Víkurfréttir - 23.08.1984, Blaðsíða 6
6 Fimmtudagur 23. ágúst 1984
VIKUR-fréttir
mun
{úUii
Blaðið sem vitnað
er í.
ATVINNA
Starfsfólk vantar í snyrtingu og pökkun
hálfan eða allan daginn. Unnið eftir bónus-
kerfi. Upplýsingar gefur verkstjórinn í síma
1888 eða 1444. /
Frá Tónlistarskóla
Sandgerðis
Innritun ferfram áskrifstofu Miðneshrepps
Tjarnargötu 4, daglega til 7. september.
Þeir sem enn eiga ógreidd skólagjöld frá
síðasta vetri, vinsamlegast greiöi þau nú
þegar.
Skólastjóri
Hjúkrunarforsjóri
Staða hjúkrunarforstjóra við Sjúkrahús
Keflavíkurlæknishéraðs er laustil umsókn-
ar. Umsóknir ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf berist stjórn Sjúkra-
húss Keflavíkurlæknishéraðs fyrir 15. sept-
ember 1984. Staðan er veitt frá 1. janúar
1985 eða eftir rtánara samkomulagi.
Sjúkrahús Keflavikurlæknishéraðs
Fjölbrautaskóli Suðurnesja
Oldungadeild
Lokaskráning í öldungadeild haustannar
1984 fer fram á skrifstofu skólans dagana
20.-31. ágúst frá kl. 9-16. Innritunargjald er
kr. 1.800 og greiðist við skráningu. Eftir-
taldir áfangar verða kenndir:
Bókfærsla 103
Bókfærsla 303
Danska 102
Danska 103
Danska 202
Enska 102
Enska 103
Enska 302
Franska 103
íslenska 102
íslenska 103
íslenska 313
Saga 103
Stærðfræði 102
Stærðfræði 103
Stærðfræði 202
Tölvufræði 103
Vélritun 101
Vélritun 202
Þýska 103
Nemendur öldungadeildar eru beðnir að
mæta til fundar og töfluafhendingar mið-
vikudaginn 29. ágúst kl. 18.
SKÓLAMEISTARI
Hitaveitulögnin til Grindavikur, og er sú sem er nær á myndinni
bráöabirgðalögn.
Of mikið súrefni?
Stuttu eftir að Grindvík-
ingar fengu heitt vatn frá
Hitaveitu Suðurnesja fóru
ofnar að leka hjá mörgum
þeirra, sem kostaði þá stór-
fé. Menn veltuauðvitaðfyrir
sér hvers vegna þetta væri.
Margir héldu þvi fram að
þetta væri út af því að of
mikið súrefni væri i vatninu,
en þá tærast ofnarnir að
innan. Einn þeirra sendi ofn
til Rannsóknarstofnunar
byggingariðnaðarins og
þar var þetta staðfest.
Starfsmenn hjá Hitaveit-
unni vildu þó ekki viður-
kenna þetta og sögðu við
hann að þetta hefði alveg
eins getaö gerst þegar olíu-
kyndingin var. Þeir sem
halda fram „tæringarkenn-
ingunni" segja að í miðlun-
artanki sem stendur á
Selhálsi við Þorbjörn, hafi
súrefnið myndast og hann
hafi líka verið tærður að
innan, því hann hafi verið
tekinn í gegn um svipað
leyti. Eins og Grindvíkingar
og þeir sem leggja leið sína
þangaö hafa eflaust tekið l
eftir, er hitaæðin til bæjar-
ins farin að leka töluvert og í
þá finnst „tæringarkenn-
ingarmönnum" að ekki :
þurfi fleiri sannanir. í hinum
byggðarlögunum hefur
ekki orðið vart við þetta, en
þeir segja að súlfið, en það
er súrefniseyðandi, hafi
verið sett í vatnið til þeirra,
en mjög seint til Grinda-
vikur.
Blm. Víkur-frétta ræddi
viö þá Braga Eyjólfsson vél-
stjóra og Guðmund Þór-
oddsson, verkfræðing, um
þetta mál, en þeireru starfs-
menn hjá Hitaveitunni. Þeir
sögðu að það væri mögu-
leiki að ofnarnir hefðu tærst
I
Að versla heima -
má ekki vera dýrara
vegna of mikils súrefnis í
vatninu og ef það myndað-
ist þá væri það i tanknum,
því þegar það kæmi út úr
húsinu hjá þeim, væri súr-
efnismagnið óverulegt í því.
