Víkurfréttir - 21.07.1983, Blaðsíða 13
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 21. júlí 1983 13
Við opnum nýja
Shellstöð
I Njarðvík
Nýja Shellstöðin
að Fitjum í Njarðvík hefur
verið opnuð. Allt hefur verið
snyrt og snurfusað
og gljáfægðarbensíndælurnar
bíða þess með óþreyju
að fá að fylla hjá þértankinn.
Verið velkomin að Fitjum, — frá okkur fer
enginn með tóman tankinn.
Shellstöðin
Njarðvík
Hafsteinn
Axelsson sf.
16. júní var skráð nýtt
sameignarfélag hjá firma-
skrá Njarðvíkur undir nafn-
inu Hafsteinn Axelsson sf.
Tilgangur félagsins er
verktakastarfsemi.
Stofnendur eru Þorleifur
Björnsson, Sigurjón Haf-
steinsson og Matthildur
Hafsteinsdóttir, öll til heim-
ilis í Njarðvík. - epj.
Skeljungur h.f.
25
Oft hafa borist kvartanir
og ábendingar til blaðsins
vegna bílflaka er liggja eins
og hráviður í kringum bíla-
verkstæði Birgis Guðna-
sonar við Grófina 7. Þó
ástand þessara mála sé
með betra móti núna, hefur
það oft verið slæmt, og því
slógum við á þráðinn til
Birgis til að fá upplýsingar
um hverju þetta sætti.
Birgir sagöi að málum
væri þannig háttað, að á
hverju ári væri komið með
allt að 25 ónýta bíla eða
mikið skemmda eftir
umferðaróhöpp, að verk-
stæðinu. Væru þar að verki
einstaklingar og lögreglan,
bílflök á ári
Hringtorgið við Samkaup
þangað komin.
,,Þau flök sem nú eru á
svæðinu eru þannig stað-
sett, að erfitt hefur verið að
komast að þeim," sagði
Birgir, ,,en þau verða fjar-
lægð innan tíðar." - epj.
Eftir að tengibrautirnar
milli bílastæðisins við Sam-
kaup og Móahverfis og eins
við Reykjanesbraut og í
þriðja lagi við Hringbraut
voru opnaðar, hefur bíla-
stæðið orðið að nokkurs
konar hringtorgi fyrir Njarð-
víkinga.
Lýsti þetta sér best um kl.
17 sl. fimmtudag, en þá var
ég að koma út úr Samkaup
og ók barnavagni eftir bíla-
stæðinu, þegar bíll kom frá
Reykjanesbraut og ók þvert
yfir svæðið og virti engar
umferðarreglur og sýndi
enga aðgæslu. Síðan ók
hann sem leið liggur niður í
Móahverfi.
Eg veit ekki hvers vegna
bíllinn slapp við að aka á
mig, það litlu munaöi. Þetta
varð hins vegar til þess að
ég fór að fylgjast með um-
ferðinni þarna og komst þá
að raun um að það var
stanslaus straumur bíla frá
Netaverkstæðinu og yfir í
Móahverfi og flestir bílstjór-
anna óku þarna mjög hratt
og ógætilega þvert yfir
merkt bílastæði.
Eftir þessa reynslu mína
er ég alveg ákveðin í að
versla ekki meira í Sam-
kaupum, af ótta við að verða
keyrð niður með barnavagn
þarna á þessu nýja hring-
torgi Njarðvíkinga.
Fyrrverandi
viðskiptavinur
Samkaupa
Vegna þessa aðila sem
segist vera hættur að versla
í Samkaupum, höfðum við
samband við Kristján Hans-
son, verslunarstjóra Sam-
kaupa, þar sem ekki náðist i
kaupfélagsstjóra.
„Við áttum von á að um-
ferð myndi aukast þarna um
og niður í Móahverfið, en
ekki svona þvert yfir
planið," sagði Kristján.
„Þetta mun þó lagast, því
þegar framtíðartenging
verður komin mun núver-
andi afleggjari niður á
Reykjanesbraut lokast.
Með því hverfur alveg þessi
þverkeyrsla þarna á plan-
inu."
Albert K. Sanders bæjar-
stjóri í Njarðvík sagði að
þetta væri aðeins nýja-
brumið, síðan hyrfi þetta.
Eins yrði önnur tenging
lögð fyrir Móahverfið. Væri
þegar farið að leggja vatn
og undirbúa þá götulögn.
epj.
auk hans sjálfs. Síðan hefði
það oftast lent á honum að
hreinsa þetta og fjarlægja
flökin, eða þá að bærinn
sæi um það, því viðkom-
andi einstaklingar hirtu lítið
um þau eftir að þau væru