Víkurfréttir - 30.06.1983, Blaðsíða 8
8 Fimmtudagur 30. júní 1983
VÍKUR-fréttir
LÍMMIÐAPRENTUN
Prentum sjálfIímandi miða og merki til vöru-
merkinga, vörusendinga og framleiðslumerk-
inga. Ennfremur alls konar afsláttar-, leiðbein-
ingar- og upplýsingamiða.
Allt sjálflírnandi á rúllum í einum eðafleiri litum
LÍMMERKI
Síðumúla 21 - 105 Reykjavík
Sími 31244
KEFLVÍKINGAR
SUÐURNESJAMENN
Afgreiðum á verksmiðjuverði hinar vinsælu
málningarvörur:
VITRETEX: Plastmálningu, mynsturmáln-
ingu, sandmálningu.
HEMPEL’S: Þakmálningu, skipalökk,
grunnmálningu.
CUPRINOL fúavarnarefni.
GOODWOOD þiljulökk.
Hagsýnir gera verðsamanburð áður en til
framkvæmda kemur.
«Framletðandi á Islandi:
SlippfélagiCZPReykjavíkhf
Málningarverksmidjan Dugguvogi - Simar 33433 og 33414
Umboðsmaður á Suðurnesjum:
ÓLAFUR GUÐMUNDSSON, málarameistari
Borgarvegi 30, Njarðvík, sími 2471
Afgreiðsla: Bolafæti 3, Njarðvík
opið alla virka daga kl. 18 - 20
Kústaskápurinn
Viðtal við Einar Júliusson
Framh. af bls. 5
Einar Júliusson 12 ára
sveitinni, en ég var þá í 6.
bekk í barnaskólanum. Þar
voru ýmsir góðir menn eins
og Raggi rakari, Agnar
Sigurvinsson og Magnús
Sigtryggsson, þetta var
hörku grúbba og þá var
lagið Diana sem var flutt að
meðaltali 13. sinnum á
hverju balli sem lang vin-
sælasta lagið.
Þá þróast þetta í þaö aö
13 ára kem ég fram í útvarp-
inu með Þórir Baldurssyni,
það voru okkar fyrstu spor
sem við stigum fyrir framan
alþjóð, við sungum þarna
saman þrjú lög og síöan var
tekið við okkur viðtal af
Gunnari Schram, núver-
andi alþingismanni, sem þá
var með þátt í útvarpinu.
Síðan er það að þegar
dansaö var hér úti í fyrsta
sinn á 17. júni, þá stóð ég
niöur á Hafnargötu við
gömlu lögreglustööina eins
og allir aðrir og hlustaöi á
hljómsveitina spila, þá var
ég manaður til aö fara upp á
sinu og kallaður upp. Ég
sagöi þeim aö bíöa
augnablik og hljóp heim og
náði í textana og söng síðan
nokkurlög.
Nú hófst balllð
fyrir alvöru.
Eftir þetta hófst ballið, ég
fór að syngja í Ungmenna-
félagshúsinu (Ungó) með
hljómsveit Karls Jónatans-
sonar sem kom fram eitt
kvöldið, þá söng ég í revíu
sem hét Keflavíkurvakan.
Upp úr því var hljómsveit
Guömundar Ingólfssonar
stofnuð, þessi hljómsveit
varð brátt ein sú alvinsæl-
asta um allt land, því fólk
sótti þá mjög mikið gamla
krossinn og þar var alltaf
troðfullt. Og það má segja
að sá staöur hafi verið upp-
hafið hjá mörgum lands-
þekktum hljómlistarmönn-
um s.s. Þórir Baldurssyni,
Rúnari Georgssyni, Pétri
östlund, Gunnar Þórðar-
syni o.fl.,sem þarnaspiluðu
með okkur.
