinnar fjármagn úr
ríkissjóði er þetta annaðhvort lýð-
skrum eða valdarán. Svo virðist
litlu skipta hvar fólk er í pólitík
fyrir kosningar. Þegar nær dregur
kjördegi verða allir sósíalistar.
sveinn@frettabladid.is
1 0 . o k t ó b e r 2 0 1 6 M Á N U D A G U r12 s k o ð U N ∙ F r É t t A b L A ð i ð
SKOÐUN
1
0
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:4
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
D
C
-6
C
6
8
1
A
D
C
-6
B
2
C
1
A
D
C
-6
9
F
0
1
A
D
C
-6
8
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
5
6
s
_
9
_
1
0
_
2
0
1
6
C
M
Y
K