Fréttablaðið - 31.10.2016, Blaðsíða 40
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og vinarhug við andlát og
útför elskulegs eiginmanns, föður,
tengdaföður og afa,
Páls Halldórssonar
Sléttuvegi 17, Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við hjúkrunarfólki Landspítalans
á Vífilsstöðum fyrir góða umönnun og stuðning við
fjölskylduna.
Ragnheiður S. Jónsdóttir
Gunnar Pálsson Elín Snorradóttir
Sigrún H. Pálsdóttir Eggert Bjarni Ólafsson
Halldór Pálsson
Ragnar K. Pálsson Latifa El Bassam
Kristín I. Pálsdóttir Ib Göttler
Sturla Pálsson Helga Jónsdóttir
Ragnheiður Pálsdóttir
Yndisleg eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Sigrún Gyða
Sveinbjörnsdóttir
Lambhaga 26, Selfossi,
lést miðvikudaginn 26. október.
Ólafur Th. Ólafsson
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Reynir Jónsson
Sunnubraut 16, Reykjanesbæ,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja,
föstudaginn 21. október.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju
fimmtudaginn 3. nóvember kl. 13:00.
Sævar Reynisson Gunnhildur Guðlaugsdóttir
Guðmundur Óli Reynisson Svala Rún Jónsdóttir
Jóhanna Reynisdóttir Ólafur Eyþór Ólason
Guðný Reynisdóttir Axel Arnar Nikulásson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Sigríður Einarsdóttir
Roðasölum 1, Kópavogi,
sem lést 19. október, verður jarðsungin
frá Kópavogskirkju miðvikudaginn
2. nóvember kl. 13.00.
Einar Stefánsson
Tryggvi Stefánsson Margret G Flóvenz
Erna Stefánsdóttir Hrafn Hilmarsson
Guðbjörg Sigrún Stefánsdóttir Oddur Árnason
og fjölskyldur.
Okkar ástkæri eiginmaður,
faðir tengdafaðir og afi,
dr. Jónas Bjarnason
efnaverkfræðingur,
lést á líknardeild Landspítalans
föstudaginn 21. október. Útför hans fer
fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn
1. nóvember klukkan 15. Blóm og kransar vinsamlega
afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hins látna er bent á
Hollvinasamtök Grensásdeildar.
Kristín G. Hjartardóttir
Jónas Örn Jónasson Kristín Lórey Guðlaugsdóttir
Kristófer Már Jónasson Óliver Örn Jónasson
Kristian Þór Jónasson
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Hilmar Guðbrandsson
Gullsmára 7,
áður til heimilis í Hraunbæ 132,
andaðist á heimili sínu laugardaginn
22. október. Útför hans fer fram frá
Árbæjarkirkju þriðjudaginn 1. nóvember kl. 13.00.
Bjarney Guðjónsdóttir
Helga Hilmarsdóttir Örn Þráinsson
Guðjón Hilmarsson S. Ingibjörg Jósefsdóttir
Bragi Hilmarsson Björk Norðdahl
Arnar Hilmarsson Margrét Guðmundsdóttir
Arndís Hilmarsdóttir Guðmundur Mar Magnússon
barnabörn og barnabarnabörn.
Hrekkjavaka gengur formlega í garð í dag,
þó að margir hafi orðið varir við Hrekk-
javökupartí um nýliðna helgi. Flestir
tengja Hrekkjavöku við Bandaríkin, en
siðurinn er mun eldri og barst til Banda-
ríkjanna með Írum og Skotum sem fluttu
þangað á 19. öld.
„Þetta er fyrst og fremst hátíð sem á
rætur sínar að rekja til keltneskra þjóða,
sem voru víðast hvar í Norður-Evrópu til
dæmis í Frakklandi og Bretlandi og í Skot-
landi og á Írlandi. Þetta á rætur sínar að
rekja til heiðinnar hátíðar frá því á fyrstu
öld fyrir Krist og hét þá Samhaim,“ segir
Kristinn Schram, lektor í þjóðfræði við
Háskóla Íslands.
„Nafnið Halloween kemur frá því að
þegar kirkjan yfirtekur þennan sið, þá
verður þetta að Allraheilagramessu. Þetta
er stytting á All Hallow's Evening," segir
Kristinn.
