Fréttablaðið - 31.10.2016, Blaðsíða 11
Kynntu þér Veitur á veitur.is og á Facebook
Kalda vatnið er bara
örlítið fljótara að renna
frá Gvendarbrunnum út
á Seltjarnarnes en það
tekur þig að horfa á alla
Stranger Things þættina
Viltu komast á samning hjá okkur?
Við leitum að tveimur jákvæðum og námsfúsum vél-
virkjanemum sem eru búnir með grunndeild og langar
til að kynnast stærsta veitukerfi landsins – og halda
viðskiptavinum okkar á höfuðborgarsvæðinu í sambandi
alla daga.
Við bjóðum upp á metnaðarfulla nemaþjálfun þar sem þú
getur klárað allt starfsnám á einum stað og fengið góðan
undirbúning fyrir sveinspróf.
Fjölbreytt úrlausnarefni
Hjá okkur kynnist þú fjölbreyttri starfsemi og verkefnum; hvernig heitu
vatni er dælt úr borholum, úrgangur hreinsaður í fráveitu og köldu vatni
dreift – svo nokkuð sé nefnt. Þú færð skemmtilega og hagnýta reynslu af
því að vinna með reynslumiklu fagfólki á fjölbreyttum og lifandi vinnustað
sem leitast við að vera í fremstu röð hvað snertir öryggi, vinnuumhverfi
og möguleika til að samræma vinnu og fjölskylduábyrgð.
Við tökum jafnréttið alvarlega
Að jafnaði höfum við tvo vélvirkjanema í starfsnámi, sinn af hvoru kyni.
Því hvetjum við jafnt stúlkur sem pilta til að sækja um og kynna sér
nám í vélvirkjun.
Ef þú vilt sækja um starfsnám ferðu á starf.or.is/veitur/ og fyllir út
umsókn. Umsóknarfrestur er til 21. nóvember. Nánari upplýsingar
veitir Bryndís Ernstsdóttir mannauðsráðgjafi í netfanginu
starf@veitur.is.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
-
1
6
-3
1
3
5
Velkomin í draumaland vélvirkjans
Þorvaldur
Þorvaldsson
0,3%
Við bættum nokkuð við okkur. Menn geta spurt sig hversu langt það nær
en ég held að ávinningar okkar af
kosningunum liggi að miklu leyti
í öðrum hlutum. Við teljum að
okkar málflutningur hafi skotið
rótum og hann hafi náð til margfalt
fleiri en áður og fengið góðar við-
tökur,“ segir Þorvaldur Þorvalds-
son, formaður Alþýðufylkingar um
niðurstöður kosninganna.
Þorvaldur segir flokkinn hvergi
nærri hættan. „Við erum mjög
bjartsýn á að kosningabaráttan
núna verði lyftistöng fyrir frekari
uppbyggingu flokksins. Við erum
rétt að byrja. Baráttan heldur
áfram.“
Við erum mjög ánægð með það að hafa boðið fram þó ekki væri nema í einu kjör-
dæmi. Núna í þessum kosningum
var miklu meiri kynning á nánast
öllum flokkum. Við höfum aldrei
fengið aðra eins kynningu,“ segir
Júlíus Valdimarsson, formaður
Húmanistaflokksins, um niður-
stöður kosninganna. Flokkurinn
bauð eingöngu fram í Reykjavík
suður og fékk 0,1 prósent atkvæða.
Júlíus segir fylgi Sjálfstæðis-
flokks uggvænlegt. Það hafi komið
á óvart. Ég sé það þannig að það
er einhvern veginn inngróin tiltrú
á sterka manninn í þjóðfélaginu.
Það er gífurlegur ótti um fram-
tíðina og fólk er hrætt við að fara
nýjar leiðir.“
Júlíus
Valdimarsson
0,1%
Inga
Sæland
3,5%
Viðbrögðin eru náttúrulega bara dásamleg. Ég meina vá. Eins og við sögðum, við erum
sigurvegarar, það er bara svoleiðis.
Þetta er bara byrjunin, við ætlum að
halda áfram, baráttan er bara rétt að
byrja,“ segir Inga Sæland, formaður
Flokks fólksins um niðurstöðu
kosninganna.