Má segja að þarna sé
upptalið upphaf af mínum
söngferIi, sem síðan
þróaðist út í það að
Hljómarnir voru stofnaðir
upp úr hljómsveit Guð-
mundar Ingólfssonar af
Gunnari Þórðar, Erlingi
Björns, mér og Edda Krist-
ins. Rúnar Júl kom síðan
inn í dæmið, þegar við
vorum að leita okkur að
bassaleikara, en þá benti
Gunnar á hann. ( upphafi
höfðum við ekki trú á hon-
um sem bassaleikara, en
annað reyndist rétt vera,
hann sló strax í gegn eins
og Hljómar. Við gerðum
margt sem ekki þekktist áð-
urs.s.aðhreyfaokkurmeira
á sinunni og fórum einnig
niður á ofnana sem voru
framan við sinuna i Krossin-
um og niður á bekkina og
það kunni fólkið afskaplega
vel við strax.
Átti aldrei
afturkvæmt f Hljóma
Þegar ág var 18 ára fór ég
á spítala og lét taka úr mér
hálskirtlana, þá búinn að
syngja með Hljómum í
nokkra mánuði, en átti
aldrei afturkvæmt í
Hljómana vegna þess að
Karl Hermans tók við söng-
inum af mér. Þá upphófst
bítlaæðið, ég var ekkert of
hrifinn af því til að byrja
með, fannst of mikið öskur
og fann mig ekki í þessu og
svo voru greidd atkvæöi um
þaö hvor okkar Kalla ættu
að halda áfram í Hljómum
og ég fékk eitt atkvæði en
Kalli 3. Hann hélt því
starfinu áfram og var með í
aðal uppgangstíma Hljóma.
Stuttu síðar var mér boð-
ið í hljómsveit í Reykjavík
og var þaö upphafiö að
Pónik og Einari sem stóð í
11 ár, þar til ég neyddist til
að hætta vegna þess að ég
fékk slæmsku í hálsinn,
svokallaða söngvara hnúta.
Þorvaldur Halldórsson
leysti mig þá af í 9 mánuði,
ég byrjaði síðan aftur og
söng í nokkur ár þar til ég
hætti alveg með þeimfyrir4
árum, settist í helgan
stein. Þeim steini var veltfrá
nú á rokkhátíöinni."
Framhald í næsta blaði.
Húsmæðraorlof Suðurnesja
Nú í um 20 ár hafa verið í
gildi lög um orlof hús-
mæðra og er framkvæmd
þess þannig, að kvenfélög-
in á hverju svæöi sjá um
undirbúning eina viku á
hverju sumri þar sem farið
er eitthvað í burtu, til af-
slöppunar og skemmtunar.
Konurnar hér á Suður-
nesjum hafa undanfarin ár
notað þessar vikur til veru á
Laugarvatni og er þátttaka
þar greidd niður af sveitar-
félögunum hér. Nú hefur
verið ákveðið að þessi
Um 60 konur af Suður-
nesjum koma þarna saman
til orlofs og fer skipting
þeirra milli byggðarlaganna
eftir höfðatölu, þannig að
um 20 konur eru úr Kefla-
vík, 7 úr Njarðvík, og síðan
koll af kolli.
Verunni að Laugarvatni
er m.a. eytt í gufuböð, sund
o.fl., s.s. sjá konurnar um
kvöldvökur, bingó og margt
annað. Ættu þær sem
áhuga hafa á þessu að drifa
sig í að láta skrá sig. - epj.
Njarðvíkur-
Hitaveita Suðumesja
mun hctfa orkuverið í Svartsengi
til sýnis fyrir
Suðurnesja-
menn alla
föstudaga, laug-
ardaga og
sunnudaga
kl. 13.00-19.00
í júlí og ágúst.
I fyrsta sinn
föstudaginn
8. júlí.
presturinn
þjónar Keflavík
í júlí verður Ólafur Oddur
Jónsson, sóknarprestur i
Keflavíkurprestakal11 i
sumarfrii. Mun séra Þorvald
ur Karl Helgason, sóknar-
prestur i Njarðvikum þjóna
Keflavikurprestak aili a
meðan. Þurfi einhver að
hafa samband við hann a
meðann. þá er simi hans
3480,
epj.
Ferming á
sunnudag
Við messu á sunnudag i
Ytri- Njarðvíkurkirkju kl. 11
fer fram ferming tveggja
barna, þau heita: Margrét
Lincoln og Guðjón Vignir
Carrol.
epj.