Fréttablaðið - 05.07.2016, Blaðsíða 21
l Útlit
l Staðalbúnaður
l Verð
bíll reynast? Fyrir það fyrsta er
ytra útlit hans ágætlega lukk-
að. Hann er með flottum og nokk-
uð köntuðum línum, snaggara-
legur með sitt kassalaga form, en
samt nútímalega teiknaður. Hann
er með rísandi gluggalínu og verð-
ur því sportlegur fyrir vikið. Aft-
urglugginn er fremur smár og
því verður afturendinn örlít-
ið fólksbílalegur. Þaklína bíls-
ins fer lækkandi aftur og því má
segja að bíllinn sé með hálfgerðu
coupé- formi. Ekki fer fjarri að
hann minni örlítið á Range Rover
Evoque og er þar ekki leiðum að
líkjast. Að mati greinarskrifara
fer hér fallegasti bíll SsangYong
og á það bæði við um styttri bíl-
inn Tivoli og þann lengri, XLV. Að
innan er Tivoli einnig hinn snotr-
asti bíll og fyrir svo ódýran bíl
kemur bæði staðalbúnaður og frá-
gangur á óvart. Efnisval innrétt-
ingarinnar er þó í ódýrari kantin-
um og plast þar ríkjandi en lítur
samt vel út. Talandi um verð þá
má fá Tivoli frá 3.790.000 krón-
um. Er þá um að ræða beinskiptan
bíl með tauáklæði, en hann kost-
ar 4.390.000 kr. sjálfskiptur og
4.890.000 kr. með leðuráklæði á
sætum og ýmislegt fleira góðgæti.
1,6 lítra dísilvél með 300 Nm tog
Bæði Tivoli og XLV koma með
1,6 lítra bensín- eða dísilvélum
frá framleiðanda sem báðar upp-
fylla Euro 6 staðalinn, en í bili
eru þeir aðeins í boði hjá Bíla-
búð Benna með dísilvélinni. Hún
er skráð fyrir 115 hestöflum og
dugar bílnum hreint ágætlega.
Enda er hún með 300 Nm tog og
með henni finnst ökumanni bíll-
inn aldrei aflvana, þó svo allt-
af sé gaman að vera með aðeins
meira afl. Uppgefin eyðsla dísil-
vélarinnar er litlir 4,7 lítrar og
í reynsluakstri hjó bíllinn bara
nokkuð nálægt þeirri tölu, þó svo
hún næðist aldrei alveg. Það er í
sjálfu sér hreint magnað að það
dugi jepplingi að vera með aðeins
1,6 lítra sprengirými og að ná svo
lágum eyðslutölum á slíkum bíl.
Það eru breyttir tímar og jepp-
lingar geta greinilega eytt jafn
litlu og fólksbílar. Vélarnar tengj-
ast svo 6 gíra Aisin-sjálfskiptingu
eða beinskiptingu og virkuðu þær
báðar vel og var talsverð hrifn-
ing yfir þægilegri beinskipting-
unni. Tivoli og XLV eru hérlend-
is aðeins í boði fjórhjóladrifnir þó
svo bíllinn sé einnig framleiddur
með framhjóladrifi. Annar kostur
við bílinn er að hann kemur með
læsanlegum millikassa, svo þessi
bíll er alveg fær um að glíma við
ófærurnar.
Á mjög góðu verði
Þó svo að Tivoli teljist ekki stór-
vaxinn jepplingur þá er yfrið
pláss fyrir aftursætisfarþega,
sem og í farangursrými hans,
sem er 423 lítrar. Satt að segja
kom mikið á óvart hve mikið
fóta- og höfuðrými eru í aftur-
sætunum. Ef stærri XLV bíllinn
er valinn er gott að vita af 720
lítra farangursrými hans og er
sú stærð farin að minna á stóra
jeppa. Ekki vantar svo hin ýmsu
geymslurými og er það til vitn-
is um sniðuglega innri hönnun
bílsins. Aksturseiginleikar bíls-
ins eru hreint ágætir, hliðar halli
lítill í beygjum og fjöðrunarkerf-
ið át vel allar misfellur. Mjög
þægilegt er að snattast á bílnum
í borgarumferð og hann ræður
ágætlega við hraða utan henn-
ar, en þar voru þó aksturseig-
inleikarnir síðri. Erlendir bíla-
blaðamenn, ásamt greinarrit-
ara eru sammála um að hér fari
besti bíll Ssang Yong hingað til
og er það ekki slæmur dómur.
Ekki er svo verra að vita af 5 ára
ábyrgð frá framleiðanda. Svolít-
ið erfitt er að bera saman verð
samkeppnisbíla Tiv oli, en Niss-
an Juke með framhjóladrifi má
fá frá 3.490.000 kr. en fjórhjóla-
drifinn frá 4.590.000 kr. en þá er
hann kominn með 190 hestafla
dísilvél. Renault Captur kostar
frá 3.390.000 kr. en þar fer einn-
ig framhjóladrifinn bíll með að-
eins 90 hestafla vél.
SSaNgyoNg
Tivoli
er einkar vel
búinn bíll miðað
við hversu ódýr
hann er
SkoTTrými
er 423 lítrar en
720 lítrar í
stærri Xlv
bílnum
Ekki Er vErra
að vita af 5 ára
ábyrgð frá
framleiðanda
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði www.skoda.is
Stenst kröfur sem stærri
bílar væru stoltir af
Verð frá aðeins
2.990.000 kr.
ŠKODA Rapid kemur skemmtilega á óvart, bæði í akstri og viðmóti. Hreinar línur, nýtt aflmikið yfirbragð
og tímalaus fágun gera Rapid að frábærum kosti. Komdu í reynsluakstur og snertu á framtíðinni.
Fréttablaðið
7BílarÞRIÐJUDAGUR 5. júlí 2016
0
5
-0
7
-2
0
1
6
0
4
:5
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
E
A
-4
2
6
4
1
9
E
A
-4
1
2
8
1
9
E
A
-3
F
E
C
1
9
E
A
-3
E
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
0
s
_
4
_
7
_
2
0
1
6
C
M
Y
K