Fréttablaðið - 05.07.2016, Blaðsíða 22
Kia GT er fyrsti alvöru sportbíllinn úr smiðju Kia.
Þegar Kia setur loks á markað
fyrsta sportbíl sinn, GT, á næsta
ári mun hann kosta minna en
30.000 dollara í Bandaríkjun-
um, eða aðeins 3,6 milljónir
króna. Bíllinn mun koma á mark-
að á næsta ári og verður þá lík-
lega seldur sem árgerð 2018.
Hann mun fást með tvær gerðir
6 strokka véla, annars vegar 3,8
lítra og 311 vél og hins vegar 3,3
lítra vél með tveimur forþjöppum
sem er 365 hestöfl, en þá vél má
einnig finna í Genesis G90 lúxus-
bíl Hyundai. Báðar þessar vélar
verða tengdar átta gíra sjálfskipt-
ingu. Í allra dýrustu útgáfu bíls-
ins með stærri vélinni mun hann
aðeins kosta 36.800 dollara, eða
4,6 milljónir króna. Það vakir því
fyrir Kia að hafa þennan spenn-
andi sportbíl sinn á afar sam-
keppnisfæru verði. Þessi sport-
bíll Kia er sá fyrsti sinnar gerð-
ar sem frá fyrirtækinu kemur,
en þó hefur fengist GT útgáfa af
Kia c´eed fólksbílnum, svo til eins
í útliti, en þessi bíll er sérstök
smíði. Svo getur farið að Kia GT
fái í viðbót nafnið Stinger en það
verður að koma í ljós síðar. Kia
GT er afturhjóladrifinn eins og
sannir sportbílar og á stærð við
BMW 3-línuna en með coupé-lagi
og brattan afturenda, ekki ósvip-
aðan og á Audi A7.
311 hestafla Kia GT undir
30.000 dollurum
Acura NSX er bæði rennilegur og öflugur bíll frá Acura-deild Honda.
Það kom flestum á óvart þegar
Honda tilkynnti að sportbíll-
inn Acura NSX yrði smíðað-
ur í Bandaríkjunum, en vaninn
er að japanskir bílaframleiðend-
ur smíði sína allra öflugustu og
bestu bíla heima fyrir í Japan.
Honda ákvað að smíða bílinn í
Ohio-fylki og reisti sérstaka verk-
smiðju til þess sem er um 20.000
fermetrar að stærð og kost-
aði Honda hátt í níu milljarða að
byggja. Þar verður Acura NSX
handsmíðaður og einungis fram-
leiddir átta til tíu bílar á dag og
einungis af fyrirfram pöntuðum
bílum. Honda skoðaði verksmiðj-
ur Ferrari, Lamborghini, Mc-
Laren og Bentley áður en farið
var í að reisa þessa sérstöku verk-
smiðju og vandaði vel til verka.
Kaupendum boðið að skoða smíðina
Í verksmiðjunni verður kaupend-
um boðið að koma og skoða smíði
bíla þeirra. Í nágrenni verk-
smiðjunnar verður kaupendun-
um einnig boðið að reynsluaka
eintaki af bílnum öfluga á sér-
stakri braut sem gerð hefur verið
og þar kynnast þeir aksturshæfni
þessa vandaða og öfluga bíls og
þeim hraða sem hann ræður við í
akstri. Mjög lítið er notað af vél-
mennum við smíði Acura NSX-
bílsins og flest handsmíðað líkt
og gert er með marga ofurdýra
og öfluga sportbíla, svo sem Niss-
an GT-R bílinn. Allir starfsmenn
í verksmiðjunni hafa yfir 20 ára
reynslu við smíði bíla og vill
Honda tryggja með því að smíðin
verði sem vönduðust.
Loksins kominn í framleiðslu eftir
níu ára þróun
Nú þegar hafa verið smíðuð 160
eintök af NSX-bílnum í nýju verk-
smiðjunni og fyrstu eintök hans
fóru til kaupenda þann 1. apríl.
Flestir þeirra verða reyndar
notaðir sem reynsluakstursbíl-
ar og prufubílar fyrir blaða-
menn, kaupendur og starfsfólk
Honda sem hefur það hlutverk
að tryggja að smíðin sé sem full-
komnust. Vél bílsins er einn-
ig handsmíðuð og þar hafa allir
starfsmenn a.m.k. 24 ára reynslu.
Það tekur fimm til sex klukku-
tíma að smíða hverja vél, en
til samanburðar líða aðeins 30
sekúndur milli smíði hverrar
fjöldaframleiddrar vélar í hefð-
bundna Honda-bíla. Honda hefur
verið mjög lengi að koma þess-
um Acura NSX bíl í framleiðslu,
en hann var fyrst kynntur al-
menningi árið 2007 og lokaút-
færsla hans var ekki kynnt fyrr
en fyrir um einu ári og hafa bíla-
blaðamenn nú fengið að kynn-
ast honum frá þeim tíma og lokið
lofsorði á hann í hvívetna. Von-
andi eru nýir kaupendur hans
ánægðir og svo þarf reyndar að
vera fyrir bíl sem kostar vestan-
hafs 156.940 dollara, eða um 19,5
milljónir króna. Acura NXS frá
Honda er 573 hestafla bíll og með
níu gíra sjálfskiptingu.
