Fréttablaðið - 05.07.2016, Side 15
Bílar
Bíll Chalmers sem sigraði í Bretlandi árið 2012.
Sigurður Svavar Indriðason er í
liði Chalmers-skólans í Svíþjóð
í Formula Student keppninni og
vinnur þar að smíði keppnisbíls
liðsins. Sigurður ákvað að sækja
um í Chalmers nánast eingöngu
vegna Chalmers Formula Stud-
ent, þar sem það lið hefur verið
meðal 10 bestu liða undanfar-
in ár og sigraði til dæmis í Bret-
landi árið 2012. Til þess að kom-
ast í liðið þurfti hins vegar að
standast inntökupróf og krefjandi
viðtal og þar skilaði fyrri mennt-
un og verklega reynsla hans sæti
í liðinu.
Samstarf við Vélvík
Innan liðsins er Sigurður ábyrgur
fyrir hönnun á spindlum og vali á
hjólalegum. Ákveðið var að CNC-
fræsa spindlana úr 7075 T6 áli.
VOLVO Concept Center hefur und-
anfarin ár framleitt framspindl-
ana enda eru þeir með flókn-
ustu pörtum bílsins og Chalmers
er aðeins með þriggja ása CNC-
fræs í skólanum en VOLVO hefur
fimm ása fræsara og því mun
auðveldara fyrir þá að fram-
leiða flókna hluti. Þeir höfðu hins
vegar ekki tíma til að gera aftari
spindlana og því var aðeins um
að ræða að finna annan framleið-
anda eða reyna að smíða þá sjálf-
ur. Þar sem Sigurður er stolt-
ur Íslendingur vildi hann reyna
að fá íslenskt fyrirtæki til að
koma að smíðinni. Vélvík sýndi
þessu strax áhuga og fór Sigurð-
ur í heimsókn til þeirra yfir jólin
þegar hann var á Íslandi og það
kom skemmtilega á óvart hversu
vel tækjum þeir eru búnir, klár-
lega eitt best búna renniverk-
stæði á Íslandi og nánast á pari
við renniverkstæðið hjá VOLVO
Concept Center, þar sem frum-
gerðir eru smíðaðar.
Stærsta verkfræðikeppni í heimi
Formula student er núna stærsta
alþjóðlega verkfræðikeppni í
heimi og er haldin víðs vegar
um heim. Hún hófst upphaf-
lega í Bandaríkjunum og heit-
ir þar Formula SAE. Megin-
markmið keppninnar er að nem-
endur hanni, smíði, prófi og að
lokum keppi á kappakstursbíl í
anda Formúlu 1 bíla. Keppnin er
bæði ætluð rafmagnsbílum og
bílum með brunavél. Keppninni
er skipt upp í tvo meginþætti,
eða kyrrstöðuþætti og hreyfan-
lega þætti. Í kyrrstöðuþættinum
er dæmt eftir hönnun, kostnaði
og viðskipaáætlun en í hreyfan-
lega þættinum er keppt í hröðun,
skriki, þolakstri, skilvirkni og
„autocross“. Mismunandi mörg
stig eru í boði fyrir hvern þátt.
Strangar reglur
Áður en leyfi fæst til að taka þátt
í hreyfanlega þættinum þurfa
bílarnir að ganga í gegnum at-
hugun þar sem dómarar fara yfir
hin ýmsu kerfi bílsins til að at-
huga hvort allt sé samkvæmt
settum reglum sem eru nokk-
uð margar, eða um 200 blaðsíð-
ur, og kannað að allt virki eins og
það á að gera. Þetta getur verið
mikil hindrun fyrir mörg lið og
sum komast aldrei þarna í gegn.
Vonandi tekst liði Chalmers það
og ef til vill vinnur skólinn aftur
keppnina eins og árið 2012, en nú
með Sigurð innanborðs.
Gæti ekið á hvolfi
Bíll Chalmers er smár í sniðum,
aðeins 292 cm langur, 138 cm
breiður og 120 cm hár og vegur
aðeins 192 kíló. Þyngdardreifing
er 47 prósent að framan og 53
prósent að aftan. Rafmótorarnir
tveir eru á afturöxli bílsins og afl
þeirra samtals 90 kW, en takmark-
að við 80 kW samkvæmt reglum.
Hámarkshraðinn er 129 km/klst.
og hann er fjórar sekúndur í 100
km hraða. Niðurþrýstingur bílsins
er svo mikill að hann gæti fræði-
lega ekið á hvolfi. Bíllinn var
afhjúpaður 23. maí síðastliðinn og
prufuakstur hans hófst 1. júní. Nú
er lokaundirbúningur að hefjast
en keppnin sjálf fer fram í Silver-
stone þann 14. júlí.
Sigurður í Formula Student keppninni
Sótti um í Chalmers-skólanum í Svíþjóð nær eingöngu vegna keppninnar. Keppnin sjálf hefst 14. júlí.
5. júlí 2016
BETRA START
MEÐ EXIDE RAFGEYMUM
Endingargóðir og sterkbyggðir rafgeymar fyrir flestar gerðir
mótorhjóla. Veldu þaulreynda vöru frá gæðaframleiðanda.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
13
18
58 Exide rafgeymarnir fást hjá:
0
5
-0
7
-2
0
1
6
0
4
:5
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
E
A
-5
6
2
4
1
9
E
A
-5
4
E
8
1
9
E
A
-5
3
A
C
1
9
E
A
-5
2
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
0
s
_
4
_
7
_
2
0
1
6
C
M
Y
K