Fréttablaðið - 31.10.2016, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 31.10.2016, Blaðsíða 16
Fæst í apótekum, heilsubúðum og stórmörkuðum. Frábært til að bæta hormónajafnvægi fyrir konur á öllum aldri Heilbrigðari og grennri Rannsókn sýna að konur sem hafa mikið lignans i blóðinu eru að meðaltali með 8,5 kg minni fitumassa en þær konur sem skortir eða hafa lítið af Lignans.** * Howel AB Journal of the American Medical Associaton june 2002 287:3082 ** British Journal of Nutrition(2009), 102: 195-200 Cambridge University. 1 kúfuð teskeið á dag - 40 daga skammtur Mulin hörfræ - rík af Lignans Trönuberjafræ Kalk úr hafþörungum CC FLAX • Regluleg inntaka stuðlar að kjörþyngd • Omega 3- ALA • Fjölbreyttar trefjar NÝJAR UMBÚÐIR SLEGIÐ Í GEGN Í VINSÆLDUM - FRÁBÆR -ÁRANGUR PREN TU N .IS Þrjár einfaldar tillögur að draugum: Bananadraugakór fer stórskemmtilega á bakka. Afhýð­ ið banana, skerið í tvennt og leggið á bretti. Bræðið svo súkku­ laði í potti og notið grillpinna eða mjóan pensil til að mála andlit á bananana. Raðið þeim svo upp á fat svo þeir myndi fyndinn hóp af syngjandi draugum. Draugasleikjó er útbúinn úr hvítum servéttum og spotta. Leggið servéttuna yfir kúlulaga sleikjó og bindið saman undir kúl­ unni. Málið svo draugaleg andlit með tússpenna á „hausinn“. Þessa drauga sleikjóa er gaman að gefa þeim sem banka í kvöld. Dýsætir draugar úr sykurpúð­ um fara vel á borði. Stingið ein­ faldlega grillpinnum í sykurpúð­ ana og notið bráðið súkkulaði til þess að mála andlit á þá. Hrekkjavökuföndur „Við höfum slegið upp Hrekkja­ vökupartýi annað hvert ár. Byrj­ uðum á því fyrir mörgum árum, löngu áður en hrekkjavakan fór að festa sig að ráði í sessi hér á Íslandi. Systir mín er gift Am­ eríkana og hann kom með þessa hefð inn í fjölskylduna,“ segir Þorgerður Hafsteinsdóttir, hár­ snyrtir sem blæs til hrekkja­ vökuveislu í kvöld með fjölskyld­ unni. „Við leggjum mikinn metn­ að í þetta, heimilið er allt und­ irlagt og við tökum allavega tvo daga í að skreyta. Yfirleitt búum við til draugahús í bílskúrnum. Krökkunum finnst þetta alveg frábærlega skemmtilegt,“ segir Þorgerður. „Ég á fjóra stráka, 14, 16, 25 og 28 ára Það er enginn þeirra vaxinn upp úr þessu. Þessi 25 ára tók til dæmis að sér að græja draugahúsið síðast. Það heyrast meira að segja óhugguleg hljóð í draugahúsinu og svo var útbú­ inn einhver ógeðslegur karl sem lá dauður í baðkarinu. Það hefur ýmislegt verið græjað.“ Þora krakkarnir í hverfinu að banka upp á? „Það var eigin­ lega ekkert um að krakkar færu milli húsa hér í kring fyrr en í fyrra, en þá vorum við ekki með draugahúsið, við gerum þetta bara annað hvert ár. Við verðum með hrekkjavöku í ár og tókum alla helgina í að undirbúa og skreyta,“ segir Þorgerður. „Við bjóðum gestum til okkar og hver og ein fjölskylda kemur með eitthvað ógeðslegt á mat­ arborðið. Síðast bauð ég upp á horugan Shrek, úr grænlituðu skyri. Það hafði enginn lyst á því, sem var dálítið fyndið. Yfir­ leitt er líka blóðsúpa á borðum, sem er bara tómatsúpa. Mamma mín, amman í hópnum sér allt­ af um að útbúa súpuna og svo bökum við brauðfingur sem við dýfum í.“ AmmA hrærir í blóðsúpu Óhugguleg hljóð munu heyrast úr bílskúr í Hafnarfirði í kvöld en fjölskylda Þorgerðar Hafsteinsdóttur tekur Hrekkjavökuna alvarlega. Húsið er skreytt hátt og lágt og amman hrærir í eldrauða blóðsúpu. Ófrínileg frú úr hráskinku og hrökkbrauði Skuggalegur gaur í Hafnarfirði. Veisluborðið verður gjarnan hrikalegt hjá fjölskyldunni. 3 1 . o k t ó b e r 2 0 1 6 M Á N U D A G U r4 F ó l k ∙ k y N N i N G A r b l A ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ k y N N i N G A r b l A ð ∙ H e i M i l i 3 1 -1 0 -2 0 1 6 0 5 :1 7 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 1 D -7 D 1 0 1 B 1 D -7 B D 4 1 B 1 D -7 A 9 8 1 B 1 D -7 9 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 3 0 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.