AcurA NSX hANdgerður
í BANdAríkjuNum
Er 573 hestafla tryllitæki sem kostar hátt í 20 milljónir króna.
Það er kominn tími til að eigend-
ur japanskra bíla á Íslandi, 25
ára og eldri, láti sjá sig með sína
glæsilegu bíla á götum landsins.
Eins og margir þekkja tóku jap-
anskir bílar yfir bílamarkaðinn
hér á landi fyrir mörgum áratug-
um. Nú vilja fornbílaáhugamenn
mjög gjarnan sjá þessa eigendur
og bíla þá sem þeir eiga. Í frétta-
blaði Fornbílaklúbbs Íslands hefur
verið gerð grein fyrir fornbílaeign
félagsmanna. Þar kemur fram að
bandarískir fornbílar séu 834 en
japanskir bílar eru sagðir 110. Það
er þó trú margra að þeir japönsku
ættu ekki að vera færri en um 350
talsins. Hafa verður í huga að þeir
bílar sem ná fornbílaaldri núna eru
af árgerð 1991 og eldri, sem sagt
25 ára. Mikið væri nú skemmtilegt
ef japönsku fornbílarnir sæjust
meira í sumar, en þar finnst marg-
ur gamall demanturinn.
Japönskum
fornbílum
fjölgar ört Mercedes Benz B-Class Electric Drive.
Þýska dagblaðið Handelsblatt
greinir frá því að í herbúðum
Mercedes Benz sé um það rætt
að stofna nýtt merki fyrir raf-
magnsbíla og tengiltvinnbíla Benz.
Það gæti orðið svo snemma sem í
næsta mánuði og gæti verið kynnt
með formlegum hætti á bílasýn-
ingunni í París í september. BMW
hefur markaðssett bæði rafmagns-
bíla og tvinnbíla sína undir merkj-
um i-stafsins, svo sem bílana BMW
i3 og i8. Því má segja að Merce-
des Benz sé að hugsa í sömu átt og
fylgja fordæmi BMW. BMW hefur
smíðað i3 og i8 bíla sína í verk-
smiðju sem smíðuð var sérstak-
lega fyrir þá. Það ætlar Benz hins
vegar ekki að gera og mun smíða
þá í verksmiðjum sem þegar eru
til. Fyrsti bíllinn sem gæti fall-
ið undir nýtt merki Benz fyrir raf-
magnsbíla gæti orðið rafknúinn
jepplingur sem byggir á GLC-bíln-
um og kemur hann líklega á mark-
að á næsta ári. Benz og BMW eru
alls ekki einu bílaframleiðendurnir
sem ætla af krafti að halla sér að
smíði rafmagnsbíla, því Volkswa-
gen-bílafjölskyldan ætlar að kynna
20 nýja slíka bíla til ársins 2020.
Bæði er þar um að ræða hrein-
ræktaða rafmagnsbíla og tengil-
tvinnbíla, þar á meðal stóru fólks-
bílana Volkswagen Phaeton og
Audi A8. Volkswagen er einnig að
íhuga að opna eigin risaverksmiðju
fyrir smíði rafhlaða í alla sína bíla.
Stofnar Benz sérstakt merki
fyrir rafmagnsbíla sína?
Tilvalið með í sumarfríið.
Traust og fagleg þjónusta.
LITHIUM POWER STARTTÆKI
Byltingarkennd nýjung!
Snjalltæki til að bjarga þér ef bíllinn verður rafmagnslaus á bílastæðinu
eða úti á vegum. Bjargvættur sem er fyrirferðalítill (420 gr.) og einfaldur í notkun.
Startar flestum bensínvélum og diesel vélum upp að 2,0 llítra. Hleður alla síma,
ipadinn, fartölvuna og öll tæki með USB tengi. Innbyggt öflugt led ljós.
Straumur út: 5v 2A fyrir síma og ipad, 19v 3,5A fyrir fartölvur, startkraftur
allt að 400 Amper. Lithium rafhlaðan er 12.000 mAh.
Icetrack ehf. Sími 773 4334
netfang: mtdekk@mtdekk.is / www.mtdekk.is
MICKEY THOMPSON
jeppadekkin hafa sannað sig á Íslandi
M/T merkið er þekkt um allan heim sem hágæða jeppadekk og felgur.
Stærðir 32” - 54”
J E P PA D E K K
BAJA CLAW MTZDEEGAN
BílAr
Fréttablaðið
8 5. júlí 2016 ÞRIÐJUDAGUR
0
5
-0
7
-2
0
1
6
0
4
:5
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
E
A
-4
7
5
4
1
9
E
A
-4
6
1
8
1
9
E
A
-4
4
D
C
1
9
E
A
-4
3
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
4
_
7
_
2
0
1
6
C
M
Y
K