Fréttablaðið - 24.06.2016, Qupperneq 17
Bergur Ebbi
Aldrei hafði Evrópa neina sér-staka merkingu fyrir mér. Nema kannski einu sinni á ári þegar ég
fékk paprikusnakk með Vogaídýfu og
horfði á Eurovision með fjölskyldunni.
Allt frá upphafsstefinu (sem er 300 ára
gamalt margradda franskt barokkverk
sem nefnist „Þér Guð“ https://www.
youtube.com/watch?v=TyuukxNuusc])
og til stigagjafarinnar, er útsendingin
ein löng þeytivinda af niðurrigndum
þjóðrembingsáhrifum og poppi sömdu
út frá lægsta samnefnara. Þetta er þó
löngu orðið að sérstöku menningar-
afbrigði. Þarna er að finna einhvern
kontrapunkt (ekki í tónfræðilegum
skilningi eins og í barokkinu) heldur
fremur þannig að í allri hringavitleys-
unni virðist þrátt fyrir allt vera unnið
út frá sama grunnpunktinum sem leyfir
öllum þessum ólíku laglínum og hug-
myndum að kássast ofan í hver aðra.
Og kannski er Eurovision mikil-
vægt. Ekki síst fyrir smáþjóðir sem vilja
taka þátt í einhverju stærra. Kvöld-
vaka fyrir álfuna eftir viðburðaríkan
dag. Og þvílíkt sem þessi dagur hefur
verið viðburðaríkur. Hluti þeirra sem
nú lifir man eftir kreppunni miklu,
uppgangi fasisma og kommúnisma og
styrjöld þessara öfgaafla þar sem allur
heimurinn var lagður að veði, kalda
stríðinu sem kom á eftir, múrum sem
klístraðir voru niður af steingráum
hermönnum og skildu ástvini í sundur
og við þurfum ekki að vera gömul til
að fá upp í hugann gráar fréttamyndir
með fljótandi VHS-taumum frá fjölda-
morðunum í Srebrenica þar sem böðlar
í Adidas-íþróttagöllum hlóðu líkum í
stafla. Viðburðaríkur dagur í Evrópu.
Er það eitthvað skrítið þó álfan þurfi að
dæsa og borða paprikusnakk og horfa
á úkraínska idol-stjörnu syngja um ást
sína á brúnum bangsa í tilgerðarlegri
sviðsmynd með gervi-snjóflyksum og
hópi af ljósabekkjabrúnum karlmönn-
um með kínversk tattú á herðablöðum,
stígandi túristaútgáfu af kósakka-dansi?
Veisla síðustu 20 ára
Ísland hóf ekki þátttöku í Evrópusam-
vinnunni að fullu fyrr en með full-
gildingu samningsins um Evrópska
efnahagssvæðið 1994. Það var ein
mikilvægasta ákvörðun sem tekin hefur
verið í íslenskum utanríkismálum og
þjóðin var ekki spurð álits. Líklega væri
sú staðreynd oftar í deiglunni nema
fyrir þá ástæðu að samstarfið hefur
reynst íslenskri þjóð farsælt. Erfitt er
að hugsa þá hugsun til enda hvernig
efnahagslífinu væri háttað ef ekki ríkti
viðskiptafrelsi milli Íslands og Evrópu –
eða ef íslenskir borgarar þyrftu að sækja
um atvinnu-, náms- eða dvalarleyfi til
þess eins að fá að vera í Evrópu. Við
tökum, mörg hver, þessum réttindum
sem sjálfsögðum hlut.
Þetta tímabil sem hér er nefnt, frá
miðjum 10. áratugnum til dagsins í dag,
hefur einnig að mestu verið friðartími í
Evrópu. Myntsamstarfið varð að veru-
leika, ferðalög jukust, menningarsam-
starf efldist, skiptinám, gestakennsla
og hvers konar miðlun þekkingar
milli Evrópuríkja jókst. Ávöxt þessarar
auknu samvinnu má sjá víða. Sem
dæmi má nefna að evrópsk knattspyrna
hefur blómstrað. Varla saknar nokkur
maður þess þegar fótboltamenn gátu
vart spilað utan heimalands síns sökum
kvóta sem deildir heimalanda settu og
hindruðu aðgengi erlendra leikmanna.
