Fréttablaðið - 24.06.2016, Síða 6
Upplýsingatækni Á Íslandi eru
sem fyrr flestar háhraðainternet-
tengingar miðað við höfðatölu að
því er fram kemur í nýrri skýrslu
sem Póst- og fjarskiptastofnun
(PFS) og systurstofnanir hennar á
Norðurlöndunum og í Eystrasalts-
löndunum hafa tekið saman.
„Þetta er sjöunda árið í röð sem
fjarskiptanotkun íbúa Norður-
landanna er borin saman og Eystra-
saltslöndin hafa einnig verið með
síðustu ár,“ segir í umfjöllun PFS.
Fram kemur að á heildina litið sé
fjarskiptanotkun mjög lík í lönd-
unum átta og að íbúar þeirra nýti
sér sambærilega tækni á svipaðan
máta. „Þrátt fyrir það má þó víða
sjá mun á notkun og þróun ein-
stakra þátta.“
Fjöldi háhraðainternettenginga
hér, þar sem miðað er við auglýst-
an niðurhalshraða sem svarar 30
megabitum á sekúndu eða meira,
er sagður til kominn vegna fjölg-
unar VDSL og ljósleiðaratenginga
hér á landi. Um leið er sagt áber-
andi að fjölgun áskrifta í farnetum
hafi nánast staðið í stað í flestum
samanburðarlöndunum.
Þó svo að einhverri mettun virð-
ist náð í fjölda farsíma-, eða far-
tækjaáskrifta þá er í umfjöllun PFS
bent á að skýrslan sýni mikla aukn-
ingu í gagnanotkun á farnetum í
öllum löndunum. „Þar er Ísland í
miðjum hópnum, en þessi þróun
er alls staðar hröð og stöðug.“
Aukning gagnaflutninga yfir
farnet sé langmest í Lettlandi, eða
175 prósenta aukning á árinu 2015.
„Ein ástæða þessa er að eitt helsta
fjarskiptafyrirtæki landsins býður
áskriftir án takmarkana á gagna-
flutninga auk þess að bjóða sjón-
varpsstreymi um farsímanetið,“
segir í skýrslunni.
Í öðrum löndum nam aukning
gagnaflutninganna milli 28 og 93
prósent. Hér á landi fór mánaðar-
legur gagnaflutningur yfir farsíma-
netið að jafnaði, miðað við höfða-
tölu, úr 1,54 gígabætum í 2,56
gígabæt. olikr@frettabladid.is
Á tæknisýningu Slush sem fram fór í Tókýó í Japan í síðasta mánuði. Mynd/SluSh Media
Efst í háhraðaneti og
sjónvarpi yfir netið
Hér á landi jókst gagnaflutningur yfir farsímanet um 66 prósent á milli áranna
2014 og 2015. Mest var aukningin í Lettlandi og nam hún 175 prósentum.
Höfum vinninginn þegar kemur að fjölda háhraðainternettenginga á mann.
30
megabit eða meiri hraði á
sekúndu er það sem miðað
er við þegar fjallað er um
háraðainternettengingar.
Ísland er efst á blaði þegar
kemur að fjölda þeirra á
mann á Norður- og í Eystra-
saltslöndum.
samgöngUmál Bæjarráð Fjarða-
byggðar hefur samþykkt að Fjarða-
byggðarhöfn leggi til 25 milljónir
króna til að leggja klæðningu á Norð-
fjarðarflugvöll sem rekinn er af Isavia.
Hann sé illa farinn en á sama tíma
mikilvægur fyrir sjúkraflug frá Aust-
fjörðum.
Sævar Guðjónsson, formaður hafn-
arstjórnar, segir það skrýtið að þurfa
að setja peninga bæjarins í þessa
framkvæmd því Isavia rekur flugvöll-
inn en virðist ekki fara í nauðsynlegar
framkvæmdir við hann. „Það er auð-
vitað kjánalegt að gera þetta svona
og það á ekkert að vera þannig. Hins
vegar er þessi flugvöllur þjóðhagslega
mikilvægur, með stöndug sjávarút-
vegsfyrirtæki hér, álverið á Reyðar-
firði og svo á stundum er allur íslenski
fiskiskipaflotinn úti fyrir Austurlandi.
Þá er mikilvægt að geta komið fólki
fljótt og örugglega undir læknishend-
ur í Reykjavík,“ segir Sævar.
Isavia rekur íslenska flugvelli sam-
kvæmt samningi við innanríkisráðu-
neytið. Ekki hefur fengist nægjanlegt
fé á fjárlögum til að leggja klæðningu
á flugvöllinn. Vikulega er farið í
sjúkraflug til Reykjavíkur frá Norð-
fjarðarflugvelli. – sa
Fjarðabyggð þreytt á
seinagangi Isavia
norðfjarðarflugvöllur er að mati bæjarráðs Fjarðabyggðar mjög mikilvægur og
átelur isavia fyrir áhugaleysi um hann. FréTTablaðið/PJeTur
Það er auðvitað
kjánalegt að gera
þetta svona og það á ekkert
að vera þannig.
Sævar Guðjónsson, formaður hafnar-
stjórnar Fjarðabyggðar
Reykjavík Reykjavíkurborg vill
draga úr útbreiðslu tröllahvannar
og er nú unnið að því að kortleggja
útbreiðslu hennar.
Borgin fylgir ráðleggingum
umhverfisráðneytisins og Náttúru-
fræðistofnunar við verkefnið. Af
tröllahvönn er slysahætta því safinn
í stönglum hennar og blöðum er eitr-
aður. Borgin hyggst fjarlægja plöntur
og verða skólalóðir, leiksvæði og vin-
sæl útivistarsvæði sett í forgang.
Þá er sagt áhyggjuefni að trölla-
hvönn hafi dreift sér hratt um borg-
arlandið. Hún sé þekkt erlendis fyrir
að vera ágeng og bola öðrum gróðri
burt. – ngy
Borgin bregst
við tröllahvönn
Í reykjavík hafa fundist þrjár tegundir
af tröllahvönnum.
veRðlaUn Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti Íslands, hlaut á mánudag
heiðursverðlaun bandarísku orku-
stofnunarinnar American Renewable
Energy Institute (AREI).
Forseti AREI sagði forsetanum veitt
verðlaunin fyrir forystu hans í að
kynna sjálfbæra orku víða um heim
og hvetja til aukinnar nýtingar henn-
ar í krafti þeirrar reynslu og tækni
sem Íslendingar hafa aflað sér á þessu
sviði. Jafnframt væru verðlaunin veitt
fyrir framlag hans til baráttunnar
gegn loftslagsbreytingum. – þv
Forsetinn hlýtur
heiðursverðlaun
Nýr borgarstjóri í Róm
Virginia Raggi, nýkjörinn borgarstjóri Rómar, brosir á svölum Campidoglio-hallar við innsetningarathöfn hennar í gær. Hún er fyrsta konan til að
verða kjörinn borgarstjóri og yngst til að gegna embættinu. Hún er 37 ára gömul og kemur úr kerfisandstöðuflokknum M5S. FréTTablaðið/ePa
2 4 . j ú n í 2 0 1 6 F ö s t U D a g U R6 F R é t t i R ∙ F R é t t a B l a ð i ð
2
4
-0
6
-2
0
1
6
0
5
:3
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
D
2
-0
F
1
0
1
9
D
2
-0
D
D
4
1
9
D
2
-0
C
9
8
1
9
D
2
-0
B
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
6
_
2
0
1
6
C
M
Y
K