Fréttablaðið - 06.08.2016, Blaðsíða 44
Fasteignasalar
Er með löggildingu og lögmannsréttindi og óska eftir
aukavinnu eftir kl. 16 daglega og um helgar,
t.d. við yfirferð/ábyrgð skjala og sölumöt.
Vinsaml. hafið samband í adstoda@gmail.com
Stúdentaráð Háskóla Íslands auglýsir eftir nýjum
ritstjóra Stúdentablaðsins fyrir komandi starfsár.
Nánari upplýsingar eru að finna á www.student.is
Bæjarbakarí í Hafnarfirði
óskar eftir að ráða fólk í ýmis störf í
afgreiðslu í framtíðarstarf.
Íslenskukunnátta skilyrði.
Umsóknir sendar á bakari@bakari.is
Uppl. í s. 555 0480
Við leitum að
fjármálastjóra
Nánari upplýsingar er að finna á www.samgongustofa.is
Samgöngustofa ı Ármúli 2 ı 108 Reykjavík ı Sími 480 6000
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
16
-2
35
0
Hjá Samgöngustofu hlakka um 140 öflugir starfsmenn til þess að þú bætist í hópinn. Lagt er upp
með jákvæðan og skemmtilegan starfsanda, frumkvæði og þátttöku, auk þess sem mötuneytið er
frægt fyrir frábæran mat. Þess utan er Samgöngustofa stjórnsýslustofnun samgöngumála sem
annast eftirlit með flugi, siglingum og umferð. Á hverjum degi erum við að læra hvert af öðru og
sinna viðskiptavinum af kostgæfni með það að markmiði að verða betri og betri.
Krefjandi stjórnunarstarf hjá Samgöngustofu
Við leitum að öflugum einstaklingi í stöðu fjármálastjóra. Fjármálastjóri ber ábyrgð á vinnu við
fjárhagslegan rekstur, áætlanagerð, reikningshald, uppgjör, innra eftirlit og gjaldskrá stofnunarinnar.
Í starfinu felst einnig regluleg skýrslugerð til framkvæmdastjórnar og forstjóra auk samskipta
við innanríkisráðuneytið, Ríkisendurskoðun og Fjársýslu ríkisins.
Fjármálastjóri fer með faglega forystu og verkstjórn á daglegum verkefnum fjármáladeildar og
aðstoðar við samningagerð og önnur fjármálatengd verkefni. Fjármálastjóri fer með mannaforráð
yfir fimm starfsmönnum fjármáladeildar og vinnur náið með framkvæmdastjóra rekstrarsviðs sem
er næsti yfirmaður. Leitað er að jákvæðum dugnaðarforki sem er reiðubúinn að takast á við spennandi
verkefni á borð við áframhaldandi stefnumótun deildarinnar, innleiðingu nýrra kerfa, ný verkefni og
mótun verklags, einkum vegna nýrra laga um opinber fjármál. Starfshlutfall er 100%.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun á sviði fjármála, líkt og viðskiptafræði, rekstrarfræði eða sambærileg
menntun. Grunnháskólamenntun er skilyrði en framhaldsháskólamenntun er kostur.
• Haldgóð reynsla af fjármálastjórnun og víðtæk fjármálaþekking.
• Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum.
• Þekking á opinberum fjármálum og reynsla af uppbyggingu ferla og verklags er kostur.
• Góð tölvukunnátta er skilyrði og áhugi og ástríða gagnvart Excel er mikill kostur.
• Góð þekking á Navision bókhaldskerfi er kostur.
• Frumkvæði, skipulögð og nákvæm vinnubrögð, reynsla af verkefnastjórnun og sjálfstæði í starfi.
Í boði er fjölbreytt og spennandi starf í alþjóðlegu umhverfi, þar sem frumkvæði fær notið sín.
Nánari upplýsingar veitir Dagný Jónsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs, í síma 480 6000.