Meira að segja Meistaradeild Evrópu
hafði stífar reglur um að ensk lið
þyrftu að innihalda enska leikmenn,
ítölsk lið ítalska leikmenn og svo fram-
vegis. Fyrirkomulagið hélst til 1995
þegar það var dæmt ólöglegt á grund-
velli reglunnar um frjálsa för vinnuafls.
Að fara aftur í gamla kerfið væri óhugs-
andi í dag.
Upphafið að endalokunum?
Sagan er full af hugmyndum um gullöld
Evrópu. Endurreisnin, upplýsingaöldin
eða fallega tímabilið, La Belle Epoque,
sem lauk við upphaf fyrri heimstyrj-
aldar þegar Bandaríkin tóku við sem
ráðandi afl í heiminum. En kannski
ættum við að líta til annarra atriða en
hernaðarlegra yfirráða. Kannski hefur
einmitt aldrei verið betra að lifa í Evr-
ópu en á síðustu 20 árum. Í löndum þar
sem framúrskarandi heilbrigðisþjón-
usta og menntun í þúsund ára gömlum
háskólum er að mestu ókeypis, þar sem
fjölbreytileiki er vegsamaður, þar sem
persónulegt frelsi er virt og friður hefur
ríkt. Kannski verður þessa tímabils
minnst, öðrum fremur, sem hins eigin-
lega blómaskeiðs Evrópu.
Nú hafa Bretar gengið að kjörborðinu
til að velja hvort þeir muni ganga úr
Evrópusambandinu eða ekki. Það gæti
markað þáttaskil fyrir allt Evrópusam-
starfið ef svo stór þjóð sýndi fram á svo
afgerandi vantraust. Þegar þessi orð eru
rituð eru úrslitin höfundi ekki kunn, en
það vekur vissulega ugg að upphafið að
endalokunum sé ef til vill svona hrylli-
lega nálægt. Ég vil bara að við höfum
hugfast að samfélag okkar er stærra en
þeir hagsmunir sem stjórnmálamenn
tala um frá degi til dags. Við erum hluti
af einhverju stærra sem við höfum
sannarlega notið góðs af. Framtíð sam-
starfs, sem einmitt hefur reynst smá-
þjóðum og minni menningarsvæðum
betur en nokkur herraþjóð álfunnar,
skiptir okkur meira máli en flest annað.
Það má vera að Evrópusamstarfið hafi
ekki skýr sérkenni eða tali ekki til okkar
í slagorðum. Kannski er það lægsti
samnefnari ákveðinnar menningar,
eins og þriggja mínútna Eurovision-
lag eða kannski er það útreiknaður
barokk-kontrapunktur, en ég tel að
einmitt nú, á þessum sérstöku tímum
þegar fasistaöfl rísa upp í öllum löndum
álfunnar með freistandi skilaboðum
um sérhagsmuni og skammtímalausnir,
þurfum við að skilja hvað við þrátt fyrir
allt eigum. Þetta hefur allt meiningu:
tattúin, snjóflyksurnar, paprikusnakkið,
hámenningin, lágmenningin. Allt eru
þetta laglínur slegnar úr sama hljóma-
gangi. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en
misst hefur og þó við skiljum kannski
ekki samhengið þá held ég að allir hljóti
að skilja, sé horft á málið í því stóra
samhengi sem það innilega verðskuld-
ar, að það sem er í húfi er dýrmætt.
Fyrr en misst hefur
Ég vil bara að við höfum
hugfast að samfélag okkar
er stærra en þeir hagsmunir
sem stjórnmálamenn tala
um frá degi til dags. Við erum
hluti af einhverju stærra sem
við höfum sannarlega notið
góðs af.