Það er mælt tvisvar á dag.
Þeir sögðu rétt að tankur-
inn hefði verið tekinn í gegn
fyrir tveimur árum, hreins-
aður og sandblásinn. En
það hefði ekki verið vegna
tæringar heldur til að
hreinsa leir sem hafði safn-
ast fyrir í honum. Um lek-
ann á hitaæðinni sögðu þeir
að það væri vegna ryðs utan
frá. Að ,,álkápa“ sem er utan
um rörið við stólana,
þ.e.a.s. þar sem það er fest
niður, hefði brugðist. Það
hefði komist vatn í einangr-
unina og rörin hefðu ekki
verið nógu heit til að þurrka
hana og þá hefðu þau auð-
vitað farið að ryðga.
Viðgerð hefst fljótlega og
sögðu þeir að starfsmenn
H i t ave i t unnar myndu
leggja bráðabirgðalögn úr
áli meðfram æðinni, um600
m í einu, en síðan væri búið
að bjóða út viðgerðá rörun-
um sjálfum og það myndi
kosta 323.700 kr.
Bútarnir sem eru ryðg-
aðir verða sagaðir í burtu og
nýir settir í staðinn og síðan
verður mun betur gengið
frá þessu en áður. Þetta
verður gert á 60 stöðum.
Teknar hafa verið stikkpruf-
ur á Njarðvíkuræðinni, en
þar er allt í stakasta lagi,
enda var mun betur gengið
frá henni i byrjun.
Aðspurðir sögðu þeir aö
rétt væri, að súlfiið hafi ekki
verið sett strax saman við
vatnið til Grindavikur, en
mjög fljótlega til Njarðvikur.
Verið er að gera tilraun með
mottu sem á að setja i miðl-
unartankana, sem á að
koma í veg fyrir súrefnis-
myndunina. - eþg.
Ég hef verið meðmæltur
því að Suðurnesjamenn
versluðu frekar heima, en
það að fara t.d. til Reykja-
víkur til að versla. Því má sú
þjónusta sem við fáum hér
heima ekki vera það miklu
dýrari en svo, að það borgi
sig að taka frí úr vinnu og
skreppa til Reykjavíkur og
versla þar.
En slíkt kom einmitt upp
hjá mér nú fyrir nokkrum
dögum, þegar þvottavélin
mín varð ónýt. Að sjálf-
sögðu hafði ég samband
við verslun hér heima og
fékk uppgefið að verðið
væri kr. 28.350 á þeirri vél
sem ég hafði hug á að eign-
ast. En til gamans hringdi
ég í umboðið í Reykjavík,
sem var Fönix, og þar fékk
ég þau svör að sama vél
kostaði þar kr. 26.500.
Mismunurinn var því
6,98% eða 1850 kr., sem það
var dýrara að kaupa þvotta-
vélina hér heima. Þar sem
ég gerði mér í hugarlund
að eitthvað kostaði að flytja
vélina hingað suður, athug-
aði ég hvað kostaði að
senda leigubíl eftir vélinni
til Reykjavíkur og var svarið
970 kr. Var mismunurinn því
enn 880 krónur sem ég
sparaði á því að versla í
Reykjavík, jafnvel þó ég
notaði dýrari flutnings-
kostnað en viðkomandi
verslun hefur yfir að ráða.
Því tók ég mig til og sótti
vélina sjálfur til Reykjavík-
ur og sparaði með því 1880
kr., þannig að í þessu tilfelli
var dýrara að versla heima.
Leiðir það hugann að því,
hvort það sé almennt vafa-
mál hvort ódýrara sé að
versla heima.
Keflvikingur
Útivistartími
barna
Samkvæmt lögum um útivistartíma barna á
tímabilinu 1. september til 1. maí, er börn-
um 12 ára og yngri ekki leyfilegt aö vera á
almannafæri eftir kl. 20 nema í fylgd meö
fullorðnum.
Sömuleiöis er börnum yngri en 15 ára
óheimil útivist eftir kl. 22 nema í fylgd meö
foreldrum eöa á heimleið frá viöurkenndri
æskulýðsstarfsemi.
Barnaverndarnefnd Keflavíkur
Næsta
blað
kemur
Út'
30. ágúst.