Fréttablaðið - 24.06.2016, Síða 34
Hólmfríður Gestsdóttir
Gestur Jónsson Margrét Geirsdóttir
Helga Jónsdóttir
Skafti Jónsson Kristín Þorsteinsdóttir
Gunnar Jónsson Kristín Þórisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærs
eiginmanns, föður, tengdaföður, afa
og langafa,
Jóns Skaftasonar
fyrrv. alþingismanns og sýslumanns,
Sunnubraut 8, Kópavogi.
Þennan dag árið 1956 bauð Hræðslu-
bandalagið svokallaða fram til alþingis-
kosninga en það var kosningabandalag
sem Alþýðuflokkur og Framsóknarflokk-
ur gerðu með sér. Flokkarnir freistuðu
þess að nýta kjördæmaskipanina til að
ná meirihluta þingmanna án þess að hafa
meirihluta kjósenda á bak við sig.
Það mistókst þó því bandalagið fékk
33,9% atkvæða og 25 þingmenn af 52.
Í kosningunum árið 1953 fengu flokk-
arnir samanlagt 37,5% atkvæða og 22
þingmenn.
Samvinna flokkanna fólst í því að þeir
buðu ekki fram hvor gegn öðrum. Fram-
sóknarflokkurinn bauð því ekki fram í
þeim kjördæmum þar sem Alþýðuflokk-
urinn var sterkur og öfugt. Flokksmenn
voru hvattir til að kjósa samstarfsflokk-
inn í þeim kjördæmum þar sem þeirra
eigin flokkur bauð ekki fram.
Þótt flokkarnir vildu kalla samstarfið
bandalag umbóta var augljóst að þeir
náðu saman á hræðslunni einni enda
vildu þeir báðir koma Sjálfstæðisflokkn-
um frá völdum. Flokkarnir mynduðu
meirihluta með Alþýðubandalaginu
undir forystu Hannibals Valdimarssonar.
Hræðslubandalagið býður fram
Þ ettA g e r ð i St á r i ð 1 9 5 6
Hannibal Valdimarsson
Þau Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri, Auður I. Ottesen og Ari Eggertsson, umhverfisstjóri Hveragerðis, eru að vonum spennt fyrir helginni.
Um komandi helgi verður blásið til blóma-
sögusýningarinnar Svona er í pottinn búið,
í tilefni sjötíu ára afmælis Hveragerðisbæj-
ar. Sýningarstjóri og hönnuður sýningar-
innar er Auður i. Ottesen, ritstjóri Sumar-
hússins og garðsins og framkvæmdastjóri
afmælishátíðarinnar.
„Um er að ræða þrjú hundruð fermetra
sýningu í íþróttahúsi bæjarins við Skóla-
mörk, nærri lystigarðinum. Þar mun
LandArt hópurinn setja upp sín verk og
skemmtidagskrá fer fram,“ segir Auður.
á sýningunni gefst gestum kostur á að
upplifa sögu pottaplantna og afskorinna
blóma. „Verða svo settar upp fimm stáss-
stofur sem sýna hvernig blóm hafa prýtt
íslensk heimili í gegnum tíðina, eða allt frá
árinu 1900 til dagsins í dag. Við ætlum að
gera merkum pottaplöntum í eigu Hver-
gerðinga, áratugagömlum ættargripum og
græðlingum, hátt undir höfði,“ segir hún
sæl.
„einnig verða blómvendir frá landsfræg-
um og sögulegum viðburðum endurgerðir
og sýndar myndir af hátíðarblómvöndum
frá mismunandi tímum. Við verðum með
eftirlíkingar hátíðarvanda allra forseta
lýðveldisins og setjum upp plaköt á vegg-
ina og svo verða vendirnir fyrir neðan,
Kristján eldjárn með Danadrottningu,
Sveinn Björnsson í
Hellisgerði, ásgeir
með Johnson og
svo auðvitað Vig-
dís Finnbogadóttir á
svölunum á Aragötu.
Við skiljum svo eftir
autt pláss fyrir þann sem
tekur næst við keflinu,“ segir
Auður.
Má sannarlega segja að tímasetn-
ingin sé stöngin inn, en líkt og flestum
landsmönnum er kunnugt, verður gengið
til forsetakosninga einmitt á laugardag-
inn.
