Fréttablaðið - 24.06.2016, Side 10

Fréttablaðið - 24.06.2016, Side 10
Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is Föstudagsviðtalið Á eftir að gera upp Landsdómsmálið Ég hef sagt það lengi að þegar kemur að jafnréttismálum og valdefl- ingu kvenna þá er Ísland ekki smáríki. við eigum að gera út á það. við eigum heilmikla sögu sem er geysilega gaman að hafa í farteskinu þegar maður er að vinna alþjóðlega að jafn- réttismálum. UN Women er eina stofnun Sameinuðu þjóðanna sem er sett á laggirnar á 21. öld-inni. Það er okkar að takast á við það sem er ólokið verkefni 21. aldarinnar, að stuðla að jafnrétti kynjanna. Við sinnum því með ýmsum hætti. Allar stofnanir SÞ eiga að gera það og það er okkar að samræma það verkefni og sjá til þess. Stóru peningarnir fara í gegnum hinar stofnanirnar. Við erum lítil stofnun með litla peninga. Við verðum að vera svipan og líka gulrótin fyrir aðra til þess að vinna að þessu. Það sem við leggjum aðal- áherslu á er að vinna með stjórn- völdum og í samstarfi við kvenna- hreyfinguna. Að auka hlut kvenna í stjórnmálum og ákvarðanatöku í samfélaginu. Auka hlut kvenna á vinnumarkaðnum, stuðla að efna- hagslegu sjálfstæði kvenna og sporna gegn kynbundnu ofbeldi,“ segir Ingi- björg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi ráðherra og formaður Samfylkingar- innar, um verkefni UN Women. Ingibjörg starfaði fyrir UN Women í Afganistan áður en hún tók við stöðu umdæmisstjóra í Tyrk- landi. Hún setti á laggirnar svæðis- skrifstofu samtakanna í Istanbúl. Undir hana heyra 13 starfsstöðvar í jafn mörgum löndum sem hún hefur eftirlit með og mótar stefnu þeirra. Fjáröflun er stór hluti starfsins. „Það er auðvitað þrautin þyngri vegna þess að það hefur dregið tals- vert úr fjárframlögum alþjóðasam- bandsins til þróunarmála. Meðal annars vegna þess að flóttamanna- vandinn er farinn að leggjast þyngra á mörg ríki Norður-Evrópu og þau eru farin að nota meira af fram- lögum sínum til þróunaraðstoðar í verkefni heima fyrir.“ Ísland gefur ekki nóg Alþjóðlegt viðmið er að þjóðir gefi 0,7 prósent af landsframleiðslu til þróunarmála. Það hafa hins vegar ekki öll lönd staðið við. „Við Íslendingar höfum ekki náð þessu. Danir voru komnir upp í eitt pró- sent og Svíarnir held ég líka en það hefur dregið úr þessu vegna þess að þeir eru að nota hluta þessara fjármuna í móttöku flóttamanna í sínu landi sem orkar tvímælis. Þeir geta gert það samkvæmt reglunum í tvö ár – en ekki lengur. Þetta hefur hitt okkur illa fyrir. Það hefur verið barningur að tryggja fjármuni í verkefni og það fer talsvert mikið af mínum tíma í það. Það er m.a. þess vegna sem við höfum leitað til landsnefndanna í Evrópu, eins og þeirrar íslensku, sem núna er að keyra í gang annað átaksverkefni til að safna peningum fyrir okkur.“ Fjölskyldur á flótta Íslenska landsnefndin stendur fyrir verkefninu Fer fjölskyldan á flótta í sumar? Hægt er að leggja átakinu lið með að senda textaskilaboðin „konur“ í númerið 1900. „Við erum að safna í þetta starf okkar með flóttakonum, í Tyrklandi og á Balkanskaganum. Þetta er gríðar- lega mikilvægt fyrir okkur vegna þess að eins og stendur höfum við ekki önnur fjárframlög en frá þessum landsnefndum til þessa tiltekna verk- efnis.“ Í Tyrklandi eru 2,7 milljónir flótta- manna. Rúmlega helmingur eru konur og stúlkubörn. Flóttamenn- irnir reyna koma sér frá Tyrklandi, yfir Eyjahafið og til Evrópu. Á undan- förnum misserum hefur konum og börnum fjölgað í hópi flóttafólks. UN Women vinnur að því að beina neyðar aðstoðinni að konum. „Við getum lagt heilmikið af mörkum, sérstaklega í því að vekja athygli á því að aðstæður flótta- kvenna og þarfir þeirra eru aðrar en karlmanna sem eru á flótta. Það verður að taka á þeirra málum með öðrum hætti en málefnum karla á flótta.“ Hún segir það vera algengt að flóttakonur verði fyrir ofbeldi. „Þessu verða þeir sem eru að taka á móti þeim að gera sér grein fyrir, reyna að greina og veita þeim þá aðstoð sem þær þurfa á að halda. Bæði sálfræðilega og lagalega. Annað sem ég get nefnt. Tólf pró- sent þessara kvenna sem eru á flótta eru barnshafandi og þær eru að fæða börn við aðstæður sem eru hræði- legar.“ Ingibjörg segir íslensku lands- nefndina hafa náð eftirtektarverðum árangri á heimsvísu. Hún segir þetta skýra það sem hún hefur haldið fram lengi. „Mér finnst þetta mjög ánægjulegt og merkilegt. Ég hef sagt það lengi að þegar kemur að jafnréttismálum og valdeflingu kvenna þá er Ísland ekki smáríki. Við eigum að gera út á það. Við eigum heilmikla sögu sem er geysilega gaman að hafa í farteskinu þegar maður er að vinna alþjóðlega að jafnréttismálum.“ Fjórir áratugir um kvenréttindi Ingibjörg er sjálf ein þeirra sem hafa skrifað kvenréttindasöguna hér á landi. „Ég er búin að vera að vasast í þessu með einhverjum hætti í nærri 40 ár. Um tvítugt byrjaði ég að taka þátt í þessari baráttu í kringum kvennafrídaginn. Það kveikti í mér eins og svo mörgum öðrum. Síðan kemur kjör Vigdísar Finnbogadótt- ur, svo var ég í Rauðsokkahreyfing- unni á þessum tíma og þátttakandi í því að stofna Kvennaframboðið. Svo í gegnum borgina, það varð gríðar- lega mikil stefnubreyting í borg- inni 1994 sem leiddi til þess að það varð bylting hér í leikskólamálum. Bylting í að auka hlut kvenna í ↣ ingibjörg sólrún gísladóttir sagði skilið við stjórnmálin árið 2009 og sér ekki eftir því. Nú býr hún í tyrklandi og sinnir starfi umdæmisstjóra uN Women þar sem hún vinnur að því að efla stöðu kvenna. ingibjörg ræðir kvenréttindi, átök við davíð Oddsson og landsdómsmálið. Hún treystir ekki forystu samfylkingarinnar. 2 4 . j ú n í 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U R10 F R é T T i R ∙ F R é T T A B L A ð i ð 2 4 -0 6 -2 0 1 6 0 5 :3 8 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 D 1 -F 6 6 0 1 9 D 1 -F 5 2 4 1 9 D 1 -F 3 E 8 1 9 D 1 -F 2 A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 2 3 _ 6 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.