Víkurfréttir - 23.05.1985, Page 12
12 Fimmtudagur 23. maí 1985
VÍKUR-fréttir
Sjúkrahús Keflavíkurlæknishéraös:
LAUSAR STÖÐUR
Deildarstjóra á röntgendeild sem fyrst.
Röntgenlæknis frá 1. ágúst 1985.
Meinatæknis frá 15. ágúst 1985.
Læknaritara sem fyrst.
Uppl. veita deildarstjórar viðkomandi
deilda, eða forstöðumaður í síma 92-4000.
Forstöðumaður
Verslunarhúsnæði til leigu
að Hringbraut 92a (Sportvík). Laust 1. júlí
n.k. Uppl. í síma 1580 á daginn og 3538 á
kvöldin.
Grindavík
Auglýst ereftirforstöðumanni að leikskóla.
Um er að ræða tímabundið starf sem er heil
staða frá 1. júlí til 31. okt. n.k. og 1/2 staða
frá 1. nóv. n.k. til 1. sept. 1986.
Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt-
un og fyrri störf berist undirrituðum fyrir
10. júní n.k.
Grindavík 21/5 1985.
Bæjarstjórinn í Grindavík
Grindavík
3ja herb. íbúð ,að Heiðarhrauni 30a, er til
sölu með umsóknarfresti til 20. júní n.k.
Umsóknareyðublöð ásamt frekari upplýs-
ingum fást á skrifstofu bæjarins.
Grindavík, 21/5 1985.
Stjórn verkamannabústaða
í Grindavík
Frá styrktarfélagi aldraðra:
Leikhúsferð í næstu \iku
Vetrarstarfi lokið
Vetrarstarfsemi Styrkt-
arfélags aldraðra á Suður-
nesjum lauk með handa-
vinnusýningu að Suður-
götu 12-14, eins og áður
hefur komið fram hér í
blaðinu. Var sýningin vel
sótt, en i henni tóku þátt
aldraðir frá Keflavík,
Njarðvík, Grindavík og
Garði. Hefur vetrardag-
skráin verið með hefð-
bundnum hætti, s.s. fönd-
ur, spil, bingó, leirvinna,
sund, bókband, leikfimi,
hárgreiðsla og fótsnyrting.
Auk opins húss með veit-
ingum, skemmtiatriðum og
dansi.
Sumarstarfið mun hefj-
ast með leikhúsferð 29. maí
n.k. og eru aldraðir beðnir
að muna eftir að láta skrá
sig til þátttöku sem allra
fyrst hjá einhverjum eftir-
talinna: Soffíu í símum
1709 og 2172, Önnu í síma
6568, Gerði í síma 8195 eða
Klöru í síma 1688.
Að venju hafa um 70-80
manns unnið mikið og gott
starf án endurgjalds, við
starfsemi félagsins. Vill fé-
lagið flytja þessu fólki mikl-
ar þakkir fyrir, og eins flyt-
ur það einstökum félögum
og stofnunum sem
stutthefur það peningalega,
þakkir fyrir, en án þeirrar
hjálpar hefði félagið lítið
getað starfað. - epj.
Frá ferðaneíhd aldraðra
Á þessu ári var farin ferð
til Kanaríeyja þ. 30. jan.
með aldraða á Suðurnesj-
um. Voru 30 manns í ferð-
inni, tveir fararstjórar og
ein hjúkrunarkona. Er
þetta í fyrsta sinn sem farið
er á þessum árstíma. Gekk
ferðin vel og voru allir
ánægðir er heim kom.
Eins og að venju verða
farnar tvær ferðir í sumar.
Fyrri ferðin er að Flúðum,
en þar erum að ræða viku-
dvöl undir fararstjórn
Jónínu Kristjánsdóttur úr
Keflavík og Sveindísar Pét-
ursdóttur úr Vogum. Hin
ferðin er að Þelamörk í
Eyjafirði þann 18. ágúst og
verður dvalið þar í 9 daga
undir fararstjórn Hrefnu
Sigurðardóttur, Keflavík,
og Gerðu Hammer úr
Grindavík. Er þegar að
verða fullt í báðar þessar
ferðir.
Dagsferðin verður 16.
júlí og verður farið í Skál-
holt, borðaður hádegis-
verður þar, komið við í
sumarbústað og drukkið
kaffi, stoppað síðan í
Hveragerði á heimleiðinni.
KEFLAVfK
Fasteigna
gjöld
Hér með er skorað á alla þá er standa í vanskil-
um með fasteignagjöld til bæjarsjóðs
Keflavíkur, að greiða þau nú þegar, og í síðasta
lagi 30 dögum frá birtingu auglýsingar þessar-
ar, ella má búast við því að beðið verði um
uppboð á viðkomandi fasteign án frekari viðvör-
unar skv. heimild í lögum nr. 49/1951 um sölu
lögveða án undangengins lögtaks.
Bæjariögmaður
Eins og undanfarin ár eru
allar upplýsingar um dags-
ferðina veittar hjá Sérleyfis-
bifreiðum Keflavíkur og í
síma 1361. í fyrra fóru 93 í
þessa ferð og er vonast til að
svo verði núna.
Á hverju hausti hefur
Rotaryklúbbur Keflavíkur
og Sparisjóðurinn í Kefla-
vík boðið upp á hálfsdags-
ferð og hefur sú ferð verið
tilhlökkunarefni allt árið,
svo vel hefur hún tekist að
öllu leyti.
Ferðanefndin þakkar öll-
um aðilum á Suðurnesjum
sem styrkt hafa hana í
þessum ferðum, aldraða
fólkið kann vel að meta
þann hlýhug. - epj.
Styrktarfélag aldraðra:
Gísli Sigurbjömsson
gefur stórgjöf
Gísli Sigurbjörnsson tekur við heiðursskjali úr hendi Matta Ó.
Asbjörnssonar.
Gísli Sigurbjörnsson,
kenndur við Grund, hefur
nýlega gefið Styrktarfélagi
aldraðra á Suðurnesjum
stórgjöf til minningar um
séra Pál Þórðarson, sókn-
arprest í Njarðvík. Um er
að ræða 50 þús. kr., sem
fara skulu í sjóð til bygg-
ingar langlegudeildar við
Sjúkrahúsið í Keflavík.
Bygging langlegudeild-
ar hér við sjúkrahúsið er
öldruðum mikið hjartans
mál og það, að sú deild geti
tekið til starfa sem fyrst.
Gísli Sigurbjörnsson hef-
ur margoft áður sýnt góðan
hug til félagsins, en hann er
aðal hvatamaður að stofn-
un þess. Hann hefur stutt
það og styrkt á margan hátt
sem besti faðir og því senda
aldraðir á Suðurnesjum
honum bestu þakkir fyrir.
Þá hefur hann m.a. séð til
þess að öldruðum á Suður-
nesjum hefur undanfarin 7
ár verið boðið í viku sumar-
dvöl í Hveragerði og hafa
þær vikur verið þeim alveg
ógleýmanlegar. - epj.
Garðyrkjudeild
Keflavíkur
Fundur verður haldinn í Skátaheimilinu við
Hringbraut í kvöld, fimmtudag, kl. 20.30.
Fundarefni: Jóhanna Gunnarsdóttir svarar
fyrirspurnum um almenna garðyrkju.