Í dag
Jakob Ólafsson
Hafsteinn Heiðarsson
Garðar Árnason
Hólmar Logi Sigmundsson
Ívar Atli Sigurjónsson
flugmenn hjá Landhelgisgæslu
Íslands
Við undirritaðir sem störfum sem flugmenn á eftirlits-, leitar- og björgunarflugvél
Landhelgisgæslu Íslands mótmælum
harðlega lokun flugbrautar 06/24
á Reykjavíkurflugvelli áður en flug-
braut 07/25 á Keflavíkurflugvelli er
opnuð af flugöryggisástæðum, eins
og kveðið er á um í fyrra samkomu-
lagi ríkis og Reykjavíkurborgar. Því er
engin flugbraut með þessari stefnu á
suðvesturhorni landsins opin, til að
takast á við válynd suðvestanveður,
en þar eru neyðarsjúkrahús og mið-
stöð almannavarna og björgunar-
þjónustu landsins staðsett.
Þá hörmum við það að ekkert
tillit var tekið til flugöryggishags-
muna sjúkra-, leitar-, björgunar- og
almannavarnaflugs við þá ákvörðun
að loka flugbraut 06/24 á Reykjavíkur-
flugvelli og óttumst afleiðingarnar af
þeirri ráðstöfun þar sem oft á tíðum
þarf að fara í slík neyðarflug þegar
veður eru hvað verst og aðstæður
hvað varasamastar, því hefur flug-
öryggi þeirra sem slíkt flug stunda
verið skert.
Viljum við taka undir yfirlýsingu
frá Félagi íslenskra atvinnuflugmanna
frá 14. júní sl. en þar segir:
„Lokun flugbrautar 06/24 á Reykja-
víkurflugvelli.
Félag íslenskra atvinnuflugmanna
(FÍA) hefur verulegar áhyggjur af
stöðu flugöryggismála á Reykjavíkur-
flugvelli í kjölfar niðurstöðu dóms
Hæstaréttar í máli nr. 268/2016 um
að íslenska ríkinu beri að loka flug-
braut 06/24 innan 16 vikna. Í áhættu-
mati varðandi lokun brautarinnar
frá 22. maí 2015 er ekki tekið tillit
til áhrifa á flugvallakerfið í landinu í
heild sinni, fjárhagslegra áhrifa á flug-
rekstur né það sem mestu máli skiptir
þ.e. neyðarskipulags almannavarna
og áhrifa á sjúkraflutninga.
Að mati FÍA er flugbraut 06/24 í
Reykjavík nauðsynlegur hluti af vell-
inum til að tryggja nýtingarhlutfall í
ljósi mikilvægis vallarins til sjúkra- og
neyðarflutninga.
Verði flugbraut 06/24 á Reykja-
víkurflugvelli lokað er óviðunandi
að ekki liggi fyrir ákvörðun um að
opna á Keflavíkurflugvelli flugbraut
með svipaða stefnu, sem staðið hefur
lokuð í áraraðir. Mikilvægt er að flug-
braut með stefnu suðvestur/norð-
austur sé til staðar á Suðvesturlandi.“
Við undirritaðir förum fram á að
samningar standi þannig að flug-
braut 07/25 á Keflavíkurflugvelli verði
opnuð án tafar og að flugbraut 06/24
í Reykjavík verði í að minnsta kosti
opin fram að þeim tíma.
Áskorun flugmanna
á flugvél Landhelgisgæslu
Íslands
Þá hörmum við það að
ekkert tillit var tekið til flug-
öryggishagsmuna sjúkra-,
leitar-, björgunar- og al-
mannavarnaflugs við þá
ákvörðun að loka flugbraut
06/24 á Reykjavíkurflugvelli.
365.is Sími 1817
NÝTT Á STÖÐ 2 MARAÞON
HORFÐU Á HEILU ÞÁTTARAÐIRNAR ÞEGAR ÞÉR HENTAR
©
2016 H
om
e B
ox O
ffice, Inc. A
ll rights reserved. H
BO
® and all related program
s are the property of H
om
e Box O
ffice, Inc.
STÖÐ 2 MARAÞON FYLGIR VÖLDUM SJÓNVARPSPÖKKUM 365.
EINNIG ALLA VIRKA DAGA
Á STÖÐ 3
KL. 19:25
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 17F Ö s T u d a g u R 2 4 . j ú n Í 2 0 1 6
2
4
-0
6
-2
0
1
6
0
5
:3
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
D
2
-1
4
0
0
1
9
D
2
-1
2
C
4
1
9
D
2
-1
1
8
8
1
9
D
2
-1
0
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
6
_
2
0
1
6
C
M
Y
K