Umsóknarfrestur er til 22. ágúst 2016
Hægt er að sækja um starfið rafrænt á www.samgongustofa.is/storf
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda
í a.m.k. sex mánuði ef staða losnar á ný. Starfskjör eru í samræmi við kjarasamning ríkisins og
viðkomandi stéttarfélags. Samgöngustofa hvetur jafnt konur sem karla til að sækja um þessa stöðu. Starfsmaður
á smurstöð
Umsóknarfrestur er til og með 17. ágúst nk.
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja
um störf á heimasíðu HEKLU, www.hekla.is
Starfssvið:
• Almenn smurþjónusta.
Hæfniskröfur:
• Reynsla af smurþjónustu er kostur.
• Sjálfstæði í vinnubrögðum, metnaður og
vandvirkni.
• Góð íslensku- og tölvukunnátta.
• Liðlegheit í samskiptum og létt lundarfar.
• Stundvísi og almenn reglusemi.
Við hjá HEKLU óskum eftir
starfsmanni á smurstöð okkar.
Nánari upplýsingar veitir Gísli Elíasson, hópstjóri, í síma
590 5000 eða gel@hekla.is.
Yfir 150 manns starfa hjá HEKLU hf. en félagið er
leiðandi fyrirtæki í innflutningi, sölu og þjónustu við
nýjar og notaðar bifreiðar. Félagið er með umboð
fyrir Volkswagen, Audi, Skoda og Mitsubishi og
annast þjónustu við þessar tegundir. Höfuðstöðvar
HEKLU eru við Laugaveg 170-174 í Reykjavík.
Aðstoðarleikskólastjóra vantar við
leikskólann Kirkjugerði og við Víkina
Aðstoðarleikskólastjóri óskast að leikskólanum Kirkjugerði í
Vestmannaeyjum. Stjórnunarhlutfall 30%. á móti 70% starfi á deild.
Upp lýsingar gefur Emma H. Sigurgeirsdóttir leikskólastjóri Kirkju
gerðis. Umsóknir berist Þjónustuvers Ráðhúss, Kirkjuvegi 50, 900
Vestmanna eyjar merkt „Aðstoðarleikskólastjóri Kirkjugerði“.
Aðstoðarleikskólastjóri óskast við leikskóladeild Grunnskóla
Vestmanna eyja. Stjórnunarhlutfall 50% á móti 50% starfi á deild.
Upplýsingar gefur Sigurlás Þorleifsson skólastjóri GRV eða Jón
Pétursson framkvæmdastjóri fjölskyldu og fræðslusviðs
(jonp@vestmannaeyjar.is). Umsóknir berist til Þjónustuvers
Ráðhúss, Kirkjuvegi 50, 900 Vestmannaeyjar merkt
„Aðstoðarleikskólastjóri Víkin“.
Hæfniskröfur:
• Leikskólakennaramenntun og kennslureynsla í leikskóla.
• Menntun og reynsla í stjórnun æskileg.
• Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
• Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
• Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
Umsóknarfrestur er til 15. ágúst n.k.
Laun eru skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ
vegna Félags stjórnenda leikskóla.
Húsvörður
Húsfélagið að Blásölum 22 í Kópavogi vill ráða húsvörð í
hlutastarf en í húsinu eru 46 íbúðir.
Verkefni húsvarðar eru þrif á sameign, almenn umhirða húss,
lóðar og bílastæða auk almenns viðhalds og endurbóta.
Húsvörður þarf að vera laghentur og útsjónarsamur og skal
hafa auga fyrir snyrtimennsku og því sem betur má fara.
Lögð er áhersla á að umsækjandi sé sé jákvæður að eðlis-
fari og með góðan samstarfsvilja.
Skriflegar umsóknir ásamt ferilskrá og meðmælum berist:
Eignaumsjón hf. Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík eða
starfsumsokn@eignaumsjon.is
Umsóknarfrestur er til og með 11. ágúst 2016.
Ertu að leita að talent?
Við finnum starfsmanninn fyrir þig
lind@talent.is bryndis@talent.is
www.talent.is | talent@talent.is
0
6
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:5
8
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
3
0
-F
D
7
0
1
A
3
0
-F
C
3
4
1
A
3
0
-F
A
F
8
1
A
3
0
-F
9
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
9
6
s
_
5
_
8
_
2
0
1
6
_
C
M
Y
K