Fréttablaðið - 06.08.2016, Blaðsíða 80
Að venju efna Borgarbókasafnið, Bókmenntaborgin og Forlagið til sumarlesturs á meðal barna.
Fyrir hverja lesna bók skrá lesendur nafn sitt og titil bókarinnar á þar til gerða miða og setja í pott
sem dregið er úr vikulega. Lestrarhestur vikunnar hlýtur bók að launum.
Bragi Halldórsson
211
„Er þetta ekki talnavölundarhúsið þar sem við eigum að byrja
á bláu tölunni neðst og með því að fylgja bara sléttum tölum
lárétt og lóðrétt en ekki á ská, finna leið upp á topp
teningsins, bláu tölunnar átta?“ spurði Kata. „Jú,“ sagði
Lísaloppa. „Við eigum að fylgja sléttu tölunum 2, 4, 6, og 8.“
„Mig minnti það,“ sagði Kata. „Mér gekk nú ekkert of vel síðast
þegar við glímdum við svona þraut en nú skal það ganga betur,“
sagði hún ákveðin og keppnisskapið leyndi sér ekki.
Getur þú fundið leiðina í gegnum teninginn með því að fylgja
sléttu tölunum lárétt og lóðrétt?
8 6 2 5 3 7 8 6 2 5 7 9
2 5 2 4 1 8 4 3 7 8 3 2
6 8 5 6 4 2 5 4 2 6 7 6
5 4 8 1 7 4 5 9 3 8 2 4
2 5 2 2 6 5 2 3 6 3 5 6
3 4 2 3 5 1 2 6 4 2 8 4
4 6 4 2 5 2 9 1 3 6 2 9
7 6 7 3 1 3 7 3 2 8 7 8
5 8 9 4 8 4 2 5 4 3 9 2
6 8 5 2 1 3 6 8 6 4 2 6
2 1 6 4 3 7 3 2 8 2 7 2
2 6 4 7 8 6 8 4 5 1 5 6
Bríet Hrefna er fimm ára núna en
er samt alveg að verða sex. Hún
er nýlega búin að kveðja leik-
skólann Kór og byrjar bráðum
í Hörðuvallaskóla. Skyldi hún
ekki vera spennt? Jú, ég er mjög
spennt. Ég held að það verði
skemmtilegast ef við fáum að
mála stofuna.
Hvað ætlar þú að gera í sumar-
fríinu? Í sumar ætla ég að fara
í Disneyland og Lególand (þess
má geta að þetta hefur ekki verið
borið undir foreldra barnsins).
En veistu, Orri afi varð sextíu ára
um síðustu helgi og við héldum
veislu saman.
Hvað finnst þér skemmtilegast
að gera? Mér finnst skemmti-
legast að fara í tívolí og að eiga
afmæli.
Hver eru áhugamál þín? Ertu að
meina eins og að vera í sand-
kassa og svona? Það er samt
ekki að vera í sandkassa, það eru
trampólín og fimleikar.
Hvað er uppáhaldsdýrið þitt?
Röndótt fiðrildi og Dorrit,
hundurinn sem vinir mínir eiga.
Ertu að æfa eitthvað? Já, ég er
æfa að fimleika með Gerplu og
svo ætla ég að fara í fótbolta með
HK í haust. Vinkonur mínar ætla
með mér fótbolta.
Hvað ætlarðu að verða þegar
þú ert orðin stór? Ég ætla að
verða flugkona og búðarkona í
Krónunni. Svo ætla ég að verða
eitthvað annað sem ég veit ekki
alveg. Ég ákveð það þegar ég verð
fullorðin.
Hélt veislu með Orra afa
Þegar Bríet Hrefna Guðlaugsdóttir byrjar í grunnskóla í haust þætti
henni skemmtilegast ef krakkarnir fengju að mála skólastofuna.
Bríeti Hrefnu finnst skemmtilegast að fara í tívolí og að eiga afmæli. FréttaBlaðið/SteFán karlSSon
Allir þátttakendur leiksins setja einhvern hlut
í húfu. Einn tekur að sér að stjórna leiknum.
Hann er með húfuna og tekur
alltaf einn hlut úr henni í einu.
Stjórnandi byrjar á því að segja
hvað sá á að gera sem á fyrsta
hlutinn. Muna að hafa það eitthvað
létt eins og að hoppa á öðrum fæti,
flauta, klappa saman lófunum, syngja lag, fara með vísu eða hvað
annað sem er vel framkvæmanlegt. Þannig gengur þetta koll af kolli
þar til húfan er tóm.
Leikur vikunnar
Hlutirnir í húfunni
Hvað finnst þér skemmtilegast
við bækur? Að lesa þær og sérstak-
lega ef þær eru um dýr.
Hvaða bók lastu síðast og um
hvað er hún? Hulda Vala dýravinur
og töfrahálsmenið og er um stelpu
sem getur talað við dýr.
Manstu eftir fyrstu bókinni sem
var í uppáhaldi hjá þér? Þyrnirós.
Hvers konar bækur þykja þér
skemmtilegar? Langar bækur, löng
ævintýri.
Í hvaða skóla gengur þú? Norð-
lingaskóla.
Ferðu oft á bókasafnið? Fer eigin-
lega alltaf eftir skóla og stundum á
sumrin.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Lesa, hestar, að lita, ballett, spila á
píanó og gítar.
ef þú ætlaðir að skrifa bók, um
hvað ætti hún að vera og hvað
myndi hún heita? Um náttúruna og
sérstaklega dýr. Kannski myndi hún
bara heita Náttúran.
Lestrarhestur vikunnar Aldís Una, átta ára
aldís Una Þorgeirsdóttir fer oftast á bókasafnið eftir skóla og stundum á sumrin.
6 . á g ú s t 2 0 1 6 L A U g A R D A g U R32 h e L g i n ∙ F R É t t A B L A ð i ð
0
6
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:5
8
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
3
0
-9
5
C
0
1
A
3
0
-9
4
8
4
1
A
3
0
-9
3
4
8
1
A
3
0
-9
2
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
9
6
s
_
5
_
8
_
2
0
1
6
_
C
M
Y
K