Fréttablaðið - 05.07.2016, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 05.07.2016, Blaðsíða 40
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja Jóns Sigurðar Eyjólfssonar Bakþankar Ég sit í mannþröng mikilli, syng þjóðsönginn í bringuna á mér – sönghæfileikar leyfa ekki meira – og horfi á sjónvarpsskjá sem hangir yfir mér líkt og stjarna yfir vitringunum forðum. Svo allt í einu hljómar Eldgamla Ísafold af svo miklum þunga að jörðin skelfur. Ég hafði ekki tekið eftir því en ég er umvafinn Eng- lendingum. Ég verð hvekktur mjög. Lít í kringum mig og sé urmul af bjórbullum jafn ófrýnilegum og tröllum í íslenskum barnabók- menntum. Ég fer að hugsa með mér hversu ómenningarleg enska þjóðin sé, kemst meira að segja að því að besti rithöfundur þeirra hafi verið Pólverji sem kallaði sig Joseph Conrad. Svo skora Englendingar úr víti og allir öskra jeee! Eins og fáráðlingar. Ég ætla ekki að segja frá hugleið- ingum mínum sem leiddu til þeirrar niðurstöðu að Englendingar væru upp til hópa hinir mestu örvitar. Korteri síðar var ég farinn að titra af unun eins og eitt eilífðar smáblóm. Um sama leyti komst ég að þeirri niðurstöðu að allir Bretar væru, inn við beinið, hið besta fólk. Mikil menningarþjóð og þakka mætti fyrir ríkulegt framlag þeirra til heimsmenningarinnar. Á því andartaki komst Joseph Conrad ekki í landslið enskra rithöfunda. Svo kom það fyrir að ensk kona féll í yfirlið á næsta borði. Þá varð samkennd svo mikil að ég fann ekki hvar sál mín endaði og sál allra Breta byrjaði. Er ekki lífið eins og að horfa á fótboltaleik? Þegar maður er óttasleginn og illa gengur er fólkið ömurlegt. Þegar vel gengur er fólk til fyrirmyndar. Og svo gerist stundum eitthvað sem minnir mann á að við sitjum öll saman í þessari súpu sem við köllum líf. Lífið er eins og að horfa á leik Opið allan sólarhringinn í Engihjalla, Vesturbergi og Arnarbakka GSM 2.990 KR.* 1817 365.is ÓTAKMARKAÐ TAL, SMS OG ÓTAKMARKAÐ GAGNAMAGN Endalaust *Greitt er aukalega fyrir farsímanotkun erlendis, til útlanda og í upplýsinganúmer. Nánari upplýsingar á 365.is 0 5 -0 7 -2 0 1 6 0 4 :5 7 F B 0 4 0 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 E A -2 4 C 4 1 9 E A -2 3 8 8 1 9 E A -2 2 4 C 1 9 E A -2 1 1 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 0 s _ 4 _ 7 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.