Fréttablaðið - 06.08.2016, Blaðsíða 30
„Nafnið Skóbúðin er þannig til
komið að við erum í húsi sem er
bara þekkt sem Skóbúðin. Húsið
var byggt 1948 og þar var Skó-
búð Leós starfrækt frá byggingu
en Leó seldi Ísfirðingum skó frá
1904. Það er ekki endilega hægt
að breyta nöfnum á húsum því fólk
veit hvað húsið heitir og húsið veit
sjálft hvað það heitir. Svo passar
nafnið það ágætlega við sýninguna
okkar Göngutúr í okkar skóm eða
Take a walk in our shoes,“ segir
Björg.
Undirtitill Skóbúðarinnar er
Hversdagssafnið eða Museum of
the mun dane og hugmyndin er sú
að þar sé menningarvettvangur
sem miðlar vestfirskri menningu
og samfélagi í gegnum frásagnar-
listina, sem og sjón- og hljóðræna
miðla. Björg og Vaida hafa báðar
mikinn áhuga á að miðla hvers-
dagsleikanum enda er Björg mennt-
uð í hagnýtri menningarmiðlun og
Vaida í sjónrænni mannfræði.
„Við erum að safna þessum
hversdagssögum sem fólki dett-
ur ekkert endilega í hug að segja
og finnst ekkert merkilegar. Við
tókum viðtöl við fólk úr norðan-
verðum Ísafirði, skoðuðum mynda-
albúm og fengum sögurnar bak við
myndirnar. Þetta eru ekkert alltaf
hversdagslegar sögur og stundum
eru þær af dramatískum atburðum
en aðalmálið er kannski að þetta
eru ekki opinberar sögur heldur
sögur af mannlífinu, lífi fólks og
sjónarhornið okkar er þar.“
Eftir að sögurnar höfðu verið
valdar voru ljósmyndirnar sem
fylgdu hverri sögu skannaðar inn
og sagan skrifuð upp og svo bund-
in inn og sett á bókavegg þar sem
safngestir opna bækurnar, labba
á milli og lesa sögur. „Svo erum
við með bakherbergi þar sem við
sýnum vídeóverk af svæðinu og
þar er til dæmis núna í sýningu
verk sem heitir Waiting for the
storm sem sýnir þegar fólk er að
bíða eftir fárviðrinu sem er alltaf
yfirvofandi á veturna.“
Í Skóbúðinni er einnig hægt að
fá keypta list og hönnun frá fólki
sem býr á svæðinu eða tengist
því. Þessum varningi fylgja svo
líka sögur, bæði af tilurð hans og
þeirra sem búa hann til svo sög-
urnar eru víða í Skóbúðinni.
Björg og Vaida fengu styrki
bæði frá Uppbyggingarsjóði Vest-
fjarða og Atvinnumálum kvenna
til að koma Skóbúðinni á laggirn-
ar. „Við hugsum safnið og búðina
bæði fyrir ferðamenn, íslenska og
erlenda, því hugmyndin er að veita
innsýn í lífið og menninguna hér.
Íslenski textinn er sá fyrsti sem
maður sér. En bæjarbúum finnst
auðvitað líka gaman að koma og
lesa sögur af sér og þeim sem þeir
þekkja þó á öðruvísi forsendum sé.“
Og svo er það súkkulaðið. „Hug-
myndin með því var að búa til
eitthvað sem aðeins væri hægt
að fá í Skóbúðinni. Þetta eru litl-
ir skammtar þar sem fer saman
góður biti og góð saga því Skóbúð-
in snýst öll um sögur. Elsa Gugga,
súkkulaðisnillingur á Súðavík sem
rekur súkkulaðigerðina Sætt og
salt!, gerir súkkulaðið. Sögurnar
eru svona þrjóskusögur af svæð-
inu og þær eru prentaðar inn í
súkkulaðiumbúðirnar og ljúffeng-
ur biti fylgir með. Þessar súkkul-
aðisögur eru bara fáanlegar í Skó-
búðinni.“
Nánari upplýsingar um Skóbúðina
má finna á Facebook: https://www.
facebook.com/museum.mundane
Hversdagssögur í skóbúðinni
Þær Björg Sveinbjörnsdóttir og Vaida Braziunaite reka Skóbúðina sem stendur við Hafnargötu á Ísafirði. Þar er þó
ekki hægt að kaupa skó heldur er í Skóbúðinni bæði safn og verslun. Undirtitillinn er Hversdagssafnið.
Sögur í vasann eru súkkulaðimolar þar sem áhugaverðar sögur af þrautseigju
Ísfirðinga eru prentaðar á umbúðirnar sem Nina Ivonaova hannaði. Súkkulaðið
sjálft er handgert á Súðavík af súkkulaðimeistaranum Elsu Guggu sem framleiðir
undir vörumerkinu Sætt og salt!
Hönnuðurinn Marta Sif býr til þessar skemmtilegu lyklakippur úr gömlum skóm af
Ísfirðingum og bandi frá netagerðinni sem fæst í Skóbúðinni. Hún segir að það sé
satt sem sagt er um lyklakippur, það þurfi heilt þorp til að búa þær til.
„Það er ýmislegt sem gerist“ er nafnið á sagnaveggnum. Þessar fallegu bækur
geyma sögur úr hversdagsleikanum sem hafa nú verið skráðar. Þær hittu fólk með
myndaalbúmin sín og spjölluðu um myndirnar. Þannig komu sögurnar fram.
Björg Sveinbjörnsdóttir og Vaida Braziunaite í Skóbúðinni þar sem allt er sögur.
Eyesland . Gleraugnaverslun . Glæsibæ, 5. hæð . Sími 577 1015 . www.eyesland.is
Mikið úrval af fallegum sólgleraugum.
Líttu vel út í sumar!
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur@365.is
6 . á g ú s t 2 0 1 6 L A U g A R D A g U R6 F ó L k ∙ k y n n i n g A R b L A ð ∙ X X X X X X X XF ó L k ∙ k y n i n g A R b L A ð ∙ h e L g i n
0
6
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:5
8
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
3
0
-A
9
8
0
1
A
3
0
-A
8
4
4
1
A
3
0
-A
7
0
8
1
A
3
0
-A
5
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
9
6
s
_
5
_
8
_
2
0
1
6
_
C
M
Y
K