Víkurfréttir - 23.08.1984, Qupperneq 9
VIKUR-fréttir
Fimmtudagur 23. ágúst 1984 9
,,Ævinlega þegar við
höfum minria til að lána, þá
minnkum við heildarútlán-
in og lánum mörgum
smærri upphæðir og það
fer nánast enginn með
alvöru tölu út úr Spari-
sjóðnum í dag. í framhaldi
af þessu verð ég að geta
þess, að í fyrsta skipti í
starfssögu minni hér finnst
mér örla á því að ákveðnir
hópar eigi miklu bágra en
nokkru sinni áður, þ.e. mér
finrist örla á fátækt og erfið-
leikum. Það er segin saga,
að neikvæðar sveiflur í
þjóðfélaginu auka á allan
mismun og kemur þvi verr
niður á þeim sem illa eru
staddir. Þeir sem eru með
hærri laun bjargaséralltaf".
f seinni tið hafa stjórnvöld
og Seðiabanki varað við of
mikilli einkaneyslu. Hvað
vilt þú segja um það?
„Þessu er ég mjög
sammála. (fjárvana þjóð-
félagi sem er með erlend-
ar skuldir i hástigi og þarf
að framkvæma mikið, þá
auðvitað er einkaneysla á
íslandi alltof mikil um
þessar mundir. Stjórnvöld
vilja breyta þessu og það
eru ýmsar leiðir til þess.
Ein fljótvirkasta leiðin til
að hægja á einkaneyslu er
að stöðva eða hægja á af-
borgunarkerfinu í þjóðfé-
laginu. Við getum verslað
svo til hvað sem er á víxl-
um. Þú ferð til sólarlanda
á víxlum, færð þér hús-
gögn eða hljómflutnings-
tæki. Síðan eru þessir
víxlar seldir í bönkum og
sparisjóðum. Ef það væri
komið í veg fyrir þetta
væri náttúrlega meira af
peningum til þess að stýra
í aðra þætti. Þá vil ég og
minnast á það og mun
þykja gamaldags fyrir það,
en frekar hafa stjórnvöld
aukið á þetta í seinm tíð.
Til dæmis ganga nú allir
þjóðfélagsþegnar fyrir
kreditkortum. Meira að
segja neyslan er komin í
lánveitingar í formi
greiðslukortanna".
Nú hefur þú starfað sem
sparisjóðsstjóri í rúm 10 ár,
Páll. Hvernig kanntu við
starfið?
„Þetta starf sem við
Tómas gegnum hér er eins
og með önnur störf, oft
ánægjulegt og stundum
ekki eins skemmtilegt. Það
er mjög gaman að vinna hjá
fyrirtæki sem gengur vel og
getur látið gott af sér leiða.
Öll þessi ár hafa verið býsna
góð hér i Sparisjóðnum,
aukningatölur hafa verið
fyrir ofan meðallag og
, stundum gott betur. Spari-
| sjóðurinn er gríðarlega
I mikið afl i lífi fólksins á Suð-
i urnesjum og það finnst
þegar við getum lánað
minna, hversu stóru hlut-
verki stofnunin gegnir. Það
getur verið óþægilegt að
vera sparisjóðsstjóri þegar
illa gengur og maður getur
lánað minna. En þetta er
eins með öll störf í lífinu,-
Sigraði í afrekskeppni
lögregiumanna
Nýlega var háð afreks- !
keppni meðal þeirra lög- !
reglumanna sem starfa við
lögregluna í Keflavík og
Grindavík. Gaf Hagtrygging
verðlaun til keppninnar, sem
byggðist upp á fjórum þraut-
um, þ.e. langstökki, spjót-
kasti, 400 m hlaupi og 100 m
bringusundi.
Sigurvegari varð Einar
Gunnarsson, lögreglumaður í
Keflavík, en hann hafði mest-
an heildarstigafjölda, auk
þess sem hann sigraði í
sundinu. i 2. sæti varð Þor-
steinn Bjarnason og í 3. Stef-
án Hjálmarsson. - epj.
Tæknimenntaður
verksmiðjustjóri
Sjóefriavinnslan hf. auglýsir hér meö starf
verksmiðjustjóra laust til umsóknar. Starf
þetta miðast við að umsækjendur hafi
tæknimenntun og starfsreynslu í stjórnun.
Skriflegum umsóknum sé skiiað til skrif-
stofu félagsins, Vatnsnesvegi 14,230 Kefla-
vík, fyrir 28. ágúst n.k. Nánari upplýsingar
veitir framkvæmdastjóri í síma 92-3885.
| það skiptast áskin og skúrir
j og maður verður bara að
taka þvi, öll él birtir upp um
j síðir".
Lokaspurning, Páll, ertu
erfiður bankastjóri?
,,Það ætla ég að vona að
ég sé ekki. En ég vil jafn-
framt taka það fram, að
þegar ég vinn fyrir Spari-
sjóðinn þá eru hagsmunir
hans ævinlega í fyrirrúmi.
Grundvallaratriðið er ekki
hvort maður er vinsæll eða
ekki, það skiptir mig engu
máli. En ég er sanníærður
um það að þegar erfiðlega
gengur og maður getur
minna lánað, er næst besta
svarið NEI. Þá er maður
ekki vinsæll bankastjóri",
sagði Páll jónssori að
lokum. - pket.
VÍKUR-fréttir - Blað Suðurnesjamanna
FRÁ BÍLASÖLU
BRYNLEIFS
KAWASAKI mótorhjól GPZ 1100 árg. 81,
ekið 11 þús. km. Hugsanleg skipti á bíl.
Fjölbreytt úrval bifreiða á skrá, bæði á úti-
og inni-sýningarsvæði.
Opið alla virka daga frá kl. 9-19.
Laugardaga frá kl. 10-16.
BÍLASALA BRYNLEIFS
Vatnsnesvegi 29a - Keflavik - Simi 1081
:
VÖRULISTI HÚSBYGGJANDANS
Nú bjóðum við eftirtaldar
vörutegundir af lager:
LOFTPLÖTUR undir málningu í
stærðum 58x120 cm, 28x120 cm og
28x250 cm. - Verð frá 190 kr. m2.
VIÐARÞILJUR full-lakkaðar í stærð-
um 28x250 cm og 19x250 cm,
í eftirtöldum viðartegundum:
Furulamel, perutré, antik-eik, brún-eik, beyki,
furu og eik. - Verð frá kr. 390 pr. rrF.
VEGGKLÆÐNINGAR og
MILLIVEGGIR
undir málningu, í stærðum
38,5x253 cm og 58,5x253 cm.
Verð frá 177 kr. m2.
GRENIPANILL
Parama Pine panill í miklu úrvali.
Verð frá 325 kr. m2
TRÉ-X
TRÉ-X
AXIS
INNIHURÐIR afgreiddar af lager
i eftirtöldum viðartegundum:
Undir málnmgu: antik-eik, hnotulamel, perutré,
brún-eik, furulamel, eik, beyki og ask. - Aðrar
tegundir framleiddar eftir pöntunum.
Verð frá kr. 2.950.
FATASKÁPAR frá Axel Eyjólfssyni
í miklu úrvali.
GREIÐSLUSKILMÁLAR?
Já, við erum sveigjanlegir í samningum.
Allt í húsið í einum pakka.
TRÉSMIÐJA
ÞORVALDAR ÓLAFSSONAR HF.
Iðavöllum 6 - Keflavik - Simi 3320
Opiö frá kl. 8-17 alla virka daga.
TRÉ-X ER NÝJA VÖRUMERKIÐ OKKAfl.