Fréttablaðið - 05.07.2016, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 05.07.2016, Blaðsíða 15
Bílar Bíll Chalmers sem sigraði í Bretlandi árið 2012. Sigurður Svavar Indriðason er í liði Chalmers-skólans í Svíþjóð í Formula Student keppninni og vinnur þar að smíði keppnisbíls liðsins. Sigurður ákvað að sækja um í Chalmers nánast eingöngu vegna Chalmers Formula Stud- ent, þar sem það lið hefur verið meðal 10 bestu liða undanfar- in ár og sigraði til dæmis í Bret- landi árið 2012. Til þess að kom- ast í liðið þurfti hins vegar að standast inntökupróf og krefjandi viðtal og þar skilaði fyrri mennt- un og verklega reynsla hans sæti í liðinu. Samstarf við Vélvík Innan liðsins er Sigurður ábyrgur fyrir hönnun á spindlum og vali á hjólalegum. Ákveðið var að CNC- fræsa spindlana úr 7075 T6 áli. VOLVO Concept Center hefur und- anfarin ár framleitt framspindl- ana enda eru þeir með flókn- ustu pörtum bílsins og Chalmers er aðeins með þriggja ása CNC- fræs í skólanum en VOLVO hefur fimm ása fræsara og því mun auðveldara fyrir þá að fram- leiða flókna hluti. Þeir höfðu hins vegar ekki tíma til að gera aftari spindlana og því var aðeins um að ræða að finna annan framleið- anda eða reyna að smíða þá sjálf- ur. Þar sem Sigurður er stolt- ur Íslendingur vildi hann reyna að fá íslenskt fyrirtæki til að koma að smíðinni. Vélvík sýndi þessu strax áhuga og fór Sigurð- ur í heimsókn til þeirra yfir jólin þegar hann var á Íslandi og það kom skemmtilega á óvart hversu vel tækjum þeir eru búnir, klár- lega eitt best búna renniverk- stæði á Íslandi og nánast á pari við renniverkstæðið hjá VOLVO Concept Center, þar sem frum- gerðir eru smíðaðar. Stærsta verkfræðikeppni í heimi Formula student er núna stærsta alþjóðlega verkfræðikeppni í heimi og er haldin víðs vegar um heim. Hún hófst upphaf- lega í Bandaríkjunum og heit- ir þar Formula SAE. Megin- markmið keppninnar er að nem- endur hanni, smíði, prófi og að lokum keppi á kappakstursbíl í anda Formúlu 1 bíla. Keppnin er bæði ætluð rafmagnsbílum og bílum með brunavél. Keppninni er skipt upp í tvo meginþætti, eða kyrrstöðuþætti og hreyfan- lega þætti. Í kyrrstöðuþættinum er dæmt eftir hönnun, kostnaði og viðskipaáætlun en í hreyfan- lega þættinum er keppt í hröðun, skriki, þolakstri, skilvirkni og „autocross“. Mismunandi mörg stig eru í boði fyrir hvern þátt. Strangar reglur Áður en leyfi fæst til að taka þátt í hreyfanlega þættinum þurfa bílarnir að ganga í gegnum at- hugun þar sem dómarar fara yfir hin ýmsu kerfi bílsins til að at- huga hvort allt sé samkvæmt settum reglum sem eru nokk- uð margar, eða um 200 blaðsíð- ur, og kannað að allt virki eins og það á að gera. Þetta getur verið mikil hindrun fyrir mörg lið og sum komast aldrei þarna í gegn. Vonandi tekst liði Chalmers það og ef til vill vinnur skólinn aftur keppnina eins og árið 2012, en nú með Sigurð innanborðs. Gæti ekið á hvolfi Bíll Chalmers er smár í sniðum, aðeins 292 cm langur, 138 cm breiður og 120 cm hár og vegur aðeins 192 kíló. Þyngdardreifing er 47 prósent að framan og 53 prósent að aftan. Rafmótorarnir tveir eru á afturöxli bílsins og afl þeirra samtals 90 kW, en takmark- að við 80 kW samkvæmt reglum. Hámarkshraðinn er 129 km/klst. og hann er fjórar sekúndur í 100 km hraða. Niðurþrýstingur bílsins er svo mikill að hann gæti fræði- lega ekið á hvolfi. Bíllinn var afhjúpaður 23. maí síðastliðinn og prufuakstur hans hófst 1. júní. Nú er lokaundirbúningur að hefjast en keppnin sjálf fer fram í Silver- stone þann 14. júlí. Sigurður í Formula Student keppninni Sótti um í Chalmers-skólanum í Svíþjóð nær eingöngu vegna keppninnar. Keppnin sjálf hefst 14. júlí. 5. júlí 2016 BETRA START MEÐ EXIDE RAFGEYMUM Endingargóðir og sterkbyggðir rafgeymar fyrir flestar gerðir mótorhjóla. Veldu þaulreynda vöru frá gæðaframleiðanda. PI PA R\ TB W A • SÍ A • 13 18 58 Exide rafgeymarnir fást hjá: 0 5 -0 7 -2 0 1 6 0 4 :5 7 F B 0 4 0 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 E A -5 6 2 4 1 9 E A -5 4 E 8 1 9 E A -5 3 A C 1 9 E A -5 2 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 0 s _ 4 _ 7 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.