Víkurfréttir - 23.05.1985, Blaðsíða 10
10 Fimmtudagur 23. maí 1985
VÍKUR-fréttir
ílFFUSlOK
awww \ \ \ \ \ \ \ mimnmii
; / / / / 4W//////V/////////////////
I
SptííiííCHW
MP sign
Séð yfir hluta af hinum stórglxsilega Wembley-leikvangi.
Inga Birna á Wembley
Getraunaspekingur Víkur-frétta 1985 fór með
Víkingaferðum til London og fylgdist með úrslitaleik
bikarkeppninnar á Wembley. - „Ólýsanleg stemming“ ‘
„Ég var búin að ímynda mér að þetta væri rosalegt, en svona... og sigur hjá mínu
liði í þokkabót. Ég get ekki sagt miklu meira, orð fá þessu varla lýst, slík var stemm-
ingin“, sagði Inga Birna Hákonardóttir, getraunaspekingur Víkur-frétta 1985, er
hún var spurð hvernig henni hefði fundist að vera á bikarúrslitaleik Man. Utd. og
Everton á Wembley um síðustu helgi.
Já, Inga Birna skellti sér
til London með Víkinga-
ferðum og stefndi á
Wembley. Svo var bara að
treysta á guð og gæfuna, því
engir miðar voru fyrir
liendi. Undirritaður slóst í
för með getraunaspekingn-
um, því frásögn varð að
sjálfsögðu að fylgja með
myndum frá þessum
stóratburði. Miðana átti
svo að reyna að fá fyrir utan
leikvanginn. Þar eru alltaf
fjöldi manna að selja miða
(var okkur sagt) en að sjálf-
sögðu á hærra verði en
gengur og gerist. Það fór þó
allt vel. Þrátt fyrir dökkt
útlit um það bil hálftíma
áður en leikurinn átti að
hefjast, vegna mikillar tafar
á farþegalestinni sem flutti
okkur á Wembley, þá urð-
um við okkur úti um miða.
Þá voru heldur ekki nema
um 10 mín. í leikinn. Inn á
leikvanginn vorum við
komin þegar flautað var til
Ieiks. Innan um lOOþúsund
brjálaða stuðningsmenn
liðanna, hvílík stemming!
Hreint ólýsanlegt.
Eftir 90 mín. leik var
jafnt, hvorugt lið hafði
skorað þrátt fyrir nokkur
tækifæri, og því var fram-
lengt. Þá tókst Man. Utd.
að tryggja sér sigur, þó þeir
væru aðeins 10 á móti 11
Everton-leikmönnum.
Þegar rauðu djöflarnir
skoruðu markið, hélt ég
hreinlega að stúkan myndi
hrynja, slík voru lætin. Eins
þegar flautað var til leiks-
loka. Stuðningsmenn liðs-
ins slepptu sér alveg. Það
l
Manchester Utd.-aðdáandinn og getraunaspekingur Víkur-frétta,
Inga Birna Hákonardóttir, tilbúin í slaginn.
gerðu þeir líka þegar einn
leikmaður Man. Utd. var
rekinn út af. Mjög strang-
ur dómur að flestra mati og
Man. Utd. aðdáendur urðu
æfir.
Hvað um það, sigur
vannst hjá þeim rauðu og í
lokin sungu áhangendur -
,,We love United, we love
United . . . “
Blaðamaðurinn og get-
raunaspekingurinn voru
ekki einir Islendinga á
leiknum. Magnús Helga-
son, flugmaður með meiru
hjá Suðurflugi, slóst með í
förina og á leiknum hittum
við Halldór Einarsson
(Henson) og fleiri Valsara.
HENSON gaf sem kunnugt
er æfingagalla í keppnina
milli DAGS og Víkur-
frétta.
Það var ekki ætlunin að
hafa þetta neina langloku,
og því látum við myndirn-
ar um afganginn. - pket.
Olýsanlcg stemming meðal áhorfenda.
Hópur íslendinga fór í pílagrímsför til Mekka knattspyrnunnar.