Hún segir næsta skref vera frekari
uppbyggingu. „Þetta er byr undir
báða vængi. Við erum bjartsýn
og brosandi eins og alltaf. Þetta er
yndislegt, það er bara þannig. Hugs-
aðu þér, á sjöunda þúsund manns
treystu okkur og gáfu okkur sitt dýr-
mæta atkvæði. Það er alveg ómetan-
legt,“ segir Inga.
Mín viðbrögð eru náttúrulega þau, fyrir okkur í Bjartri framtíð, að við erum mjög
sátt við þessa niðurstöðu. Miðað
við að okkur var ekki huguð nokkur
framtíð í sumar þá er yfir sjö pró-
senta fylgi og fjórir þingmenn mjög
jákvætt. En það er leiðinlegt að fá
færri þingmenn og sérstaklega að
missa Pál Val Björnsson sem var
orðinn einn af okkar sterkustu þing-
mönnum,“ segir Óttarr Proppé, for-
maður Bjartrar framtíðar, en flokkur
hans bauð fram í fyrsta sinn í alþing-
iskosningunum 2013.
Í aðdraganda kosninganna mæld-
ist flokkurinn ekki með þingmann
inni en rétti úr kútnum undir lokin.
Hann segir athyglisvert að sjá
breytingar í pólitísku landslagi.
Ákveðinn valdastrúktúr hafi verið
brotinn upp og spennandi sé að sjá
hvernig takist að vinna úr stöðunni.
„Það sem er athyglisvert, af því
við í Bjartri framtíð höfum gjarnan
talað fyrir breyttum vinnubrögðum
í pólitík, þá er að mörgu leyti spenn-
andi að sjá framhaldið af því það
liggur ekki í augum uppi annað en
að gömlu góðu aðferðirnar séu ekki
í boði lengur,“ segir Óttarr um fram-
haldið.
Við erum bara kát í Viðreisn,“ segir Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar. Flokkur
hans bauð fram í fyrsta skipti nú um
helgina og uppskar sjö þingmenn,
Benedikt þeirra á meðal. Tvísýnt var
miðað við skoðanakannanir hvort
hann kæmist á þing en Benedikt var
inni allt frá fyrstu tölum.
Enginn nýr flokkur hefur fengið
meira fylgi í sínum fyrstu kosn-
ingum utan Borgaraflokks Alberts
Guðmundssonar sem klauf sig frá
Sjálfstæðisflokki og bauð fyrst fram
árið 1987. Sá flokkur fékk 10,8 pró-
sent atkvæða.
„Við erum búin að ná miklum
árangri á skömmum tíma og von-
umst til þess að geta fylgt því eftir
með vasklegri stjórnarmyndun á
ennþá skemmri tíma,“ segir Bene-
dikt. Hann bætir því við að engar
formlegar viðræður hafi enn átt sér
stað „en eins og kom fram í þessum
samtalsþætti sem við vorum í á
RÚV þá erum við eiginlega stöðugt
saman í einhverjum þáttum þannig
maður er að hitta þetta fólk þrisvar
á dag.“
Benedikt segir það því ekki vera
þannig að þau tali ekki saman, enda
beri þeim skylda til þess.
Óttarr
Proppé
7,2%
Benedikt
Jóhannesson
10,5%
Birgitta
Jónsdóttir
14,5%
Við erum rosalega ánægð og þakklát fyrir það að hafa tekist að þrefalda flokkinn
okkar á þremur árum,“ segir Birg-
itta Jónsdóttir, þingflokksformaður
Pírata, um niðurstöður kosning-
anna. Píratar bættu við sig 9,4 pró-
sentustigum frá síðustu kosningum
og fengu 14,5 prósent fylgi og tíu
þingmenn. Flokkurinn bauð fyrst
fram árið 2013 og fékk þá þrjá þing-
menn.
Þá segir Birgitta erfitt að segja
til um hvernig næstu dagar muni
þróast.
„Ég á mjög erfitt með að vera
véfrétt varðandi það hvernig þetta
mun þróast næstu daga en þetta
verður örugglega svolítið flókið,“
segir Birgitta. – þea
f r é t t i r ∙ f r é t t A B L A ð i ð 11M Á N U D A G U r 3 1 . o k t ó B e r 2 0 1 6
3
1
-1
0
-2
0
1
6
0
5
:1
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
1
D
-5
F
7
0
1
B
1
D
-5
E
3
4
1
B
1
D
-5
C
F
8
1
B
1
D
-5
B
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
3
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K