Hann segir óvíst hvenær nákvæmlega
hátíðin kom til Íslands. „En maður hefur
fundið fyrir því á síðustu tveimur áratugum
sérstaklega að krakkar séu að bera sig til við
það að ganga í hús og halda Hrekkjavökup-
artí. Maður sér einnig að þetta er farið að
einkenna skemmtanalífið á þessum degi,
og barir, ekki síst þar sem er mikið um
ferðamenn, eru farnir að halda þennan
dag hátíðlegan."
Dagurinn er fyrsti vetrardagur í kelt-
nesku tímabili. „Það má marka þetta sem
upphaf dekkri helming ársins og þetta er
dagur sem er á mörkum tveggja heima,
heima þeirra lifandi og látinna, okkar
mannfólksins og álfheima. Fólk taldi að
sálir þeirra sem höfðu látist á árinu, og
álfar, væru jafnvel á ferli. Til að halda þess-
um vættum góðum þá voru þeim gefnar
matargjafir. Þetta er að einhverju leyti
rætur þess siðar að ganga í hús og biðja um
sælgæti," segir Kristinn.
Hann segir að Írar og Skotar hefðu
verið að skera út næpur og setja kerti í þær,
en þegar þeir komu til Suðurríkja Banda-
ríkjanna lá beinast við að nota grasker
sem er miklu stærra sem lukt. „Í Banda-
ríkjunum þróaðist þetta yfir í það að vera
kannski barnahátíð, en þó held ég að kjarni
hennar hafi að einhverju leyti haldist sem
er ákveðin óttablandin virðing fyrir hinu
yfirnáttúrlega," segir Kristinn.
saeunn@frettabladid.is
Sérstaklega áberandi á
Íslandi síðustu tvo áratugi
Hrekkjavaka á rætur sínar að rekja til heiðinnar hátíðar frá fyrstu öld fyrir Krist. Hátíðin
var fyrst haldin meðal keltneskra þjóða og færðist til Bandaríkjanna á 19. öld. Dagurinn
markar upphaf dekkri helming ársins og er á mörkum heima hinna dauðu og lifandi.
Írar og Skotar skáru út næpur og settu kerti í þær á Hrekkjavöku, en þegar þeir komu til Suðurríkja Bandaríkjanna lá beinast við að nota
grasker, sem er miklu stærra sem lukt. FréttaBlaðið/Getty
Kristinn Schram, lektor í þjóðfræði við Há-
skóla Íslands. Mynd/KS
Barir, ekki síst þar sem
er mikið um ferða-
menn, eru farnir að halda
þennan dag hátíðlegan.
Merkisatburðir
1517 Marteinn Lúther hengir skjal í 95 greinum á kirkjudyrnar í
Wittenbergkastala og hefur með því siðbótina.
1817 Í Reykjavík er minnst þriggja alda afmælis siðbótar Marteins
Lúthers.
1931 Akstur Strætisvagna Reykjavíkur hefst og er fyrsta leiðin
Lækjartorg-Kleppur.
1934 Hæstiréttur Íslands dæmir Þórberg Þórðarson til að greiða
200 krónur í sekt fyrir meiðandi ummæli um Adolf Hitler og stjórn
Þriðja ríkisins.
1936 Þjóðviljinn hefur göngu sína og styður Kommúnistaflokkinn
og síðar Sósíalistaflokkinn og Alþýðubandalagið.
1964 Á Miklatúni í Reykjavík er afhjúpuð stytta af Einari Benedikts-
syni til að minnast aldarafmælis skáldsins.
1975 Marokkó sendir her sinn inn í Spænsku-Sahara í aðdraganda
Grænu göngunnar.
1984 Indira Gandhi, forsætisráðherra Indlands, er myrt af líf-
vörðum sínum.
3 1 . o k t ó b e r 2 0 1 6 M Á N U D A G U r16 t í M A M ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
tímamót
3
1
-1
0
-2
0
1
6
0
5
:1
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
1
D
-7
3
3
0
1
B
1
D
-7
1
F
4
1
B
1
D
-7
0
B
8
1
B
1
D
-6
F
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
3
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K