Fréttablaðið - 31.10.2016, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 31.10.2016, Blaðsíða 10
Við skiljum eftir drauma í Póstboxi fyrir þá sem ætla sér stóra hluti VIÐ KOMUM ÞVÍ TIL SKILA Níu þingmenn sem óskuðu endur- kjörs í kosningunum síðastliðinn laugardag náðu ekki kjöri og falla af þingi. Sameiginleg þingreynsla þessara níu þingmanna er hvorki meiri né minni en rúm 77 ár. Samfylkingin galt afhroð í öðrum kosningum sínum í röð og fékk flokkurinn aðeins þrjá menn kjörna á þing. Fimm þingmenn flokksins féllu í kosningunum, öll á höfuðborgarsvæðinu. Þau Helgi Hjörvar, Sigríður Ingibjörg Inga- dóttir, Valgerður Bjarnadóttir og Össur Skarphéðinsson óskuðu öll eftir endurkjöri í Reykjavík en án árangurs. Einnig féll Árni Páll Árna- son, fyrrum formaður flokksins, af þingi í kraganum. Össur Skarphéðinsson kom inn sem nýr þingmaður eftir kosning- arnar árið 1991 og hafði því setið á alþingi í aldarfjórðung þegar hann féll af þingi og samflokksmaður hans, Helgi Hjörvar, hafði setið í rúm 13 ár þegar hann féll af þingi. Fjórir þingmenn, þrír úr Fram- sókn og einn úr Bjartri framtíð, féllu af þingi eftir aðeins eitt kjörtímabil. Þá féllu þrír þingmenn Fram- sóknarflokksins, þau Karl Garðars- son, Líneik Anna Sævarsdóttir og Willum Þór Þórsson. Auk þess féll Páll Valur Björnsson úr Bjartri fram- tíð einnig af þingi. Áratuga reynsla fallin af þingi Samanlagður þingaldur þeirra níu einstaklinga sem féllu af þingi í kosningum helgarinnar eru tæpir átta áratugir. Össur Skarphéðinsson hafði setið á þingi í 25 ár. Sigríður Ingibjörg segir að nú taki við nýr kafli. ALÞINGI 32 nýir þingmenn hlutu kjör í þingkosningunum í fyrra- dag. Þetta er hæsta hlutfall nýrra þingmanna í sögunni. Fyrir áttu kosningarnar 2009 og 2013 metið en þá voru 27 nýir þingmenn eða 42,9 prósent. Af nýju þingmönnunum hafa þrír setið áður á Alþingi. Það eru Ólöf Nordal, Þorgerður Katrín Gunn- arsdóttir og Jón Þór Ólafsson. Sjö þingmenn hafa áður tekið sæti sem varamenn en í þeim hópi eru tveir Sjálfstæðismenn, tveir Píratar, tveir frá Vinstri grænum og Samfylking- armaður. 22 þingmenn hafa aldrei áður tekið sæti á þingi. Í þeim hópi er þó að finna þingmenn sem þekkja þingstörfin ágætlega. Þá er átt við utanríkisráðherrann Lilju Dögg Alfreðsdóttur og aðstoðarmennina Teit Björn Einarsson og Þórdísi Kol- brúnu Reykfjörð Gísladóttur. – jóe Nýir þingmenn aldrei fleiri ALÞINGI Aldrei hafa fleiri konur náð kjöri til þings en nú. Alls eru þrjá- tíu þingmenn kvenkyns. Fyrra met var frá kosningunum 2009 þegar 27 konur náðu kjöri. Í kosningunum 2013 náðu 25 þingkonur kjöri en í lok kjörtímabils áttu 28 þingkonur fast sæti á þingi. Var það eftir að Ásta Guðrún Helgadóttir, Ólína Þor- varðardóttir og Sigríður Á. Ander- sen tóku fast sæti sem aðalmenn. Flestar þingkonur eru innan raða Sjálfstæðisflokksins eða alls sjö. Þær mynda hins vegar aðeins þriðjung þingflokksins. Það er lægsta hlutfall allra þingflokka. – jóe 30 konur kjörnar Sigríður Ingibjörg er þakklát fyrir þann tíma sem hún átti á þingi, en hún tók þar sæti árið 2009. „Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að sitja tvö kjörtímabil á þingi og ég vona að ég hafi gert eitthvað gagn á þeim tíma. Nú tekur við nýr kafli þegar þessum lýkur,“ segir Sigríður. Hún segir fjölda flokka vera til trafala fyrir framgang félagshyggjunnar. „Þessi fjölbreytta flóra flokka við- heldur Sjálfstæðisflokknum við völd sem getur þá handstýrt hverja hann vill fá til samstarfs.“ Páll Valur Björnsson er ánægður eftir sitt kjörtímabil á þingi. „Þessi þrjú og hálft ár hafa verið ótrúleg, hvernig sem á það er litið, gríðar- lega krefjandi, lærdómsrík og lang- oftast skemmtileg. Það eru alltaf vonbrigði þegar að maður nær ekki markmiðum sínum og þannig er það hjá mér núna,“ segir Páll Valur. sveinn@frettabladid.is Af þeim 63 einstaklingum sem taka sæti á þingi eftir kosningar eru þrjátíu og tveir þeirra nýir þing- menn. Sjö af þessum 32 hafa þó tekið sæti á Alþingi áður sem varaþingmenn á fyrri tímum en voru ekki kjörnir alþingismenn á síðasta kjörtímabili. Þrír þessara nýju þingmanna hafa áður setið á þingi. Það eru Jón Þór Ólafsson, þing- maður Pírata, sem sagði af sér þingmennsku á síðasta kjörtímabili fyrir sama flokk, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrrum varaformaður Sjálfstæðis- flokksins og mennta- málaráðherra hans frá 2003-2009, og Ólöf Nordal, innanríkisráðherra, sem var kjörinn þingmaður frá 2007-2013. Kosningar 2016 Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að sitja tvö kjörtímabil á þingi og ég vona að ég hafi gert eitthvað gagn á þeim tíma. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir fyrrum þingmaður 3 1 . o K t ó b e r 2 0 1 6 M Á N U D A G U r10 f r é t t I r ∙ f r é t t A b L A ð I ð 3 1 -1 0 -2 0 1 6 0 5 :1 7 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 1 D -6 E 4 0 1 B 1 D -6 D 0 4 1 B 1 D -6 B C 8 1 B 1 D -6 A 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 3 0 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.