Víkurfréttir - 17.11.1983, Síða 7
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 17. nóvember 1983 7
Slökkviliðsmenn á Keflavíkur-
flugvelli fá viðurkenningu
8. nóv. sl. afhenti aðmír-
állinn á Keflavíkurflugvelli,
Ronald E. Narmi, 16 starfs-
mönnum Slökkviliðs Kefla-
vikurflugvallar viðurkenn-
ingu fyrir frábæra frammi-
stöðu er þeir náðu að ráða
niðurlögum elds er kom
upp í herflugvél C-118 i
stærsta flugskýli varnarliðs-
ins á Keflavíkurflugvelli
þann 1. okt. sl. Meðskjótum
viðbrögðum afstýrðu þeir
einnig mögulegum
skemmdum á öðrum vélum
og flugskýlinu sem þær
voru staðsettar í. ( bréfi frá
varnarliðinu segir einnig að
með frammistöðu þessari
hafi þeir undirstrikað enn
fremur þann hróðurerferaf
slökkviliðmu ,,sem þvi
besta í heiminum".
Aðstoðarslökkviliðsstjóri
Halldór Marteinsson, fékk
sérstakt viðurkenningar-
skjal fyrir sinn þátt í björg-
uninni og auk þess 15 aðrir
sem tóku þátt í henni. Þeir
voru: Njáll Skarphéðinsson,
Sigurður Magnússon, Guð-
mundur Halldórsson,
Reynir Markússon, Ingi-
mundur Eiríksson, Árni Sig-
urðsson, Guðmundur
Gunnarsson, Einar Einars-
son, Finnbogi Ingólfsson,
Ólafur Eggertsson, Björg-
úlfur Stefánsson, Eðvald
Lúðvíksson, Rúnar Guð-
brandsson, Emil Kristjáns-
son og Raymond Newman.
pket
Aöstoðarslökkviliðsstjórinn, Halldór Marteinsson, tekur við viður-
kenningarskjali sinu.
Guömundur Halldórsson, einn al 16 slökkviliðsmönnum sem
fengu viðurkenningarskjöl.
Dekkin komin fram
í næst síðasta blaði var
sagt frá þjófnaði á mjög
sjaldgæfum dekkjum við
Sólningu hf. Var hér um til-
finnanlegt tjón að ræða fyrir
eiganda þeirra, og því var
skorað á alla er upplýsing-
ar gætu látið í té að koma
þeim til réttra aðila.
( síðustu viku fundust
dekkin út í vegkanti Grinda-
víkurvegar, en þar höfðu
þau ekki legið lengi er af
þeim var látið vita.
Eigandi dekkjanna er Páll
Eggertsson og vill hann
koma þeim skilaboðum til
þjófanna, aö þeir geti náð í
klippurnar, sem þeir skildu
eftir þegar dekkjunum var
stolið, til sín ef þeir vilja.
epj.
Skákfélag Gerðahrepps
endurvakið
Fimmtudaginn 3. nóvem-
ber sl. var Skákfélag Gerða-
hrepps endurvakið. Var það
stofnað árið 1945, en hefur
ekki starfað í nokkuð mörg
ár. Töluverður áhugi var þó
á skák í Garðinum, og er
Helgarskákmót var haldið
þar um mánaðamótin okt,-
nóv., stóðust menn ekki
mátið lengur og ákveðið var
að endurreisa gamla skák-
félagið.
Fundur var haldinn í
barnaskólanum og komu 30
manns á þann fund. Var
kosið í stjórn, og hana
skipa:
Vilhjálmur Halldórsson
formaöur, Gísli Heiðarsson
varaformaður, Ólafur
Tryggvason gjaldkeri, Vil-
helm Guðmundsson áhalda
vörður, T ryggvi Þór
Tryggvason ritari.
Einnig voru samþykkt ný
lög fyrir félagið.
Verður nú hafist handa
við að raða i flokka, og
ákveðið hefur verið að
halda styrkleikamót í barna-
skólanum 3 næstu fimmtu-
daga, þ.e. 18. og 25. nóv. og
1. des. Hefst taflmennskan
kl. 20 stundvíslega. Allir eru
velkomnir!
Stjórnin
HAGKAUP E.
Höfum stækkað hjá
okkur verslunina
og þar meö aukið vöruúrvalið til muna, t.d.:
Úrval af öllum jólavörum:
Jólatré - Jólatrésfætur - Seríur - Jólakerti
Aðventuljós - Jólapappír - Jólakort o.m.fl.
Einnig mikið úrval af nýkomnum fatnaði
fyrir alla fjölskylduna.
ALLT ER ÞETTA Á HAGKAUPS-VERÐI.
SÍMI 3655
HAGKAUP
TOMMI TOMMI TOMMI
íitimi
íitiini
jzznn
ilIZTZI
í rriM^ n
irJIIIÍ
li'Hrii
íitiiiim^
cu |
íiHTIIMg
Hcl
»ii:i:nB«=
n I
ií'I^iHII
ii'iini
írnnr
li'iinr
Tommi - Suöurnesjum
2ja ára
AFMÆLISTILBOÐ
laugardaginn 19. nóvember á Tomma Fitjum.
Hamborgarar, franskar og gos
á kr. 80.
Stanslaus afmælisstemmning allan daginn.
Allir krakkar fá ís og leikfang -
' og boösmiöa aö auki.
Ef veöur leyfir veröur meiri háttar uppákoma
á svæöinu (nánar auglýst í útvarpinu
á laugardag).
Tommi - Suðurnesjum
2 ára
TommiFitjum
limnr
.i-nnr
linni
linni
li'imi
ii‘i:r:i
íinnr
linnr
íinnr
TOMMI TOM
:mrtonnn
TOMM