„Saga blómanna er saga Hvergerðinga
og landsmanna allra,“ útskýrir Auður
og bendir á að til viðbótar við þetta allt
saman verði Blómaböllunum í Hveragerði
á árum áður gerð skil. „árið 1955 var fyrsta
blómadrottning bæjarins kosin og hefð er
fyrir því að fermingarbörn séu með blóm
í hári, og jakkaboðungum. Fjöldi Hver-
gerðinga á öllum aldri hefur svo lánað
fermingarmyndina sína til sýn-
ingar. Svo verður þarna ein-
stakt kaktusasafn garð-
yrkjuskólans á reykjum
til sýnis. Þar má til að
mynda sjá fjörutíu ára
gamla kaktusa,“ segir
Auður og spennan
leynir sér ekki.
Auður segist eiga
von á ágætis renneríi,
fólk sé á faraldsfæti og
heilmikið af sumarbú-
stöðum í kring. Hún seg-
ist allt eins eiga von á að um
tíu þúsund manns leggi leið
sína í blómabæinn þessa helgina.
eins og góðri blómasýningu sæmir verður
vitaskuld hægt að festa kaup á bæði potta-
plöntum og blómvöndum á sérlega líf-
legum blómamarkaði sem komið verður
upp í tilefni hátíðarinnar. Setning Blóma-
sögusýningarinnar helst í hendur við
Blóm í bæ, í dag klukkan 17.45. Dagana
25. júní til 3. júlí verður sýningin svo opin
frá kl.12-18 alla daga. gudrun@frettabladid.is
Forsetavendir og fertugir
kaktusar í Hveragerði
Svona er í pottinn búið er nafn vandaðrar blómasýningar sem hefst í dag í Hveragerði.
Tilefnið er sjötíu ára afmæli þess mikla blómabæjar. Mikið verður um dýrðir alla helgina.
Við ætlum að gera
merkum pottaplöntum
í eigu Hvergerðinga, áratuga-
gömlum ættargripum og
græðlingum, hátt
undir höfði,
Ástkær faðir minn, tengdafaðir,
afi og bróðir,
Þórhallur Arason
til heimilis að Fjarðargötu 47,
Þingeyri,
lést á líknardeild Landspítalans
í Kópavogi að kvöldi sunnudags 19. júní.
Útförin fer fram í Fossvogskirkju
þriðjudaginn 28. júní klukkan 15.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hans er bent á heimahlynningu eða líknardeild
Landspítalans í Kópavogi.
Þráinn Þórhallsson, Klara Kristjánsdóttir,
Dalí Þráinsson og Svava Aradóttir
Elskulegur faðir okkar,
Gunnar Geir Gunnarsson
Klapparstíg 1,
áður til heimilis að Kárastíg 15,
Hofsósi,
lést á hjartadeild Landspítalans mánudaginn 20. júní.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Gunnar Geir Gunnarsson
Þröstur Viðar Gunnarsson
Pálína Sif Gunnarsdóttir
og fjölskyldur.
Eiginkona mín, dóttir, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Bryndís Einarsdóttir
lést á Landspítalanum v/Hringbraut
mánudaginn 20. júní.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju
mánudaginn 4. júlí kl. 13.00.
Blóm og kransar afþakkaðir, en hverjum þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið.
Guðmundur Óskar Hermannsson
Guðbjörg Sigríður Kristjónsdóttir
Hermann Guðmundsson Signý Magnúsdóttir
Ingþór Guðmundsson Sigríður Harpa Benediktsdóttir
Sólveig Guðmundsdóttir Daníel Sveinbjörnsson
og barnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Sigurður K. Eiríksson
Norðurkoti 3,
Sandgerði,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja,
sunnudaginn 19. júní.
Útförin fer fram frá Safnaðarheimilinu í Sandgerði,
mánudaginn 27. júní kl. 14.00.
Sóley Björg Færseth Þorbjörn Guðjónsson
Erla Ósk Sigurðardóttir Færseth Kristján Guðmundsson
Sigríður Hanna Sigurðardóttir Páll Þórðarson
Petrína Freyja Sigurðardóttir Böðvar Þórisson
Einar Sigurðarson Jennifer Randall
barnabörn og barnabarnabörn.
2 4 . j ú n í 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U R22 T í m A m ó T ∙ F R É T T A B L A ð i ð
tímamót
2
4
-0
6
-2
0
1
6
0
5
:3
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
D
2
-0
0
4
0
1
9
D
1
-F
F
0
4
1
9
D
1
-F
D
C
8
1
9
D
1
-F
C
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
6
_
2
0
1
6
C
M
Y
K